Að minnsta kosti 39 pólitískum föngum var sleppt úr fangelsum í Venesúela í gær og dag. Mannréttindahópar greina frá þessu og segja að baráttan fyrir frelsun pólitískra fanga haldi áfram þar til þeim verði öllum sleppt.
Samkvæmt Foro Penal, sem eru mannréttindasamtök sem verja pólitíska fanga, voru 344 pólitískir fangar í fangelsum í Venesúela 18. september.
Meðal þeirra sem var sleppt eru sex einstaklingar sem voru sakaðir um að vinna með Bandaríkjunum og hafa reynt að steypa Nicolas Maduro, fyrrum forseta landsins, af valdastóli árið 2020.
Bandaríkjastjórn þrýsti á bráðabirgðastjórnina í Venesúela að koma á nýjum lögum um sakaruppgjöf í febrúar, en það hefur gengið hægt hjá stjórnvöldum að framfylgja þessum nýju lögum.