Þorgerður Katrin Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, sagði það heigulskap að vilja ekki setjast niður og semja um langvarandi og réttlátan frið á Gaza, og neita bágstöddum íbúum þar um aðstoð, í ávarpi sínu á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í New York í dag.
Hún beindi orðum sínum að Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, og sneri þar með orðum hans gegn honum sjálfum. Fyrir helgi lét hann þau orð falla að þeir væru siðferðislegir heiglar sem kusu að ganga út úr þingsalnum á meðan hann ávarpaði allsherjarþingið.
Þorgerður Katrín ræddi málin í beinni útsendingu í kvöldfréttum sjónvarps.
„Við finnum það alveg hér og í aðdraganda þingsins að það hriktir í stoðum alþjóðakerfisins. Og þess vegna er það þeim mun betra að finna það að litlar og meðalstórar þjóðir, og líka stærri þjóðirnar, að það er ákveðinn metnaður. Ákveðin vinna sem er framundan til þess að láta alþjóðakerfið virka. Að mannréttindi séu virt, virðing fyrir alþjóðalögum, friðhelgi landamæra, sjálfsákvörðunarrétti þjóðar, öll þessi grundvallarprinsipp sem við Íslendingar stöndum af einurð með,“ sagði Þorgerður Katrín.
„Og þess vegna er fínt að það er verið hér að finna leiðir, það eru að eiga sér stað fundir og það eru samtöl í gangi. Og það er betra en ekki.“
Orðum hennar hafi einnig verið beint að leiðtogum hinna ýmsu landa heimsins, sem að hennar mati hafa ekki sýnt nægilega mikinn kjark til að setjast niður að samningaborðinu og vinna að því að stuðla að réttlátum og varanlegum friði í Úkraínu.
Alþjóðleg handtökuskipun vegna ásakana um glæpi gegn mannkyni eru í gildi á hendur Netanjahú. Það fór því fyrir brjóstið á mörgum að hann gæti ávarpað allsherjarþingið fyrir helgi, ekki síst þar sem bandarísk yfirvöld hafa áður sett stein í götu fulltrúa aðildarríkja eins og Palestínu og Írans, svo dæmi séu tekin.
Segir að breyta þurfi Sameinuðu þjóðunum
Þorgerður fór um víðan völl í ávarpi sínu í dag. Tæpti hún meðal annars réttindabaráttu hinsegin fólks, áskorunum og tækifærum vegna þróun gervigreindar, stríðinu í Úkraínu og formgalla í samstarfi Sameinuðu þjóðanna.
„Of oft hefur neitunarvaldið hindrað aðgerðir í stað þess að vera tól til þess að varðveita frið. Þannig já, það þarf að breyta Sameinuðu þjóðunum. Ísland styður heilshugar UN80-breytingartillöguna,“ sagði Þorgerður í New York í dag og benti þannig á hve lamað öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefur oft verið vegna neitunarvalds sumra ríkja í ráðinu.
Um ógnir sem Þorgerður telur að steðji að lýðræðissamfélögum víða um heim, segir hún að ríki heims fylgi alþjóðalögum eftir sífellt meiri hentisemi.
„Við getum ekki byggt upp dómstóla, fagnað því þegar óvinir okkar eru sóttir til saka en grafið undan þeim þegar þeir beina sjónum sínum að bandamönnum okkar,“ sagði Þorgerður, að því er virðist með vísan til þess hvernig Bandaríkin og Ísrael hafa ráðist að heiðri alþjóðlegra dómstóla að undanförnu.