Áslaugu Huldu Jónsdóttur, framkvæmdastjóra Sjúkratrygginga og fyrrverandi aðstoðarmanni Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, þykir atburðarásin í kringum mál Guðmundar Inga Kristinssonar minna á sápuóperuna Glæstar vonir frekar en stjórnmálaþættina House of Cards.
„Auðvitað finnst manni þetta allt ótrúlega klaufalegt,“ segir hún.
Áslaug Hulda var til viðtals í Vikulokunum í dag.
Ágreiningur milli Ingu Sæland, formanns Flokks fólksins, og Guðmundar Inga Kristinssonar, fyrrverandi ráðherra og varaformanns, um aðdraganda þess að hann sagði af sér ráðherraembætti fyrr á árinu hefur verið í hámæli að undanförnu.
Viktori Orra Valgarðssyni stjórnmálafræðingi, sem var einnig til viðtals í Vikulokunum, þykir ríkisstjórnin ekki hafa brugðist nógu vel við málinu. Það hafi rýrt trúverðugleika Flokks fólksins og formanns hans.
„Þótt þetta tiltekna fréttamál gleymist að einhverju leyti tiltölulega fljótlega þá held ég að það hafi rýrt trúverðugleika, að minnsta kosti Ingu Sæland og Flokks fólksins, hvernig þetta hefur atvikast.“
Hann segir það ekki líta vel út að upplifun Guðmundar Inga hafi verið að Inga Sæland, formaður flokksins, hafi hringt í hann á þriðja degi jóla og heimtað afsögn hans úr ráðherrastól. „Það lítur illa út þótt það hafi ekki verið hennar upplifun.“
Kolbeinn Marteinsson, framkvæmdastjóri Athygli og fyrrverandi aðstoðarmaður Katrínar Júlíusdóttur, var einnig viðmælandi Vikulokanna. Hann segir að málið sé að sumu leyti harmleikur. „Það er augljóst mál að það eru miklar tilfinningar á bak við.“
Kolbeinn telur að málið verði nokkurs konar arfleifð Guðmundar Inga í stjórnmálum.