Vel á annað hundrað ungmenna fylgdi eftir bandaríska áhrifavaldinum og samfélagsmiðlastjörnunni Kai Cenat sem staddur er hér á landi. Cenat fór í víkingaleiki í Hljómskálagarðinum og bragðaði á sviðasultu og slátri á Hjartatorgi í miðbæ Reykjavíkur.
„Einhver stal húfunni minni“
Cenat var á flakki um miðborg Reykjavíkur í kringum hádegi og hefur heimsóknin kvisast út meðal íslenskra fylgjenda.
Vel á annað hundrað ungmenna eltu og hópuðust í kringum hann, mikið til unglingsdrengir, sem ýmist gripu í hann eða tóku af honum mynd eða myndband.
Hamagangurinn virðist hafa komið Cenat nokkuð á óvart, og segir hann í beinu streymi að einhver hafi gerst svo bíræfinn að stela húfunni hans.
Cenat kom við í Hljómskálagarðinum þar sem hann var klæddur í víkingabúning og fór í víkingaleiki, meðal annars með einkaþjálfaranum Guðmundi Emil Jóhannssyni.
Þá var hann í beinu streymi frá Hjartatorgi, milli Laugavegar og Hverfisgötu, þar sem yfir 64 þúsund horfðu á hann smakka þjóðlega rétti á borð við slátur og sviðasultu, og virtist honum líka vel.
Því næst hélt hann á Reykjavíkurflugvöll þar sem hann fór í þyrluflug á Suðurlandið .
Á samningi hjá Nike
Cenat er rúmlega 25 ára gamall, fæddur í New York í Bandaríkjunum. Hann hefur byggt upp stóran og dyggan fylgjendahóp í gegnum ýmsa samfélagsmiðla, þar á meðal streymisveituna Twitch, þar sem hann er með yfir 21 milljón fylgjenda, og streymisveituna YouTube, þar sem hann er með um sextán og hálfa milljón fylgjenda.
Cenat er einnig þekktur meðal yngri kynslóðarinnar fyrir að gera slangrið „rizz“ og „gyatt“ vinsælt, og er fyrstur vinsælustu streymaranna að gera samning við íþróttamerkið Nike.
Hann hefur auk þess verið í samstarfi með stórstjörnum á borð við körfuboltamanninn LeBron James og Hollywood-leikaranum Kevin Hart.