Haustið hefur verið nokkuð gott fyrir þá garðyrkjubændur sem stunda útirækt þótt það hafi reyndar verið töluvert blautt og erfitt að komast um garðana. Víða er búið að taka upp hvítkál, blómkál, grænkál, rófur og gulrætur.
Einn af þeim bændum sem stunda ræktun á gulrótum er Óskar Hrafn Eyþórsson á bænum Grafarbakka rétt við Flúðir.
„Ég er með gulræktur á rétt tæpum þremur hekturum en ég hef verið að taka upp einhver 40 til 50 tonn, sem er bara mjög fínt,“ segir Óskar.
Óskar segir gulræturnar seljast vel enda fátt sem jafnast á við góða gulrót.
En hvað er það við íslensku gulræturnar sem fólk er svona ánægt með?
„Það er bara bragðið enda er beðið eftir uppskerunni af mikilli eftirvæntingu á hverju hausti.”
Og þér sýnist að uppskeran ætli að vera góð í haust?
„Já, ég held að ég geti bara lofað góðu ef ég fæ gott haust, gott veður núna í haust, þá verður þetta bara mjög gott,” segir Óskar.
Þröstur Jónsson, sem er garðyrkjubóndi á Flúðum segir uppskeru haustsins vera góða. Hann ræktar fjölmargar tegundir með sínu fólki.
„Það er svona mest hvítkál og rauðkál, svo er spergill og blómkál og ekki gleyma grænkálinu. Það er alltaf rosalega vinsælt,” segir Þröstur.
Er grænkál vinsælasta grænmetið?
„Það er svona upp og ofan. Maður skilur aldrei þegar maður tekur upp grænkál og sendir á markaðinn, það hverfur alltaf og beðið meira og meira af grænkáli, maður veit ekkert hver borðar það.” segir Þröstur hlæjandi.