Yfirborðsleg nálgun á ljóðum Elísabetar
Þorvaldur S. Helgason skrifar um kammeróperuna Ástin ein taugahrúga: Enginn dans við Ufsaklett eftir Elísabetu Jökulsdóttur og Önnu Halldórsdóttur, sem sýnd er í Tjarnarbíói.
Elísabet Jökulsdóttir er óðum að verða eitt mest aðlagaða skáld íslenskra sviðslista það sem af er þessari öld en sviðsverk byggð á skrifum hennar hafa verið mjög áberandi undanfarin ár. Má þar helst nefna einleikinn Saknaðarilm í Þjóðleikhúsinu, sýninguna Innkaupapokann í Borgarleikhúsinu, leikritið Blóðugu kanínuna í Tjarnarbíó og nú síðast kammeróperuna Ástin ein taugahrúga: Enginn dans við Ufsaklett sem sviðslistahópurinn Spindrift Theatre frumsýndi í Tjarnarbíói síðastliðna helgi. Verkið er byggt á samnefndri ljóðabók Elísabetar sem vakti mikla athygli þegar hún kom út árið 2014 og var meðal annars tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Ástin ein taugahrúga er í senn kraftmikil, sláandi og óhugnanlega hversdagsleg frásögn konu sem er föst í ofbeldissambandi. Það sama verður ekki sagt um aðlögun Spindrift Theatre af bókinni.
Leikstjórinn Bergdís Júlía Jóhannsdóttir fer þá leið að einblína á hið kómíska og kaldhæðna í ljóðum Elísabetar en skilur að mestu undan það sem gerir ljóðabókina svo sláandi; hversdagslegu …