Hreyfingin gegn réttindum hinsegin fólks og kvenna er ekki lengur jaðarsett eða bundin við ákveðin svæði í Evrópu. Áhrifanna gætir í öllum ríkjum Evrópu, þar á meðal á Íslandi. Þetta er niðurstaða nýrrar skýrslu samtakanna Forbidden Colours.
Skýrslan nær til 47 Evrópuríkja; allra aðildarríkja Evrópuráðsins auk Rússlands, og fer yfir þróun hinnar svokölluðu anti-gender-hreyfingar, eða hreyfingarinnar gegn kynjahugmyndafræði. Til hreyfingarinnar teljast þeir sem beita sér gegn réttindum hinsegin fólks og frjósemisréttindum kvenna.
Niðurstöður skýrslunnar benda til þess að hreyfingin hafi sótt í sig veðrið síðustu 25 ár. Hreyfingin teljist ekki lengur til jaðarhreyfinga eða hreyfinga sem bundnar eru við ákveðin svæði Evrópu. Í lok síðasta árs var ekkert hinna 47 ríkja ósnortið af hreyfingunni gegn kven- og hinseginréttindum.
Hvert ríki fær sinn kafla í skýrslunni. Í kaflanum um Ísland segir að ríkið sé enn meðal þeirra framsæknustu í kven- og hinsegin réttinum. Hreyfingin gegn kynjahugmyndafræði á Íslandi sé veikburða, sundruð og bundin við fáa aðila. Í skýrslunni segir að hreyfingin sé einkum drifin áfram á Alþingi, nánar tiltekið af Miðflokknum. Hugmyndafræðin hafi hins vegar ekki verið áberandi í samfélaginu fyrr en nýlega - í formi LGB-samtakanna og foreldrasamtakanna Drenglyndis.
Í skýrslunni segir að ólíklegt sé að hreyfingin eða aðilar henni tengdir nái völdum á Íslandi, en að samfélagsumræðan í landinu sýni að viðhorf gegn kven- og hinsegin réttindum séu orðin eðlilegri. Dæmi Íslands sýni að ekkert ríki sé ónæmt fyrir hreyfingunni sem berst gegn réttindum hinsegin fólks og kvenna í Evrópu.