Nýr sendi­herra er Búi og kannast ekki við „þjóðar­morð á hvítum“ - Vísir

Nýr sendi­herra er Búi og kannast ekki við „þjóðar­morð á hvítum“ - Vísir

Nýr sendi­herra er Búi og kannast ekki við „þjóðar­morð á hvítum“ - Vísir

Meyer segir í viðtali við breska ríkisútvarpið að hugmyndin um umfangsmiklar árásir á hvíta afríkönskumælandi minnihlutann standist ekki skoðun.

Kannast ekkert við meintar ofsóknir

„Er hann að tala um okkur?“ segist Meyer hafa hugsað þegar hann heyrði Trump fyrst halda því fram að þjóðarmorð væri framið gegn hvítum Suður-Afríkumönnum sem eru yfirleitt kallaðir Búar á íslensku eða Afrikaners á þeirra máli og eru afkomendur hollenskra landnema sem settust að í norðaustanverðu landinu þegar Bretar tóku við stjórn Höfðanýlendunnar.

Hann segir eigin uppruna veita sér sérstakt vægi þegar hann andmælir málflutningi Bandaríkjaforseta.

Roelf Meyer við hlið Cyrils Ramaphosa forseta Suður-Afríku og samstarfsmanns til áratuga.Getty

„Ég er sjálfur Búi frá Suður-Afríku og get sagt að ég hef aldrei upplifað neitt af þessu tagi,“ segir Meyer. Hann segist vilja ræða málið beint við Trump og komast að því hvaðan þær upplýsingar komi sem hafi mótað afstöðu forsetans.

Trump hefur um tíma ítrekað sakað stjórnvöld í Suður-Afríku um að ofsækja hvíta íbúa landsins og talað um „þjóðarmorð“ á hvítum bændum. Fyrirliggjandi gögn styðja ekki þá lýsingu. Suður-Afríka glímir við mjög alvarlegt ofbeldis- og morðavandamál og árásir á býli eiga sér stað, en lögreglugögn sýna að meirihluti fórnarlamba ofbeldisglæpa, einnig á landsbyggðinni, er svartur.

Forveranum sparkað úr landi

Skipun Meyer í þetta embætti felur því í sér nokkuð augljós skilaboð, sérstkalega í ljósi örlaga forvera hans í starfi. Ebrahim Rasool hafði áður gegnt embætti sendiherrans í Washington frá 2010 til 2015 og svo aftur í janúar 2025. Í seinna skiptið varð þó dvöl hans skömm.

Marco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna rak hann hreinlega úr landinu í mars sama ár eftir innan við tvo mánuði í starfi vegna ummæla hans um hvíta yfirburðahyggju innan MAGA-hreyfingar Trump Bandaríkjaforseta.

Ebrahim Rasool var sendiherra Suður-Afríku í Bandaríkjunum í tvígang en aðeins í rúman mánuð í seinna skiptið. Þaðan var hann rekinn heim af Rubio utanríkisráðherra.Getty

Ummælin lét hann falla á fjarfundi suðurafrískrar hugveitu sem fjallaði um breytt pólitískt landslag vestanhafs. Rubio var snöggur að svara fyrir þessi ummæli sendiherrans og kallaði hann „race-baiter“, sem sagt stjórnmálamann sem kynti undir kynþáttadeilum, sem hataði bæði Bandaríkin og Trump.

Rasool stóð síðar við greiningu sína og sagði í viðtali við BBC að kynþáttahyggja innan Trump-stjórnarinnar væri að hans mati augljós. Hann lagði þó jafnframt áherslu á að Suður-Afríka yrði að bæta samband sitt við Bandaríkin.

Suður-Afríkumenn kölluðu brottvísunina óheppilega en sagðist áfram vilja byggja upp gagnkvæmt og farsælt samband við Bandaríkin. Sendiráðið var síðan sendiherralaust í rúmt ár, þar til Cyril Ramaphosa forseti valdi Meyer í apríl síðastliðnum.

Lykilmaður í að afnema aðskilnaðarstefnuna

Meyer er að mörgu leyti óvenjulegt val fyrir ríkisstjórn sem leidd er af Afríska þjóðarráðinu, ANC.

Hann var þingmaður og ráðherra Þjóðarflokksins, flokksins sem stjórnaði Suður-Afríku undir aðskilnaðarstefnunni, og varð einn helsti samningamaður ríkisstjórnar F.W. de Klerk þegar samið var um afnám hvíta minnihlutastjórnarinnar. Maðurinn hinum megin við borðið var Cyril Ramaphosa, þá aðalsamningamaður ANC og nú forseti Suður-Afríku.

Roelf Meyer, aðalsamningamaður Þjóðarflokksins Búa sem fór með völdin í landinu nær alla 20. öldina, ræðir við Cyril Ramaphosa aðalsamningamann Afríska þjóðarráðsins í nóvember 1993 þegar CODESA-viðræðurnar stóðu yfir.Getty

Þegar formlegar viðræður höfðu siglt í strand árið 1992 mynduðu Meyer og Ramaphosa beina samskiptaleið milli ríkisstjórnarinnar og ANC. Samskipti þeirra urðu lykilþáttur í því að koma viðræðunum aftur af stað og leiddu meðal annars til samkomulags í september það ár sem greiddi leiðina fyrir frekari stjórnarskrárviðræður og fyrstu lýðræðislegu kosninga Suður-Afríku árið 1994. Meyer hélt áfram sem ráðherra í þjóðstjórn Nelsons Mandela eftir kosningarnar.

Traustið sem myndaðist milli hans og Ramaphosa fyrir rúmum þremur áratugum er enn til staðar. Meyer segir það eina ástæðu þess að forsetinn hafi kallað hann aftur til opinberra starfa og sent hann til Washington. Hin ástæðan sé sú að hann sé sjálfur úr þeim hvíta afríkönskumælandi þjóðarbrotinu sem Trump segist vera að verja.

„En ég er ekki hér til þess að vera fulltrúi Búanna einna,“ segir Meyer.

Sniðgengu G20-fund

Samskipti Bandaríkjanna og Suður-Afríku höfðu um áratugaskeið verið náin eftir afnám aðskilnaðarstefnunnar. Bandarísk stjórnvöld lýstu Suður-Afríku enn árið 2022 sem mikilvægum samstarfsaðila. Sambandið versnaði hins vegar hratt eftir að Trump sneri aftur í Hvíta húsið í janúar 2025.

Trump sakaði suðurafrísk stjórnvöld meðal annars um að gera eignir hvítra landeigenda upptækar og stöðvaði bandaríska fjárhagsaðstoð til landsins. Suðurafrísk stjórnvöld hafa hafnað þeirri lýsingu og sagt lögin miða að því að leiðrétta arfleifð aðskilnaðarstefnunnar, þegar langstærstur hluti lands var í eigu hvíta minnihlutans.

Frederik Willem de Klerk, síðasti forseti Suður-Afríku undir aðskilnaðarstjórn Þjóðarflokksins, og Nelson Mandela formaður Afríska þjóðarráðsins og síðar leiðtogi þjóðarinnar.Getty

Ágreiningurinn snýst þó um meira en kynþáttamál og landareignir. Bandarísk stjórnvöld hafa einnig gagnrýnt náin samskipti Suður-Afríku við Rússland og Íran og harðlega gagnrýnt málshöfðun Suður-Afríku gegn Ísrael fyrir Alþjóðadómstólnum vegna ásakana um þjóðarmorð á Gaza.

Marco Rubio ákvað í febrúar í fyrra að sækja ekki utanríkisráðherrafund G20-ríkjanna í Jóhannesarborg og Bandaríkin sniðgengu síðar leiðtogafund G20 í Suður-Afríku.

Sýndi Ramaphosa ótengd myndbönd af netinu

Deilan náði eins konar hátindi fáránleikans í maí í fyrra þegar Ramaphosa heimsótti Trump í Hvíta húsið í þeirri von að lappa upp á samskipti ríkjanna. Þar lét Trump skyndilega deyfa ljósin í forsetaskrifstofunni og sýndi Ramaphosa myndskeið og annað efni sem hann sagði sanna að hvítir Suður-Afríkumenn væru ofsóttir og myrtir.

Hluti þess efnis sem forsetinn lagði fram reyndist annað hvort túlkaður tæplega eða alls ótengdur því sem hann sagði það sýna. Meðal annars var ljósmynd af líkpokum, sem Trump gaf í skyn að sýndi myrta hvíta bændur í Suður-Afríku, í raun tekin í Lýðveldinu Kongó. Hvítir krossar sem forsetinn lýsti sem gröfum voru táknrænn minnisvarði en ekki grafreitur.

Cyril Ramaphosa Suður-Afríkuforseti heimsótti Donald Trump í Hvíta húsið í maí á síðasta ári. Fundurinn var vægast sagt furðulegur.Getty

Á sama tíma kom Trump-stjórnin á sérstakri leið fyrir hvíta afríkönskumælandi Suður-Afríkumenn til að fá stöðu flóttamanna í Bandaríkjunum.

Samkvæmt breska ríkisútvarpinu hafa tæplega þrettán þúsund flóttamenn verið teknir inn í Bandaríkin frá því kerfið tók gildi og allir nema þrír þeirra verið frá Suður-Afríku. Stjórnin hyggst taka við allt að 17.500 hvítum Suður-Afríkumönnum til viðbótar á næstu tólf mánuðum.

#búi #ekki #kannast #nýr #sendiherra

Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262940179d/nyr-sendiherra-er-bui-og-kannast-ekki-vid-thjodarmord-a-hvitum-

📰 Aðrar fréttir

Heigulskapur að vilja ekki semja um langvarandi frið á Gaza
📅 26.09.2026 👁️ 1
Heigulskapur að vilja ekki semja um langvarandi frið á Gaza
Þorgerður Katrin Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, sagði það heigulskap að vilja ekki setjast niður og semja um langvarandi og réttlátan frið á Gaza, ...
Spádómur Jesaja kominn fram á Íslandi?
📅 26.09.2026 👁️ 0
Spádómur Jesaja kominn fram á Íslandi?
Spádómur Jesaja kominn fram á Íslandi? Fréttin26. september 2026Aðsend greinLeave a Comment "Smábörn þjaka hana og konur ríkja yfir henni" Þröstur Jón...
Sleppti því að þrífa símann í viku og niður­staðan kom á ó­vart - Vísir
📅 26.09.2026 👁️ 2
Sleppti því að þrífa símann í viku og niður­staðan kom á ó­vart - Vísir
Radek starfar hjá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra og hefur undanfarna mánuði fært fræðsluna út fyrir atvinnueldhúsin með Facebook-síðunni Matv...
Ungur drengur þjáist af taugahörnunarsjúkdómi: „Þegar barn veikist breytist lífið hjá heilli fjölskyldu“
📅 26.09.2026 👁️ 2
Ungur drengur þjáist af taugahörnunarsjúkdómi: „Þegar barn veikist breytist lífið hjá heilli fjölskyldu“
Eydís Ásbjörnsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, hefur undanfarin tvö ár fylgst með baráttu ungs drengs og fjölskyldu hans á Eskifirði við taugahörn...
Aldrei séð aðra eins ágengni: „Þeir voru að klifra upp á bílinn og berja í rúðuna“
📅 26.09.2026 👁️ 2
Aldrei séð aðra eins ágengni: „Þeir voru að klifra upp á bílinn og berja í rúðuna“
Yfir hundrað ungmenni fylgdu bandarísku samfélagsmiðlastjörnunni Kai Cenat um miðborg Reykjavíkur í dag en hann er meðal vinsælustu streymara heims me...
Aldrei séð aðra eins ágengni: „Þeir voru að klifra upp á bílinn og berja í rúður“

Firefighters face four fire outbreaks in Tenerife in just 48 hours
📅 26.09.2026 👁️ 2
Firefighters face four fire outbreaks in Tenerife in just 48 hours
Tenerife has recorded at least four separate fire outbreaks in the last 48 hours, with emergency teams preventing each of them from developing into a ...
Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var af­numin - Vísir
📅 26.09.2026 👁️ 3
Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var af­numin - Vísir
Frá því að atburðirnir voru raktir í nýlegri umfjöllun Boston Globe um barinn hefur málið farið sem eldur um sinu í netheimum. Hinn 31. ágúst birti La...
Tómas kominn aftur til starfa - Vísir
📅 26.09.2026 👁️ 2
Tómas kominn aftur til starfa - Vísir
Runólfur Pálsson forstjóri Landspítalans staðfestir þetta í samtali við fréttastofu en Ríkisútvarpið greindi fyrst frá. Greint var frá því í janúar 20...
Óvíst hver áhrif af gjaldtöku verða á ferðaþjónustu
📅 26.09.2026 👁️ 2
Óvíst hver áhrif af gjaldtöku verða á ferðaþjónustu
Erlendir ferðamenn þurfa að borga fyrir að fara Gullna hringinn frá og með næsta ári, nái frumvarp atvinnuvegaráðherra fram að ganga. Sveitarstjóra Bl...
Telur nauðsynlegt að gera breytingar á starfi Landhelgisgæslunnar
📅 26.09.2026 👁️ 2
Telur nauðsynlegt að gera breytingar á starfi Landhelgisgæslunnar
Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar segir hlutverk Landhelgisgæslunnar skýrt en hröð þróun í heimsmálum og aðsteðjandi ógnir kalli á breytin...
Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið - Vísir
📅 26.09.2026 👁️ 2
Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið - Vísir
Netanjahú forsætisráðherra Ísraels hafði tveimur dögum áður kallað þá fulltrúa „siðferðislega hugleysingja“ sem gengu úr sal þegar hann steig í ræðust...
Hundruð þúsunda fögnuðu Leó páfa í París: „Unga fólkið er kirkja nútímans“
📅 26.09.2026 👁️ 2
Hundruð þúsunda fögnuðu Leó páfa í París: „Unga fólkið er kirkja nútímans“
Um 700 þúsund hlýddu á prédikun Leós páfa XIV í miðborg Parísar í dag. Páfi fór fögrum orðum um unga fólkið í kaþólsku kirkjunni og hafði uppi varnaða...
Orðið á götunni: Harmar hlutinn sinn ...
📅 26.09.2026 👁️ 2
Orðið á götunni: Harmar hlutinn sinn ...
Orðið á götunni er að Guðmundur Ingi Kristjánsson, fyrrverandi menntamálaráðherra, hafi engan veginn fellt margar pólitískar keilur með svekkelsiskast...
Aðgerðum þar sem lungnameinvörp eru fjarlægð fjölgað og lífslíkur betri
📅 26.09.2026 👁️ 2
Aðgerðum þar sem lungnameinvörp eru fjarlægð fjölgað og lífslíkur betri
Aðgerðum þar sem meinvörp í lungum voru fjarlægð hefur fjölgað og lífslíkur sjúklinga aukist. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn vísindamanna við Háskó...
Anna Margrét skrifar: Þegar áróðurinn verður að eigin sannfæringu
📅 26.09.2026 👁️ 3
Anna Margrét skrifar: Þegar áróðurinn verður að eigin sannfæringu
Hvernig pútínismi og trumpismi renna saman við andstöðu gegn Evrópusamstarfi í íslenskri umræðu
Óhugnanlegt myndband sýnir 17 ára stúlku ráðast á kennara sinn með hníf eftir einkunnagjöf
📅 26.09.2026 👁️ 3
Óhugnanlegt myndband sýnir 17 ára stúlku ráðast á kennara sinn með hníf eftir einkunnagjöf
Óhugnanlegt myndband náðist af því þegar nemandi réðist á kennara sinn með hníf í Brasilíu. Betur fór en á horfðist því að kennarinn slapp með lítil m...
Elva Hrönn segir Ragnar Þór hafa hrakið sig úr starfi
📅 26.09.2026 👁️ 3
Elva Hrönn segir Ragnar Þór hafa hrakið sig úr starfi
Elva Hrönn Hjartardóttir, fyrrverandi sérfræðingur á þróunarsviði VR, segir að Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra og þáverandi for...
Andy Burnham announces scheme to help first-time buyers
📅 26.09.2026 👁️ 3
Andy Burnham announces scheme to help first-time buyers
The prime minister says he wants people without support from the "bank of mum and dad" to receive help.
Þyrlan lenti við Hörpu - Vísir
📅 26.09.2026 👁️ 3
Þyrlan lenti við Hörpu - Vísir
Þyrla Gæslunnar lenti tvisvar við Hörpu í dag, klukkan eitt og klukkan fjögur síðdegis í tilefni dagsins.  Landhelgisgæslan fagnaði afmælinu í dag.Vís...
Gríðar­legur fjöldi fagnaði páfanum - Vísir
📅 26.09.2026 👁️ 3
Gríðar­legur fjöldi fagnaði páfanum - Vísir
Leó fjórtánda páfa var ekið í páfabílnum niður Champs-Élysées-breiðgötuna í Parísarborg fyrr í dag. Hann veifaði til fólksins og var ekið alla götuna ...
Tómas snúinn aftur til starfa
📅 26.09.2026 👁️ 3
Tómas snúinn aftur til starfa
Tómas Guðbjartsson hjartaskurðlæknir er snúinn til baka til starfa á Landspítalanum eftir rúmlega tveggja ára veikindaleyfi. Þetta herma heimildir fré...
Umræðan sem fékk aldrei að eiga sér stað
📅 26.09.2026 👁️ 3
Umræðan sem fékk aldrei að eiga sér stað
Umræðan sem fékk aldrei að eiga sér stað Fréttin26. september 2026InnlendarLeave a Comment Eldur Smári Kristinsson skrifar: Ég les grein Jóns Þórs Óla...
Andstaða við réttindi hinsegin fólks og kvenna útbreidd í Evrópu
📅 26.09.2026 👁️ 3
Andstaða við réttindi hinsegin fólks og kvenna útbreidd í Evrópu
Hreyfingin gegn réttindum hinsegin fólks og kvenna er ekki lengur jaðarsett eða bundin við ákveðin svæði í Evrópu. Áhrifanna gætir í öllum ríkjum Evró...
Yfirborðsleg nálgun á ljóðum Elísabetar
📅 26.09.2026 👁️ 3
Yfirborðsleg nálgun á ljóðum Elísabetar
Yfirborðsleg nálgun á ljóðum Elísabetar Þor­vald­ur S. Helga­son skrif­ar um kammeróper­una Ást­in ein tauga­hrúga: Eng­inn dans við Ufsaklett eft­ir ...
Ræktar um 50 tonn af gulrótum á Grafarbakka
📅 26.09.2026 👁️ 2
Ræktar um 50 tonn af gulrótum á Grafarbakka
Haustið hefur verið nokkuð gott fyrir þá garðyrkjubændur sem stunda útirækt þótt það hafi reyndar verið töluvert blautt og erfitt að komast um garðana...
Hópuðust að Kai Cenat í miðborginni – Smakkaði sviðasultu og slátur
📅 26.09.2026 👁️ 2
Hópuðust að Kai Cenat í miðborginni – Smakkaði sviðasultu og slátur
Bandaríski áhrifavaldurinn og samfélagsmiðlastjarnan Kai Cenat er nú staddur hér á landi. RÚV greinir frá því að hann hafi bragðað á sviðasultu og slá...
Daði spreytir sig í Gettu betur - Vísir
📅 26.09.2026 👁️ 2
Daði spreytir sig í Gettu betur - Vísir
Menntaskólinn við Hamrahlíð var stofnaður árið 1966 og verður sextíu ára afmæli skólans fagnað rækilega í allan dag. „Við verðum til dæmis með hamrask...
Deilt um færslu Snorra: „Alltaf að bjóða einhverjum sem hefur reynslu af því að tala með rassgatinu“
📅 26.09.2026 👁️ 2
Deilt um færslu Snorra: „Alltaf að bjóða einhverjum sem hefur reynslu af því að tala með rassgatinu“
„Ætli maður að greina orsakir ristilkrabbameins og ræða meðferð sjúklinga ætti maður sem sagt alltaf að bjóða einhverjum sem hefur reynslu af því að t...
Óhugnanlegt myndband sínir 17 ára stúlku ráðast á kennara sinn með hníf eftir einkunnagjöf
📅 26.09.2026 👁️ 2
Óhugnanlegt myndband sínir 17 ára stúlku ráðast á kennara sinn með hníf eftir einkunnagjöf
Óhugnanlegt myndband náðist af því þegar nemandi réðist á kennara sinn með hníf í Brasilíu. Betur fór en á horfðist því að kennarinn slapp með lítil m...
Body of missing Tenerife diver found in underwater cave
📅 26.09.2026 👁️ 2
Body of missing Tenerife diver found in underwater cave
The body of a young spearfisherman from Tenerife who disappeared while diving has been recovered off the coast of El Hierro following an extensive sea...
Hamagangur í miðborginni: Á annað hundrað ungmenna hópuðust að heimsfrægum streymara
📅 26.09.2026 👁️ 2
Hamagangur í miðborginni: Á annað hundrað ungmenna hópuðust að heimsfrægum streymara
Vel á annað hundrað ungmenna fylgdi eftir bandaríska áhrifavaldinum og samfélagsmiðlastjörnunni Kai Cenat sem staddur er hér á landi. Cenat fór í víki...
Minnir frekar á Glæstar vonir en House of Cards
📅 26.09.2026 👁️ 2
Minnir frekar á Glæstar vonir en House of Cards
Áslaugu Huldu Jónsdóttur, framkvæmdastjóra Sjúkratrygginga og fyrrverandi aðstoðarmanni Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, þykir atburðarásin í kringum ...
Ráð­herra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ - Vísir
📅 26.09.2026 👁️ 2
Ráð­herra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ - Vísir
Elva Hrönn deilir frásögninni í langri færslu á Facebook-síðunni sinni. Atburðir síðustu daga hafi vakið upp minningar af þessum tíma en töluvert hefu...
Kína og Bandaríkin koma á samskiptaleið vegna atvika tengdum gervigreind
📅 26.09.2026 👁️ 2
Kína og Bandaríkin koma á samskiptaleið vegna atvika tengdum gervigreind
Kína og Bandaríkin koma á samskiptaleið vegna atvika tengdum gervigreind Don­ald Trump og Xi Jin­ping ræddu með­al ann­ars gervi­greind, við­skipti og...
Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi - Vísir
📅 26.09.2026 👁️ 2
Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi - Vísir
Sex var saknað skömmu eftir sprenginguna og ráðist var í leitaraðgerðir í rústum byggingarinnar. Lík allra sex fundust síðdegis í dag. Fjórir bandarís...
Howie B og Hiraki Saka í Gamla bíó - Vísir
📅 26.09.2026 👁️ 3
Howie B og Hiraki Saka í Gamla bíó - Vísir
Á tónleikunum flytja þeir nýtt efni í bland við eldri verk Howie B, auk þess sem lifandi spuni verður stór hluti af kvöldinu. Raftónlistartvíeykið tec...
Um­dæmin mishrifin af fækkun em­bætta - Vísir
📅 26.09.2026 👁️ 3
Um­dæmin mishrifin af fækkun em­bætta - Vísir
Dómsmálaráðherra kynnti tillöguna fyrir helgi en í henni felst að fækka lögregluembættum landsins úr níu í þrjú. Fjölnir Sæmundsson, formaður Landssam...
Heathrow Airport's third runway may be delayed to 2039
📅 26.09.2026 👁️ 3
Heathrow Airport's third runway may be delayed to 2039
The UK's busiest airport says the original goal of 2035 will be difficult to meet without simplifying the planning process.
Heathrow Airport warns third runway could be delayed by four years
📅 26.09.2026 👁️ 2
Heathrow Airport warns third runway could be delayed by four years
The UK's busiest airport cautions it may miss the government target of 2035 as ministers say the deadline has "always been ambitious".
Sigmundur Ernir skrifar: Við leikum okkur ekki með þjóðarmorðingjum
📅 26.09.2026 👁️ 3
Sigmundur Ernir skrifar: Við leikum okkur ekki með þjóðarmorðingjum
Mynd Mikilvægustu og sterkustu ummæli vikunnar sem er að líða ko
Sænska Poppstjarnan fordæmir Hvíta húsið – Hafi notað lag hennar í annarlegum tilgangi
📅 26.09.2026 👁️ 3
Sænska Poppstjarnan fordæmir Hvíta húsið – Hafi notað lag hennar í annarlegum tilgangi
Sænska poppsöngkonan Zara Larsson hefur fordæmt Hvíta húsið fyrir að nota lag hennar í myndbandi sem sýnir brottvísanir. Hvíta húsið hefur fjarlægt la...
Stofna „samskiptarás“ til að með­höndla gervi­greind - Vísir
📅 26.09.2026 👁️ 3
Stofna „samskiptarás“ til að með­höndla gervi­greind - Vísir
Þetta kemur fram í yfirlýsingum frá ríkjunum tveimur sem sendar voru út í dag í kjölfar þess að þriggja daga heimsókn Xi Jinping, forset Kína, til Was...
Israel v Republic of Ireland: Republic of Ireland confirm Israel game will go ahead
📅 26.09.2026 👁️ 3
Israel v Republic of Ireland: Republic of Ireland confirm Israel game will go ahead
The Republic of Ireland have confirmed Sunday's Uefa Nations League B3 game against Israel in Debrecen, Hungary will go ahead.
Israel v Republic of Ireland: Republic of Ireland to wear black armbands for Israel game
📅 26.09.2026 👁️ 2
Israel v Republic of Ireland: Republic of Ireland to wear black armbands for Israel game
Republic of Ireland players intend to wear black armbands "in recognition of all lives lost in the [Gaza] conflict" for Sunday's Uefa Nations League B...
Hlaut ó­vænt heiðurs­verð­laun RIFF - Vísir
📅 26.09.2026 👁️ 3
Hlaut ó­vænt heiðurs­verð­laun RIFF - Vísir
Sigurjón var viðstaddur sýningu á upphafsþætti þáttanna frægu Twin Peaks og nýrrar 4K-endurgerðar kvikmyndarinnar Wild at Heart en verkin komu bæði út...
Tugir mættir til þess að mót­mæla ríkis­stjórninni - Vísir
📅 26.09.2026 👁️ 3
Tugir mættir til þess að mót­mæla ríkis­stjórninni - Vísir
Viðburðurinn Fellum þessa ríkisstjórn var stofnaður af Alexöndru Mist Halldórsdóttur á Facebook. Í lýsingu viðburðarins er efnt til mótmæla vegna ríki...
Manchester City charges: Could club be stripped of eight trophies?
📅 26.09.2026 👁️ 3
Manchester City charges: Could club be stripped of eight trophies?
After being found guilty of the majority of the 115 charges for breaching Premier League, could Manchester city really be stripped of eight trophies?
Vegir lokaðir vegna skriðufalla á norðanverðum Vestfjörðum og Ströndum
📅 26.09.2026 👁️ 3
Vegir lokaðir vegna skriðufalla á norðanverðum Vestfjörðum og Ströndum
Vegir hafa lokast á norðanverðum Vestfjörðum og á Ströndum vegna skriðufalla og grjóthruns síðustu daga. Spáð er áframhaldandi úrkomu fram yfir helgi....
Buxna­laus Lalli olli glund­roða - Vísir
📅 26.09.2026 👁️ 3
Buxna­laus Lalli olli glund­roða - Vísir
Lalli sló botn í þáttinn eftir yfirferð yfir helstu fréttir síðustu tveggja vikna og fréttaskýru um stöðu gervigreindarinnar. Gervigreindin hefur teki...