Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar segir hlutverk Landhelgisgæslunnar skýrt en hröð þróun í heimsmálum og aðsteðjandi ógnir kalli á breytingar á starfinu.
„Það er þá aðkoma Landhelgisgæslunnar að öryggis- og varnarmálum þjóðarinnar. Við leikum þar stórt hlutverk, erum mjög ötul í öryggisgæslu með landhelginni og sjónum og loftinu,“ segir hann.
„En við þurfum að fá skýran lagagrundvöll undir þau verkefni þannig að menn standi föstum fótum og öruggum á léttri jörð til að sinna þessum mikilvægu málum sem virðast vera að versna ef eitthvað er.“
Georg segist sáttur við núverandi fyrirkomulag samningagerðar á milli ríkis og Landhelgisgæslu.
„Við lítum svo á að Landhelgisgæslan sé alger forsenda fyrir því að hægt sé að halda uppi einhvers konar öryggiseftirliti hér í kringum landið,“ segir hann.
„Þessi samningur er að vísu til bráðabirgða og stuttur, til eins árs, en ætlun samningsaðila er að vinna að þessum málum og skipuleggja á samningstímanum og við treystum því að það verði gert,“ segir hann.
Lentu þyrlu við Hörpuna
Landhelgisgæslan fagnaði í dag 100 ára starfsafmæli sínu. Hátíðardagskráin hófst með miklum tilþrifum þegar þyrla gæslunnar lenti fyrir utan Hörpu.
Til stóð að fagna afmælinu fyrr á þessu ári í Vestmannaeyjum þar sem gæslan var stofnuð. Skyldustörf komu þó í veg fyrir það.
„Þá fengum við heimsókn frá skipi sem heitir Bandero og var með ógnandi tilburði við íslenska sjómenn og okkar skyldur liggja þar,“ segir Georg.
Löng saga og viðburðarík
Landhelgisgæslan var formlega stofnuð 1. júlí 1926 með komu björgunarskipsins Þórs. Skömmu áður hafði fyrsta varðskipið Óðinn komið til landsins. Landhelgisgæslan hefur síðan þjónað því mikilvæga hlutverki að tryggja öryggi á hafsvæðum umhverfis Ísland. Sérstaklega reyndi á gæsluna í þorskastríðunum þremur sem háð voru á milli 1958 og 1976. Farið er yfir sögu gæslunnar ítarlega á heimasíðu hennar í tilefni af afmælinu.
Traust landsmanna til gæslunnar er mikið en Landhelgisgæslan hefur 16 ár í röð mælst sú stofnun sem Íslendingar bera mest traust til í þjóðarpúlsi Gallup. Georg segir að þessu trausti fylgi mikil ábyrgð.
„Við ætlum að reyna hvað við getum til að standa undir þeirri ábyrgð og heldur að bæta okkur en hitt,“ segir Georg.