Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið - Vísir

Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið - Vísir

Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið - Vísir

Netanjahú forsætisráðherra Ísraels hafði tveimur dögum áður kallað þá fulltrúa „siðferðislega hugleysingja“ sem gengu úr sal þegar hann steig í ræðustól allsherjarþingsins. Tugir fulltrúa tóku þátt í mótmælunum. Þorgerður tók orðalagið upp í eigin ræðu í dag.

„Við heyrðum talað um „siðferðislega hugleysingja“ úr þessum fundarstóli. Fyrir mér þá eru siðferðislegir hugleysingjar þeir leiðtogar heims sem neita að setjast niður og semja um sanngjarnan og varanlegan frið.“

Hún bætti við að sama ætti við þá sem neituðu fólki í brýnni neyð um mannúðaraðstoð og leiðtoga sem brytu ítrekað gegn alþjóðalögum og gerðu lítið úr þeim.

Tilvistarspurning fyrir Ísland

Þorgerður Katrín Gunnlaugsdóttir utanríkisráðherra sagði ekki mega una því að aðildarríki Sameinuðu þjóðanna haldi alþjóðalög í heiðri aðeins þegar þeim hentar. Úrskurðum alþjóðadómstóla beri að hlíta og ekki aðeins þegar líkar niðurstaðan. Fullveldi þjóða ber að virða skilyrðislaust.

Þorgerður Katrín ávarpaði allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í New York nú síðdegis. Þar lagði hún áherslu á að fyrir smáþjóð eins og Ísland skipti öllu að virðing væri borin fyrir alþjóðalögum. Ekki þýði að kenna stofnununum um að það hrikti í stoðum alþjóðakerfisins. Á bak við sama kerfi séu jú einstaklingar, leiðtogar, þjóðir, sem verði að standa vörð um þau gildi sem liggja til grundvallar.

Í ræðu hennar voru grimmilegar framferði Rússlands í Úkraínu annars vegar og Ísraels á Gasaströndinni fyrirferðamikið. Rauði þráðurinn var sú hætta sem hún sagði steðja að alþjóðakerfinu þegar ríki ákveði það sjálf hvenær þau eru bundin af alþjóðalögum.

Þorgerður sagði ekki ganga að ríki byggðu upp alþjóðlega dómstóla, fögnuðu störfum þeirra þegar þeir beindu sjónum að andstæðingum þeirra en græfu síðan undan sömu stofnunum þegar athygli þeirra beindist að bandamönnum.

Dómum alþjóðlegra dómstóla yrði að hlíta óháð því hvort stjórnvöldum líkaði niðurstaðan og fullveldi ríkja yrði að virða óháð því hvort landsvæði þeirra stæði í vegi fyrir landtökudraumum annarra ríkja.

„Þegar gróf brot eru látin óátalin aukast líkurnar á að þau verði endurtekin,“ sagði ráðherrann og bætti við að fyrir smáríki væri þetta ekki aðeins spurning um prinsipp heldur tilvistarspurning.

Ísland fagnar í ár áttatíu árum frá inngöngu í Sameinuðu þjóðirnar. Þorgerður sagði Ísland allan þann tíma hafa byggt afstöðu sína á þeirri hugmynd að smáríki ættu að njóta sömu verndar, réttinda og röddar og stórveldi.

Úkraína og Gasa fyrirferðamikil

Rússneska innrásin í Úkraínu var eitt þeirra dæma sem Þorgerður nefndi um brot gegn þessari grundvallarreglu.

Hún sagði Rússa hafa ráðist inn í fullvalda nágrannaríki í þeim tilgangi að breyta landamærum með valdi og svipta aðra þjóð réttinum til að ráða eigin framtíð. Afstaða Íslands væri óbreytt. Úkraína ætti rétt á að verja sig, rétt á fullveldi og friðhelgi landamæra sinna og rétt á sanngjörnum og varanlegum friði á grundvelli alþjóðalaga.

Að baki þeirri afstöðu lægi einföld regla: „Engin þjóð fær að ákveða framtíð annarrar.“

Sömuleiðis sagði Þorgerður að þjáningar Palestínumanna ekki mega verða að bakgrunnssuði.

„Við getum ekki unað því að Gasa sé sýknt og heilagt lagt í rúst og í kjölfarið endurreist á meðan ekki er tekist á við undirliggjandi ástæður átakanna,“ sagði hún.

Þorgerður gagnrýndi einnig áframhaldandi landnemabyggðir á Vesturbakkanum og ofbeldi landnema gegn Palestínumönnum. Markmið Íslands væri áfram sjálfbært palestínskt ríki við hlið Ísraels þar sem báðar þjóðir gætu lifað við öryggi, með sæmd og í friði.

Neitunarvaldið meingallað

Þorgerður var þó ekki einhlít í vörn sinni fyrir Sameinuðu þjóðunum og sagði hollustu við stofnunina ekki þýða að halda bæri því fram að hún starfaði fullkomlega.

Skriffinnska gæti verið þung í vöfum, ákvarðanataka hæg og fjármunum dreift of víða. Öryggisráðið, sem bæri meginábyrgð á alþjóðlegum friði og öryggi, væri auk þess alltof oft lamað þegar mest þyrfti á því að halda.

Neitunarvaldið hefði of oft orðið skjöldur gegn aðgerðum í stað verkfæris til að varðveita frið. Ísland styddi því umbætur á Sameinuðu þjóðunum en vandinn væri að mati Þorgerðar ekki aðeins stofnanalegur.

„Dýpri áskorunin er pólitísk,“ sagði hún. Styrkur Sameinuðu þjóðanna réðist að lokum af vilja ríkjanna sjálfra til þess að standa vörð um grundvallarreglurnar sem stofnunin hvíldi á.

Áttugasta og fyrsta allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna hófst fyrr í þessum mánuði og leiðtogaumræður hafa staðið yfir frá þriðjudegi. Öll 193 aðildarríki samtakanna eiga þar sæti.

Kynbundin aðskilnaðarstefna

Í ræðu sinni vék Þorgerður einnig að mannréttindum. Hún lýsti áhyggjum af bakslagi í jafnréttismálum og réttindum hinsegin fólks, meðal annars í Evrópu, og sagði pólitíska öfgahyggju og valdboðsstefnu sækja í sig veðrið.

„Mannréttindi eins koma ekki á kostnað annars,“ sagði Þorgerður. Jafnrétti kvenna tæki ekki réttindi frá körlum og frelsi hinsegin fólks skerti ekki frelsi annarra.

Hún sagði bakslagið hvergi jafn öfgafullt og í Afganistan, þar sem konur og stúlkur hefðu markvisst verið gerðar ósýnilegar í opinberu lífi. Stúlkum væri meinaður aðgangur að menntun og konur sviptar grundvallarfrelsi.

„Fyrir mér er þetta ekkert annað en kynbundin aðskilnaðarstefna,“ sagði Þorgerður.

Ísland situr nú í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna og sagði ráðherrann að þar yrði áfram lögð sérstök áhersla á jafnrétti kynjanna, réttindi hinsegin fólks, réttindi barna og ungmenna og tengsl mannréttinda og umhverfis.

Loftslagsbreytingar ekki hugmyndafræði

Þorgerður beindi að lokum orðum sínum að leiðtogum sem afneita eða afbaka vísindalegar niðurstöður um loftslagsbreytingar. Þeir ættu að útskýra afstöðu sína fyrir íbúum eyþjóða sem horfðu á yfirborð sjávar hækka í kringum sig og fólki sem missti land og lífsviðurværi vegna þurrka og jarðvegseyðingar.

Á norðurslóðum væru breytingarnar sýnilegar þar sem hækkandi hitastig og minnkandi ís breyttu þegar vistkerfum og lífi fólks.

„Loftslagsbreytingar eru ekki hugmyndafræði. Milljónir manna búa nú þegar við afleiðingar þeirra. Við þurfum að takast á við þær, ekki skauta framhjá þeim,“ sagði Þorgerður.

Hún lauk ræðunni á því að valið sem stæði frammi fyrir ríkjum heims væri í grunninn hvort þau væru reiðubúin að verja reglurnar líka þegar reglurnar skiluðu þeim ekki þeirri niðurstöðu sem þau sjálf vildu.

#frið #hugleysingjar #neiti #semja #siðferðislegir


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262940145d/sidferdislegir-hugleysingjar-neiti-ad-semja-um-frid

📰 Aðrar fréttir

Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var af­numin - Vísir
📅 26.09.2026 👁️ 0
Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var af­numin - Vísir
Frá því að atburðirnir voru raktir í nýlegri umfjöllun Boston Globe um barinn hefur málið farið sem eldur um sinu í netheimum. Hinn 31. ágúst birti La...
Tómas kominn aftur til starfa - Vísir
📅 26.09.2026 👁️ 0
Tómas kominn aftur til starfa - Vísir
Runólfur Pálsson forstjóri Landspítalans staðfestir þetta í samtali við fréttastofu en Ríkisútvarpið greindi fyrst frá. Greint var frá því í janúar 20...
Óvíst hver áhrif af gjaldtöku verða á ferðaþjónustu
📅 26.09.2026 👁️ 0
Óvíst hver áhrif af gjaldtöku verða á ferðaþjónustu
Erlendir ferðamenn þurfa að borga fyrir að fara Gullna hringinn frá og með næsta ári, nái frumvarp atvinnuvegaráðherra fram að ganga. Sveitarstjóra Bl...
Telur nauðsynlegt að gera breytingar á starfi Landhelgisgæslunnar
📅 26.09.2026 👁️ 0
Telur nauðsynlegt að gera breytingar á starfi Landhelgisgæslunnar
Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar segir hlutverk Landhelgisgæslunnar skýrt en hröð þróun í heimsmálum og aðsteðjandi ógnir kalli á breytin...
Hundruð þúsunda fögnuðu Leó páfa í París: „Unga fólkið er kirkja nútímans“
📅 26.09.2026 👁️ 0
Hundruð þúsunda fögnuðu Leó páfa í París: „Unga fólkið er kirkja nútímans“
Um 700 þúsund hlýddu á prédikun Leós páfa XIV í miðborg Parísar í dag. Páfi fór fögrum orðum um unga fólkið í kaþólsku kirkjunni og hafði uppi varnaða...
Orðið á götunni: Harmar hlutinn sinn ...
📅 26.09.2026 👁️ 1
Orðið á götunni: Harmar hlutinn sinn ...
Orðið á götunni er að Guðmundur Ingi Kristjánsson, fyrrverandi menntamálaráðherra, hafi engan veginn fellt margar pólitískar keilur með svekkelsiskast...
Aðgerðum þar sem lungnameinvörp eru fjarlægð fjölgað og lífslíkur betri
📅 26.09.2026 👁️ 1
Aðgerðum þar sem lungnameinvörp eru fjarlægð fjölgað og lífslíkur betri
Aðgerðum þar sem meinvörp í lungum voru fjarlægð hefur fjölgað og lífslíkur sjúklinga aukist. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn vísindamanna við Háskó...
Anna Margrét skrifar: Þegar áróðurinn verður að eigin sannfæringu
📅 26.09.2026 👁️ 1
Anna Margrét skrifar: Þegar áróðurinn verður að eigin sannfæringu
Hvernig pútínismi og trumpismi renna saman við andstöðu gegn Evrópusamstarfi í íslenskri umræðu
Óhugnanlegt myndband sýnir 17 ára stúlku ráðast á kennara sinn með hníf eftir einkunnagjöf
📅 26.09.2026 👁️ 1
Óhugnanlegt myndband sýnir 17 ára stúlku ráðast á kennara sinn með hníf eftir einkunnagjöf
Óhugnanlegt myndband náðist af því þegar nemandi réðist á kennara sinn með hníf í Brasilíu. Betur fór en á horfðist því að kennarinn slapp með lítil m...
Elva Hrönn segir Ragnar Þór hafa hrakið sig úr starfi
📅 26.09.2026 👁️ 1
Elva Hrönn segir Ragnar Þór hafa hrakið sig úr starfi
Elva Hrönn Hjartardóttir, fyrrverandi sérfræðingur á þróunarsviði VR, segir að Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra og þáverandi for...
Andy Burnham announces scheme to help first-time buyers
📅 26.09.2026 👁️ 1
Andy Burnham announces scheme to help first-time buyers
The prime minister says he wants people without support from the "bank of mum and dad" to receive help.
Þyrlan lenti við Hörpu - Vísir
📅 26.09.2026 👁️ 1
Þyrlan lenti við Hörpu - Vísir
Þyrla Gæslunnar lenti tvisvar við Hörpu í dag, klukkan eitt og klukkan fjögur síðdegis í tilefni dagsins.  Landhelgisgæslan fagnaði afmælinu í dag.Vís...
Gríðar­legur fjöldi fagnaði páfanum - Vísir
📅 26.09.2026 👁️ 1
Gríðar­legur fjöldi fagnaði páfanum - Vísir
Leó fjórtánda páfa var ekið í páfabílnum niður Champs-Élysées-breiðgötuna í Parísarborg fyrr í dag. Hann veifaði til fólksins og var ekið alla götuna ...
Tómas snúinn aftur til starfa
📅 26.09.2026 👁️ 1
Tómas snúinn aftur til starfa
Tómas Guðbjartsson hjartaskurðlæknir er snúinn til baka til starfa á Landspítalanum eftir rúmlega tveggja ára veikindaleyfi. Þetta herma heimildir fré...
Umræðan sem fékk aldrei að eiga sér stað
📅 26.09.2026 👁️ 2
Umræðan sem fékk aldrei að eiga sér stað
Umræðan sem fékk aldrei að eiga sér stað Fréttin26. september 2026InnlendarLeave a Comment Eldur Smári Kristinsson skrifar: Ég les grein Jóns Þórs Óla...
Andstaða við réttindi hinsegin fólks og kvenna útbreidd í Evrópu
📅 26.09.2026 👁️ 2
Andstaða við réttindi hinsegin fólks og kvenna útbreidd í Evrópu
Hreyfingin gegn réttindum hinsegin fólks og kvenna er ekki lengur jaðarsett eða bundin við ákveðin svæði í Evrópu. Áhrifanna gætir í öllum ríkjum Evró...
Yfirborðsleg nálgun á ljóðum Elísabetar
📅 26.09.2026 👁️ 2
Yfirborðsleg nálgun á ljóðum Elísabetar
Yfirborðsleg nálgun á ljóðum Elísabetar Þor­vald­ur S. Helga­son skrif­ar um kammeróper­una Ást­in ein tauga­hrúga: Eng­inn dans við Ufsaklett eft­ir ...
Ræktar um 50 tonn af gulrótum á Grafarbakka
📅 26.09.2026 👁️ 2
Ræktar um 50 tonn af gulrótum á Grafarbakka
Haustið hefur verið nokkuð gott fyrir þá garðyrkjubændur sem stunda útirækt þótt það hafi reyndar verið töluvert blautt og erfitt að komast um garðana...
Hópuðust að Kai Cenat í miðborginni – Smakkaði sviðasultu og slátur
📅 26.09.2026 👁️ 2
Hópuðust að Kai Cenat í miðborginni – Smakkaði sviðasultu og slátur
Bandaríski áhrifavaldurinn og samfélagsmiðlastjarnan Kai Cenat er nú staddur hér á landi. RÚV greinir frá því að hann hafi bragðað á sviðasultu og slá...
Daði spreytir sig í Gettu betur - Vísir
📅 26.09.2026 👁️ 2
Daði spreytir sig í Gettu betur - Vísir
Menntaskólinn við Hamrahlíð var stofnaður árið 1966 og verður sextíu ára afmæli skólans fagnað rækilega í allan dag. „Við verðum til dæmis með hamrask...
Deilt um færslu Snorra: „Alltaf að bjóða einhverjum sem hefur reynslu af því að tala með rassgatinu“
📅 26.09.2026 👁️ 2
Deilt um færslu Snorra: „Alltaf að bjóða einhverjum sem hefur reynslu af því að tala með rassgatinu“
„Ætli maður að greina orsakir ristilkrabbameins og ræða meðferð sjúklinga ætti maður sem sagt alltaf að bjóða einhverjum sem hefur reynslu af því að t...
Óhugnanlegt myndband sínir 17 ára stúlku ráðast á kennara sinn með hníf eftir einkunnagjöf
📅 26.09.2026 👁️ 2
Óhugnanlegt myndband sínir 17 ára stúlku ráðast á kennara sinn með hníf eftir einkunnagjöf
Óhugnanlegt myndband náðist af því þegar nemandi réðist á kennara sinn með hníf í Brasilíu. Betur fór en á horfðist því að kennarinn slapp með lítil m...
Body of missing Tenerife diver found in underwater cave
📅 26.09.2026 👁️ 2
Body of missing Tenerife diver found in underwater cave
The body of a young spearfisherman from Tenerife who disappeared while diving has been recovered off the coast of El Hierro following an extensive sea...
Hamagangur í miðborginni: Á annað hundrað ungmenna hópuðust að heimsfrægum streymara
📅 26.09.2026 👁️ 2
Hamagangur í miðborginni: Á annað hundrað ungmenna hópuðust að heimsfrægum streymara
Vel á annað hundrað ungmenna fylgdi eftir bandaríska áhrifavaldinum og samfélagsmiðlastjörnunni Kai Cenat sem staddur er hér á landi. Cenat fór í víki...
Minnir frekar á Glæstar vonir en House of Cards
📅 26.09.2026 👁️ 2
Minnir frekar á Glæstar vonir en House of Cards
Áslaugu Huldu Jónsdóttur, framkvæmdastjóra Sjúkratrygginga og fyrrverandi aðstoðarmanni Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, þykir atburðarásin í kringum ...
Ráð­herra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ - Vísir
📅 26.09.2026 👁️ 2
Ráð­herra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ - Vísir
Elva Hrönn deilir frásögninni í langri færslu á Facebook-síðunni sinni. Atburðir síðustu daga hafi vakið upp minningar af þessum tíma en töluvert hefu...
Kína og Bandaríkin koma á samskiptaleið vegna atvika tengdum gervigreind
📅 26.09.2026 👁️ 2
Kína og Bandaríkin koma á samskiptaleið vegna atvika tengdum gervigreind
Kína og Bandaríkin koma á samskiptaleið vegna atvika tengdum gervigreind Don­ald Trump og Xi Jin­ping ræddu með­al ann­ars gervi­greind, við­skipti og...
Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi - Vísir
📅 26.09.2026 👁️ 2
Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi - Vísir
Sex var saknað skömmu eftir sprenginguna og ráðist var í leitaraðgerðir í rústum byggingarinnar. Lík allra sex fundust síðdegis í dag. Fjórir bandarís...
Howie B og Hiraki Saka í Gamla bíó - Vísir
📅 26.09.2026 👁️ 3
Howie B og Hiraki Saka í Gamla bíó - Vísir
Á tónleikunum flytja þeir nýtt efni í bland við eldri verk Howie B, auk þess sem lifandi spuni verður stór hluti af kvöldinu. Raftónlistartvíeykið tec...
Um­dæmin mishrifin af fækkun em­bætta - Vísir
📅 26.09.2026 👁️ 3
Um­dæmin mishrifin af fækkun em­bætta - Vísir
Dómsmálaráðherra kynnti tillöguna fyrir helgi en í henni felst að fækka lögregluembættum landsins úr níu í þrjú. Fjölnir Sæmundsson, formaður Landssam...
Heathrow Airport's third runway may be delayed to 2039
📅 26.09.2026 👁️ 3
Heathrow Airport's third runway may be delayed to 2039
The UK's busiest airport says the original goal of 2035 will be difficult to meet without simplifying the planning process.
Heathrow Airport warns third runway could be delayed by four years
📅 26.09.2026 👁️ 2
Heathrow Airport warns third runway could be delayed by four years
The UK's busiest airport cautions it may miss the government target of 2035 as ministers say the deadline has "always been ambitious".
Sigmundur Ernir skrifar: Við leikum okkur ekki með þjóðarmorðingjum
📅 26.09.2026 👁️ 3
Sigmundur Ernir skrifar: Við leikum okkur ekki með þjóðarmorðingjum
Mynd Mikilvægustu og sterkustu ummæli vikunnar sem er að líða ko
Sænska Poppstjarnan fordæmir Hvíta húsið – Hafi notað lag hennar í annarlegum tilgangi
📅 26.09.2026 👁️ 3
Sænska Poppstjarnan fordæmir Hvíta húsið – Hafi notað lag hennar í annarlegum tilgangi
Sænska poppsöngkonan Zara Larsson hefur fordæmt Hvíta húsið fyrir að nota lag hennar í myndbandi sem sýnir brottvísanir. Hvíta húsið hefur fjarlægt la...
Stofna „samskiptarás“ til að með­höndla gervi­greind - Vísir
📅 26.09.2026 👁️ 3
Stofna „samskiptarás“ til að með­höndla gervi­greind - Vísir
Þetta kemur fram í yfirlýsingum frá ríkjunum tveimur sem sendar voru út í dag í kjölfar þess að þriggja daga heimsókn Xi Jinping, forset Kína, til Was...
Israel v Republic of Ireland: Republic of Ireland confirm Israel game will go ahead
📅 26.09.2026 👁️ 3
Israel v Republic of Ireland: Republic of Ireland confirm Israel game will go ahead
The Republic of Ireland have confirmed Sunday's Uefa Nations League B3 game against Israel in Debrecen, Hungary will go ahead.
Israel v Republic of Ireland: Republic of Ireland to wear black armbands for Israel game
📅 26.09.2026 👁️ 2
Israel v Republic of Ireland: Republic of Ireland to wear black armbands for Israel game
Republic of Ireland players intend to wear black armbands "in recognition of all lives lost in the [Gaza] conflict" for Sunday's Uefa Nations League B...
Hlaut ó­vænt heiðurs­verð­laun RIFF - Vísir
📅 26.09.2026 👁️ 3
Hlaut ó­vænt heiðurs­verð­laun RIFF - Vísir
Sigurjón var viðstaddur sýningu á upphafsþætti þáttanna frægu Twin Peaks og nýrrar 4K-endurgerðar kvikmyndarinnar Wild at Heart en verkin komu bæði út...
Tugir mættir til þess að mót­mæla ríkis­stjórninni - Vísir
📅 26.09.2026 👁️ 3
Tugir mættir til þess að mót­mæla ríkis­stjórninni - Vísir
Viðburðurinn Fellum þessa ríkisstjórn var stofnaður af Alexöndru Mist Halldórsdóttur á Facebook. Í lýsingu viðburðarins er efnt til mótmæla vegna ríki...
Manchester City charges: Could club be stripped of eight trophies?
📅 26.09.2026 👁️ 3
Manchester City charges: Could club be stripped of eight trophies?
After being found guilty of the majority of the 115 charges for breaching Premier League, could Manchester city really be stripped of eight trophies?
Vegir lokaðir vegna skriðufalla á norðanverðum Vestfjörðum og Ströndum
📅 26.09.2026 👁️ 3
Vegir lokaðir vegna skriðufalla á norðanverðum Vestfjörðum og Ströndum
Vegir hafa lokast á norðanverðum Vestfjörðum og á Ströndum vegna skriðufalla og grjóthruns síðustu daga. Spáð er áframhaldandi úrkomu fram yfir helgi....
Buxna­laus Lalli olli glund­roða - Vísir
📅 26.09.2026 👁️ 3
Buxna­laus Lalli olli glund­roða - Vísir
Lalli sló botn í þáttinn eftir yfirferð yfir helstu fréttir síðustu tveggja vikna og fréttaskýru um stöðu gervigreindarinnar. Gervigreindin hefur teki...
Foreldrar Sólons fara fram á skýrslutökur fyrir dómi – Kanna grundvöll að skaðabótamáli gegn Icelandair
📅 26.09.2026 👁️ 3
Foreldrar Sólons fara fram á skýrslutökur fyrir dómi – Kanna grundvöll að skaðabótamáli gegn Icelandair
Foreldrar Sólons heitins Guðmundssonar, flugmanns hjá Icelandair, sem féll fyrir eigin hendi 25. ágúst 2024, hafa lagt fram beiðni fyrir Héraðsdóm Rey...
Þyrlan sótti slasaðan knapa - Vísir
📅 26.09.2026 👁️ 3
Þyrlan sótti slasaðan knapa - Vísir
Þetta staðfestir Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, í samtali við fréttastofu. Rúv greindi fyrst frá. Knapinn féll af baki í Þ...
Bjartsýnn á að kjarasamningar haldi ef stjórnvöld taka þátt
📅 26.09.2026 👁️ 3
Bjartsýnn á að kjarasamningar haldi ef stjórnvöld taka þátt
Formaður Starfsgreinasambandsins segist bjartsýnn á að kjarasamningar haldi eftir að samþykkt var á Landsþingi Sambands íslenskra sveitarfélaga í gær ...
Huge crowds greet Pope in Paris ahead of open-air Mass
📅 26.09.2026 👁️ 3
Huge crowds greet Pope in Paris ahead of open-air Mass
More than half a million people are expected to attend the event in the heart of the French capital.
Prince Harry says it is 'great' to be back in UK after six years in US
📅 26.09.2026 👁️ 3
Prince Harry says it is 'great' to be back in UK after six years in US
The Duke of Sussex also added that Prince Archie and Princess Lilibet are “happy in school” after returning to the UK a month ago.
Heims­fræg Twitch-stjarna olli ör­tröð í mið­bænum - Vísir
📅 26.09.2026 👁️ 3
Heims­fræg Twitch-stjarna olli ör­tröð í mið­bænum - Vísir
Cenat er í beinni útsendingu hér á Íslandi og sýnir áhorfendum sínum frá því hvað hann er að gera. Fyrr í morgun fékk hann leikara klæddan í víkingabú...
Þarf að bera vitni vegna andláts manns – Áverkar á líkinu
📅 26.09.2026 👁️ 3
Þarf að bera vitni vegna andláts manns – Áverkar á líkinu
Héraðsdómi Reykjaness hefur borist réttarbeiðni frá héraðsdómnum í Rudzie Slaskiej í Póllandi. Fyrir dómi þar er nú háð einkamál vegna andláts manns s...
Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um mál­verk af Dana­konungi - Vísir
📅 26.09.2026 👁️ 3
Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um mál­verk af Dana­konungi - Vísir
Bandaríkjaforseti er sagður hafa hafnað samkomulagi sem myndi gera hlé á átökum við Íran. Íranski herinn er sagður hafa hótað því að ráðast á allar he...