Aðgerðum þar sem meinvörp í lungum voru fjarlægð hefur fjölgað og lífslíkur sjúklinga aukist. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn vísindamanna við Háskóla Íslands og Landspítala. Læknanemi sem tók þátt í rannsókninni segir niðurstöður hennar mjög jákvæðar, ekki bara fyrir sjúklinga heldur einnig aðstandendur og þá sem koma að meðferð þeirra.
Ástæðan eflaust fjölþætt
Vísindamenn við Háskóla Íslands og Landspítala gerðu rannsóknina. Grein um hana birtist á dögunum í vísindatímaritinu Scandinavian Journal of Surgery.
Rannsóknin ber heitið „Pulmonary metastasectomy in Iceland: Long-term nationwide trends and outcomes“. Hún náði til 179 sjúklinga sem gengust undir aðgerð þar sem meinvörp í lungum voru fjarlægð á Landspítalanum 2001 til 2021. Til að meta breytingar og þróun var rannsóknartímabilinu skipt í þrjú tímabil sem voru hvert sjö ár.
Carlos Magnús Rabelo er læknanemi á 5. ári við Háskóla Íslands. Hann tók þátt í rannsókninni og er fyrsti höfundur greinarinnar.
„Við sáum að aðgerðum fjölgaði marktækt og fjöldi sjúklinga sem gekkst undir þær var um helmingi fleiri á síðasta tímabilinu.“
Þessum aðgerðum hefur fjölgað en niðurstöður rannsóknarinnar sýndu líka að lífslíkur sjúklinga eru betri.
„Ástæðan fyrir þessu er eflaust mjög fjölþætt og það er ekki hægt að staðfesta neitt. En við erum með nokkrar mögulegar skýringar á þessum bætta árangri. Í fyrsta lagi voru framfarir í myndgreiningu á tímabilinu, þar má nefna að það var ein stór viðbót, sem var tilkoma jáeindaskanna. Einnig var tekin upp ný lungnaaðgerðartækni hérlendis 2018. Þær fela í sér minna inngrip og sjúklingar voru oft fljótari að jafna sig eftir aðgerðirnar.“
Þá segir Carlos að miklar framfarir hafi orðið í lyfjameðferðum við krabbameini. „Einkum tilkoma nýrra líftæknilyfja og ónæmismeðferða. Það er svona þetta þrennt sem er stærst.“
Mjög jákvæðar niðurstöður
Carlos segir miklar framfarir hafa orðið í læknisfræði á rannsóknartímabilinu, þá sérstaklega á þessu sviði.
„Þetta eru náttúrulega mjög jákvæðar niðurstöður og ekki bara fyrir sjúklingana sem gangast undir þessa aðgerð heldur einnig aðstandendur og þá sem koma að meðferðinni. Eins og ég nefndi þá hefur náttúrulega verið mikil þróun í læknisfræðinni og mikil þróun í meðferð og greiningu á þessu sviði. Það er náttúrulega bara mjög ánægjulegt að sjá bættan árangur og auðvitað vonar maður að þetta muni bara halda áfram í þessa stefnu.“
Carlos segir rannsóknir mjög spennandi og heilla hann.
„Ég hef mikinn áhuga á skurðlækningum og líka rannsóknum tengdum því. Þannig að það er aldrei að vita nema maður gerir eitthvað í svipuðum fræðum.“