Tómas Guðbjartsson hjartaskurðlæknir er snúinn til baka til starfa á Landspítalanum eftir rúmlega tveggja ára veikindaleyfi. Þetta herma heimildir fréttastofu.
Greint var frá því í janúar 2024 að Tómas væri farinn í leyfi frá Landspítalanum. Hann kom aftur til starfa fyrr í þessum mánuði.
Íslenska ríkið var dæmt bótaskylt í maí vegna þess sem héraðsdómur mat sem saknæma háttsemi Tómasar í tengslum við ígræðslu plastbarka í Erítreumanninn Andemariam Bayene. Ríkið hefur áfrýjað dómnum.
Eftir að dómurinn féll sagði Runólfur Pálsson, forstjóri Landspítalans, að það yrði að koma í ljós hvort Tómas sneri aftur til starfa. Hann sagði þá að það væri ótímabært að svara því hvort spítalinn bæri traust til hans.