Erlendir ferðamenn þurfa að borga fyrir að fara Gullna hringinn frá og með næsta ári, nái frumvarp atvinnuvegaráðherra fram að ganga. Sveitarstjóra Bláskógabyggðar líst illa á áformin og þjóðgarðsvörður segir brýnt að náttúru- og innviðagjald skili sér í rekstur Þingvalla.
Vetrarpassi fyrir Gullna hringinn á að kosta 3.000 krónur á mann en annars er gjaldið 4.500 krónur. Gjaldið leggst aðeins á þá sem ekki eru með skattalega heimilisfesti hér á landi og eru 18 ára eða eldri. Áfram verður heimilt að innheimta bílastæðagjald við Gullfoss og Geysi en ekki á Þingvöllum.
Þjóðgarðsvörður segir mikilvægt að tekjur skili sér til þjóðgarðsins
Einar Á. E. Sæmundsen, þjóðgarðsvörður á Þingvöllum, segir að þjónustugjöld á bílastæðunum hafi runnið í rekstur þjóðgarðsins. „Þar með talin eru laun, landvarsla, snjómokstur, það er hreinsun á salernum.“
Því sé mikilvægt að tekjurnar skili sér til þjóðgarðsins í samræmi við fjölda ferðamanna.
„Við vitum hvað við höfum í dag og það eru tekjur sem stíga í takt við fjölda ferðamanna og vegna þess að við erum þá að auka þjónustuna [og það er aukinn kostnaður] þannig að ég vil trúa því að þeir sem, ef þetta frumvarp fer áfram, að þeir muni þá þá taka taka tillit til þessa.“
Ferðaþjónustuaðilar hafa margir hverjir áhyggjur af að gjaldið fæli ferðamenn frá.
„Við sjáum stundum fólk snúa við hérna bara út af þessu litla gjaldi sem við erum að innheimta, 1.000 krónur á bíl, og fólk er að leggja hérna fyrir utan og ganga inn.“
Sveitarstjóri gagnrýnir samráðsleysi
Gullni hringurinn er í Bláskógabyggð. Ásta Stefánsdóttir sveitarstjóri þar hefur áhyggjur af því að áformuð gjaldtaka við Gullna hringinn fækki ferðamönnum og íbúum í sveitarfélaginu.
„Ef við tökum stóru myndina þá virðist manni það að ríkisstjórnin sé að segja við ferðamenn – sem hefðu mögulega haft áhuga á að koma til Íslands – að þeir gætu allt eins farið til Noregs eða Finnlands, sem eru samkeppnissvæði okkar í ferðamennskunni,“ segir hún.
Henni þykir hugmyndinni beint að því svæði á landsbyggðinni þar sem mest hefur verið fjárfest í uppbyggingu þjónustu við ferðamenn. Það telur hún að geti leitt til þess að fjárfestingin nýtist ekki eins og til stóð og dragi úr frekari uppbyggingu.
Ásta gagnrýnir jafnframt samráðsleysi við bæði ferðaþjónustuna og sveitarfélagið.
„Við undrumst það mjög að það hafi ekkert verið haft samráð við sveitarfélagið eða sveitarfélögin í landinu yfirhöfuð varðandi þetta mál. Það er afskaplega sérstakt.“
Sjálf veit hún ekki til þess að rætt hafi verið við einkafyrirtæki sem hafa byggt upp þjónustu við Gullfoss og Geysi. „Þar hefur öll þjónusta – bílastæði, salerni, veitingasala, byggst upp af einkaaðilum,“ segir hún.