Yfir hundrað ungmenni fylgdu bandarísku samfélagsmiðlastjörnunni Kai Cenat um miðborg Reykjavíkur í dag en hann er meðal vinsælustu streymara heims með tugi milljóna fylgjenda. Matarleiðsögumaður segist aldrei hafa séð jafn mikinn hamagang.
„Ég átti bara að taka á móti stjörnunni en í staðinn voru þarna yfir hundrað manns sem eltu Kai og hann þurfti að hoppa upp í bílinn og við þurftum að bruna í burtu,“ segir Stefán Kári Ottósson, matarleiðsögumaður og leikari.
„Hvert sem við fórum held ég að hafi verið svona 18 hjól og kannski 14 vespur í viðbót sem eltu okkur út um alla króka og kima hérna í miðbænum.“
Klukkutíma matartúr varð að fimm til tíu mínútum
Stefán Kári ætlaði að fara með Cenat í um klukkutíma matartúr í beinu streymi á YouTube. Hann segir að planið hafi verið að ganga niður Skólavörðustíg og enda á Hjartatorgi, milli Laugavegar og Hverfisgötu, þar sem hlaðborð íslenskra þjóðrétta biði þeirra.
Sú áætlun hafi hins vegar farið örlítið út um þúfur.
„Við ætluðum að hittast og taka um klukkutíma í að fara yfir íslenska matarmenningu. Ég ætlaði að segja honum frá lundabagga og hákarlinum, og við ætluðum að ræða sviðasultuna og allt þetta góða,“ segir Stefán Kári.
„En þetta endaði í fimm til tíu mínútum, held ég, þar sem það var svolítið mikið kraðak og manía niðri í bæ. Þannig við keyrðum bara niður að Hjartatorgi og fórum þar í hákarl og hrútspunga og sviðkjamma og fleira gott. Þetta var mjög gaman.“
Stefán Kári segir að réttirnir hafi þó runnið misljúflega niður.
„Cenat elskaði sviðakjammann, honum fannst hann alveg frábær. Hann borðaði augað og fannst það gott. Hrútspungarnir, í fyrstu kunni hann að meta þá en síðan fór hann aðeins að kúgast. Og þegar kom að hákarlinum þá gat hann ekki haldið honum niðri. Hann kom aftur upp,“ segir Stefán Kári.
Klifruðu upp á bílinn og börðu í rúður
Stefan Kári segir athyglina og áganginn hafa komið flatt upp á Cenat, sem hafi þó sýnt því skilning.
„Hann var með einn öryggisvörð með sér, ég held að hann hefði kannski þurft sex eða sjö. En ég held að hann hafi ekkert hatað athyglina en þetta var kannski fullmikið þarna á köflum. Þeir voru að klifra upp á bílinn og berja í rúður og svona. Það hefði alveg mátt sleppa því. En ég held að honum hafi þótt gaman að sjá hversu mikils Íslendingar kunna að meta hann.“
Hugðist borða hálfétinn hákarl
Fjöldi ungmenna stöldruðu við á Hjartatorgi eftir að Cenat fór. Stefán segir að mörg þeirra hafi verið áfjáð í að snerta allt það sem Cenat hafi komið við.
„Sum kysstu borðið og bekkinn sem hann sat á og önnur reyndu að borða allt það sem hann hafði snert, hálfétinn sviðakjamma og lundabagga. Einn ætlaði meira að segja að reyna að borða hákarl sem Cenat hafði tuggið og ælt upp úr sér,“ segir Stefán Kári og hlær.
„Ég benti honum á að það væri ekki sniðugt að gera það. Hann potaði þá í hákarlabitann og lét sér það duga. Þannig að það er alveg ljóst að þetta eru miklir aðdáendur.“
Stefán hefur unnið sem matarleiðsögumaður í nokkur ár og segist aldrei hafa upplifað annað eins.
„Ég vinn hjá Wake Up Reykjavík og maður hefur fengið alls konar fólk í matartúrinn. Og þangað hafa komið prinsessur og prinsar og háttsettir pólitíkusar frá öllum heimi. En ég hef aldrei séð svona.“