Sleppti því að þrífa símann í viku og niður­staðan kom á ó­vart - Vísir

Sleppti því að þrífa símann í viku og niður­staðan kom á ó­vart - Vísir

Sleppti því að þrífa símann í viku og niður­staðan kom á ó­vart - Vísir

Radek starfar hjá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra og hefur undanfarna mánuði fært fræðsluna út fyrir atvinnueldhúsin með Facebook-síðunni Matvælaöryggi á mannamáli. Þar deilir hann alls kyns fróðleik um matvælaöryggi, örverufræði og vísindin þar í kring. Markmiðið er ekki að hræða fólk heldur gera vísindin og reglurnar skiljanlegri í hversdagslífinu.

Í kringum aldamótin kom hann frá Póllandi til Íslands í heimsókn til bróður síns sem átti aðeins að vara í einn mánuð. Óhætt er að segja að sú heimsókn hafi dregist nokkuð á langinn. Radek er hér enn í dag, 26 árum síðar, búinn að ljúka háskólanámi og orðinn tveggja barna faðir.

„Ég segi oft að að vissu leyti hafi Ísland bjargað lífi mínu. Ég var það þunglyndur og óhamingjusamur þegar ég kom hingað. Svo kom ég á Hvolsvöll til bróður míns og mér fannst eins og ég gæti byrjað að anda. Ég varð strax ástfanginn af Íslandi.“

Frá SS yfir í háskóla og rannsóknir

Á Hvolsvelli kynntist Radek konunni sem síðar varð eiginkona hans. Þau eiga saman tvö börn. Síðar flutti fjölskyldan norður og Akureyri varð heimabærinn.

Fyrstu árin hér á landi voru nokkuð ólík því lífi sem Radek lifir í dag. Hann vann meðal annars hjá SS og hefur rifjað upp að þegar IKEA opnaði á Íslandi hafi hann verið sá fyrsti hér á landi til að búa til og steikja sænsku IKEA-kjötbollurnar. Síðar fór hann að horfa í aðra átt. Draumurinn var að komast í háskóla en áður þurfti hann að ljúka háskólabrú frá Keili.

Fyrir rúmum áratug fór Radek einnig í einkaþjálfaranám hjá Keili. Þar rakst hann á fag sem kveikti strax áhuga hans: næringarfræði.

„Ég kláraði einkaþjálfaranámið en hef ekki verið mikið að starfa við það. Í náminu var næringarfræði og ég bara elskaði næringarfræði. Síðan fór ég í háskóla og þar var áfangi í matvælafræði. Þá byrjaði ég að tengja næringarfræðina og matvælafræðina saman. En það var eiginlega ekki fyrr en ég byrjaði að vinna hjá Heilbrigðiseftirlitinu og var settur beint í matvælaeftirlit sem þetta small alveg hjá mér. Þá hugsaði ég bara: „Vá, þetta er svo skemmtilegt.“

Radek fór meðal annars í einkaþjálfaranám, þar sem áhugi á næringarfræði kviknaði, og lauk síðar námi í heilbrigðislíftækni og auðlindafræði. Hann hefur einnig starfað við rannsóknir og greiningar á matvælasýnum og er nú jafnframt í meistaranámi í stjórnun við Háskólann á Akureyri.Aðsend

Radek lauk B.S.-námi í heilbrigðislíftækni og síðar meistaranámi í auðlindafræði með áherslu á líftækni. Hann hefur einnig tekið áfanga í faraldsfræði við Wageningen-háskólann í Hollandi. Að námi loknu starfaði hann í um sex ár við rannsóknir á rannsóknarstofu, meðal annars við DNA- og próteingreiningar á matvælasýnum fyrir matvælafyrirtæki. Leiðin lá síðan yfir í heilbrigðiseftirlit og matvælaöryggi, sem er nú stór hluti starfs hans. 

Samhliða starfinu stundar hann nú meistaranám í stjórnun við Háskólann á Akureyri. 

„Þegar ég byrjaði að vinna við þetta sá ég líka hvað það er mikið um misskilning hjá fólki. Það vantar stundum þjálfun og upplýsingar sem fólk skilur raunverulega. Ég varð eiginlega strax „húkt“ á matvælaöryggi. Áhuginn hefur svo bara þróast í gegnum námið og reynsluna í vinnunni. Ég hef rosalega gaman af þessu sviði. Það hljómar kannski svolítið skrýtið að verða svona spenntur fyrir matvælaöryggi, en þannig er það bara.“

Þrír hópar áberandi

Í byrjun júní á þessu ári ákvað Radek að færa fræðsluna út fyrir atvinnueldhúsin og yfir á Facebook. Þannig varð síðan Matvælaöryggi á mannamáli til.

Kveikjan var meðal annars reynslan úr eftirlitinu.

„Tungumálið í reglugerðum og lögum er oft frekar tæknilegt og þurrt. Mig langaði að taka það sem ég er að gera í eftirlitinu og útskýra það á einfaldara máli og gera þetta efni aðgengilegra,“ segir Radek en viðbrögðin við síðunni hafa farið langt fram úr væntingum.

Markmiðið frá upphafi var fræðsla og vitundarvakning. Hvorki fyrirtæki né einstaklingar eru nafngreind og Radek tekur sérstaklega fram að hann birti ekki upplýsingar sem hægt er að rekja til ákveðinna aðila. Eftir nokkra mánuði fór hann að sjá ákveðið mynstur meðal þeirra sem fylgdust með efninu.

„Þetta eru eiginlega þrír hópar. Í fyrsta hópnum er fólk sem er ekkert sérstaklega að kippa sér upp við bakteríur og er frekar afslappað. Í öðrum hópnum er fólk sem er frekar paranojað og sýklahrætt. Þriðji hópurinn er þarna mitt á milli; fólk sem er forvitið, nálgast hlutina af opnum hug og spyr mikið af spurningum. Sá hópur er langstærstur. Og ég læri líka sjálfur mikið af spurningunum sem ég fæ.“

Síminn fékk ekki að fara í bað í heila viku

Radek notar sjálfan sig stundum sem tilraunadýr í fræðslunni. Fyrir nokkrum vikum ákvað hann til dæmis að prófa að þrífa ekki farsímann sinn í heila viku.

„Venjulega þríf ég hann reglulega, en í þetta skiptið fékk hann að vera óhreinsaður í sjö daga. Síminn var með mér alls staðar þessa viku. Ég borðaði með honum, fór með hann á klósettið, í vinnuna, í ræktina og fleira. Eftir vikuna tók ég sýni af símanum eins og ég hef gert áður og ræktaði sýnin til að sjá hvað myndi vaxa,“ skrifaði Radek í færslu um tilraunina.

Á báðum ræktunarskálunum kom fram fjölbreyttur örveruvöxtur. Það þýddi þó ekki að allar örverurnar væru slæmar eða hættulegar. Tilgangurinn var fremur að sýna hversu auðveldlega síminn ferðast milli ólíkra umhverfa og getur borið örverur með sér.

„Ég vil ekki að fólk verði hrætt við bakteríur. Það eru alls konar örverur í kringum okkur og margar þeirra eru ekkert hættulegar. En þetta er ágæt áminning um hvað við getum verið að bera með okkur á hlutum sem við snertum allan daginn. Við viljum helst ekki flytja óþarfa örverur úr símanum yfir í matinn okkar.“

Barn í Krónunni spurði réttu spurningarinnar

Margar hugmyndirnar verða til utan rannsóknarstofunnar. Hugmynd að einni færslu kviknaði þegar Radek var staddur í búð og heyrði unga stúlku spyrja móður sína hvers vegna fjölskyldan þyrfti að henda brauði með myglu þegar mamma hennar keypti ost sem væri sjálfur með myglu.

Í færslunni útskýrði Radek að munurinn lægi meðal annars í því að mygla í ákveðnum ostum væri viljandi hluti af framleiðslunni.

„Í sumum ostum er myglan hluti af framleiðslunni. Til dæmis í gráðosti, Brie og Camembert er ákveðinn myglusveppur notaður viljandi við stýrðar aðstæður. Framleiðandinn veit hvaða mygla er notuð og hvaða hlutverki hún gegnir í þroskun, bragði, lykt og áferð ostsins. Á brauði er sagan allt önnur. Þar kemur myglan óvænt. Við vitum ekki endilega hvaða mygla er komin þarna eða hvaða eiginleika hún hefur,“ skrifaði hann.

Þegar mygla birtist á einni brauðsneið er því ekki nóg að henda henni og treysta því að sneiðarnar í miðjum pokanum séu hreinar. Brauð er gljúpt og mygla getur vaxið inn í það án þess að hún sjáist endilega á yfirborðinu. Sumar myglutegundir geta einnig myndað sveppaeiturefni, þó að sýnileg mygla þýði alls ekki sjálfkrafa að neytandinn veikist.

„Margir sjá eina myglaða sneið og hugsa að þeir geti bara hent henni og tekið hreina sneið úr miðjunni. En brauð er fullt af litlum loftrýmum og myglan getur vaxið inn í brauðið, ekki bara á yfirborðinu. Það sem þú sérð er því ekki endilega allt sem er til staðar. Sérðu myglu á brauði myndi ég henda brauðinu. Þú veist ekki hvað þú sérð ekki.“

Ein spurning áður en farið er á deit

Ein af skemmtilegri sögunum sem ratað hafa inn á síðuna hófst þegar maður sem var að koma aftur inn á stefnumótamarkaðinn eftir langt hlé hafði samband og spurði hvaða veitingastað á Akureyri Radek myndi mæla með. Óskin var frekar hófstillt: Maðurinn vildi helst að deitið endaði ekki með uppköstum eða niðurgangi.

Radek gat ekki mælt með einstökum stað út frá því sem fram kemur í eftirliti en gaf honum þess í stað eina spurningu sem hann gæti lagt fyrir starfsfólkið sjálfur.

„Ég sagði við hann: Ég skal segja þér eitt sem þú getur gert. Þú getur spurt starfsfólkið einnar einfaldrar spurningar: Hvernig tryggið þið að matur fyrir fólk með ofnæmi mengist ekki af öðrum mat? Svarið getur gefið þér mjög góða innsýn í hvernig hugsað er um matvælaöryggi á vinnustaðnum. Það getur sagt eitthvað um þekkingu starfsfólksins, verklagið og jafnvel matvælaöryggismenninguna á staðnum.“ 

Þegar Radek hóf störf hjá Heilbrigðiseftirlitinu fann hann fljótt að matvælaöryggi höfðaði sterkt til hans. Þar varð honum jafnframt ljóst hversu mikil þörf er á skýrari fræðslu.Aðsend

Matvælaöryggiskeðjan endar nefnilega ekki þegar kokkurinn leggur frá sér diskinn. Þegar einstaklingur er með alvarlegt fæðuofnæmi getur örlítið magn ofnæmisvalds skipt máli og krossmengun getur átt sér stað eftir að maturinn yfirgefur eldhúsið. Þjónustufólkið getur því einnig orðið hluti af keðjunni.

„Ein spurning segir auðvitað ekki allt. En stundum getur einföld spurning opnað dyr að mjög mikilli þekkingu á því hvernig vinnustaðurinn hugsar. Veit starfsfólkið hvað það á að gera? Veit það hvernig á að koma í veg fyrir krossmengun? Getur það útskýrt verklagið? Þá fær maður mjög fljótt ákveðna vísbendingu.“

„Við höfum alltaf gert þetta svona“

Þegar Radek fer úr heimiliseldhúsinu og yfir í atvinnueldhúsið þá breytast forsendurnar. Þar fær hann að eigin sögn margoft að heyra sömu setninguna: „Við höfum alltaf gert þetta svona.“

„Ég skil þetta samt mjög vel. Ef þú ert með matvælafyrirtæki og hefur gert eitthvað alveg eins í fimmtán ár og það hefur aldrei komið neitt upp, þá er auðvelt að hugsa: Ókei, þetta hlýtur að vera í lagi. En þegar ég heyri: Við höfum alltaf gert þetta svona, þá sé ég ákveðið hugarfar. Vísindin rata kannski ekki alveg þarna inn. Þetta er svolítið eins og að segja: Þetta reddast. En þetta reddast á ekki heima í matvælaöryggi.“

Þegar rætt er um mat sem getur valdið veikindum beinist grunurinn gjarnan að hráu kjöti eða fiski. Soðin hrísgrjón eru líklega neðar á lista flestra.

Þar telur Radek að leynist algengur misskilningur.

„Hrísgrjón eru mjög viðkvæm vara. Fólk lætur þau stundum standa á bekknum í marga klukkutíma eftir að allir eru búnir að borða. Í hrísgrjónum getur verið baktería sem heitir Bacillus cereus og hún getur lifað af suðu. Hún er ekki alltaf til staðar en ef hún er þarna getur hún farið að vaxa mjög hratt við herbergishita og valdið miklum veikindum.“

Radek nefnir um fjórar klukkustundir sem viðmið þegar kemur að því hversu lengi soðin hrísgrjón eigi að standa við stofuhita og leggur áherslu á að kæla þau tiltölulega hratt. Ef hann kæmi í eftirlit og sæi hrísgrjón sem hefðu staðið í átta eða níu klukkustundir væri niðurstaðan einföld.

„Þá segi ég bara: Henda. Þú verður að henda þessu. Fólk hugsar oft um kjöt og fisk þegar það hugsar um hættulegan mat en hrísgrjón geta líka verið mjög viðkvæm. Það er eitt af því sem ég held að margir geri sér ekki grein fyrir.“

Gamla mjólkin fær stundum að vera

Dagsetningar á umbúðum eru annað sem getur vafist fyrir fólki. Þar skiptir að mati Radeks höfuðmáli að rugla ekki saman „best fyrir“ og „síðasta notkunardegi“.

Síðasti notkunardagur er meðal annars notaður á viðkvæmar vörur á borð við kjöt og fisk og þar ráðleggur hann fólki ekki að taka sénsa. Best fyrir er annað mál.

„Þetta eru tveir ólíkir hlutir. Síðasti notkunardagur á kjöti, fiski og svona vörum byggir á geymsluþolsrannsóknum. Það eru bakteríur og vísindi á bak við þetta. Ég myndi þess vegna ekki mæla með því að fólk færi fram yfir þá dagsetningu. Best fyrir er hins vegar öðruvísi. Ég er sjálfur með mjólk í ísskápnum sem getur verið komin fjóra daga fram yfir og hún getur enn verið í lagi.“

Það sem Radek leyfir sér heima myndi Radek heilbrigðisfulltrúi þó ekki endilega samþykkja í atvinnueldhúsi.

„Ef ég kæmi til dæmis á veitingastað og mjólk eða rjómi væri farið fram yfir dagsetningu þá væri það frávik, jafnvel þótt ég vissi að það gæti enn verið í lagi heima hjá mér.“

Hvað með sígarettureykinn sem er löngu horfinn?

Forvitnin nær einnig út fyrir það sem flestir tengja strax við matvælaöryggi. Í einni færslu kafaði Radek ofan í svokallaðan thirdhand smoke; efni úr tóbaksreyk sem geta sest á veggi, húsgögn og annað yfirborð og verið þar áfram löngu eftir að reykurinn sjálfur er horfinn.

„Rannsóknir hafa sýnt að nikótín og önnur efni úr tóbaksreyk geta sest á yfirborð á heimilum, bílum, hótelum, húsgögnum, textíl og víðar. Ég man þetta sjálfur mjög vel frá æsku minni þegar foreldrar mínir reyktu mikið. En svo fór ég að velta fyrir mér: Hvað með matinn? Þar þarf maður að vera nákvæmur. Það eru ekki nægilega góðar rannsóknir til að fullyrða að matur verði mengaður. Við vitum hins vegar að efnin geta sest á yfirborð,“ skrifaði hann í færslunni.

Radek vill ekki láta fólk lifa eftir endalausum reglum heldur fylgja einfaldri hugsun þegar vafi kemur upp. Ef fólk er ekki öruggt með mat, hreinlæti eða yfirborð er skynsamlegra að henda, þvo eða skola aftur en að treysta á heppninaAðsend

Hann hefur einnig skoðað rannsóknir á nikótínleifum frá rafsígarettum. Þar gildir sama regla og víðar í fræðslunni: aðgreina það sem vitað er frá því sem enn hefur ekki verið sýnt fram á með nægilegri vissu.

Radek vill síst af öllu prédika yfir fólki, ala á óþarfa hræðslu eða gera allar bakteríur tortryggilegar.

„Ég er oft spurður hvaða ráð ég myndi gefa almenningi og ég vil ekki koma með endalausan lista af einhverjum reglum og segja fólki að það megi gera þetta en ekki hitt. Þess vegna bjó ég til mjög einfalda reglu: Ef þú ert í vafa, hentu matnum eða þvoðu eða skolaðu aftur. Ef þú ert ekki viss hvort myglan sé bara á einni brauðsneið, hentu þá brauðinu. Ef þú ert ekki viss hvort skurðarbrettið sé hreint, þvoðu það þá aftur. Sem sagt: Ekki taka óþarfa sénsa. Ef þú ert ekki viss þá gerirðu bara aftur það sem þarf að gera. Það þarf ekkert að vera flóknara en það.“

#sleppti #símann #viku #þrífa #því


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262940148d/sleppti-thvi-ad-thrifa-simann-i-viku-og-nidur-stadan-kom-a-o-vart

📰 Aðrar fréttir

Nýr sendi­herra er Búi og kannast ekki við „þjóðar­morð á hvítum“ - Vísir
📅 26.09.2026 👁️ 0
Nýr sendi­herra er Búi og kannast ekki við „þjóðar­morð á hvítum“ - Vísir
Meyer segir í viðtali við breska ríkisútvarpið að hugmyndin um umfangsmiklar árásir á hvíta afríkönskumælandi minnihlutann standist ekki skoðun. Kanna...
Ungur drengur þjáist af taugahörnunarsjúkdómi: „Þegar barn veikist breytist lífið hjá heilli fjölskyldu“
📅 26.09.2026 👁️ 2
Ungur drengur þjáist af taugahörnunarsjúkdómi: „Þegar barn veikist breytist lífið hjá heilli fjölskyldu“
Eydís Ásbjörnsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, hefur undanfarin tvö ár fylgst með baráttu ungs drengs og fjölskyldu hans á Eskifirði við taugahörn...
Aldrei séð aðra eins ágengni: „Þeir voru að klifra upp á bílinn og berja í rúðuna“
📅 26.09.2026 👁️ 2
Aldrei séð aðra eins ágengni: „Þeir voru að klifra upp á bílinn og berja í rúðuna“
Yfir hundrað ungmenni fylgdu bandarísku samfélagsmiðlastjörnunni Kai Cenat um miðborg Reykjavíkur í dag en hann er meðal vinsælustu streymara heims me...
Firefighters face four fire outbreaks in Tenerife in just 48 hours
📅 26.09.2026 👁️ 2
Firefighters face four fire outbreaks in Tenerife in just 48 hours
Tenerife has recorded at least four separate fire outbreaks in the last 48 hours, with emergency teams preventing each of them from developing into a ...
Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var af­numin - Vísir
📅 26.09.2026 👁️ 3
Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var af­numin - Vísir
Frá því að atburðirnir voru raktir í nýlegri umfjöllun Boston Globe um barinn hefur málið farið sem eldur um sinu í netheimum. Hinn 31. ágúst birti La...
Tómas kominn aftur til starfa - Vísir
📅 26.09.2026 👁️ 2
Tómas kominn aftur til starfa - Vísir
Runólfur Pálsson forstjóri Landspítalans staðfestir þetta í samtali við fréttastofu en Ríkisútvarpið greindi fyrst frá. Greint var frá því í janúar 20...
Óvíst hver áhrif af gjaldtöku verða á ferðaþjónustu
📅 26.09.2026 👁️ 2
Óvíst hver áhrif af gjaldtöku verða á ferðaþjónustu
Erlendir ferðamenn þurfa að borga fyrir að fara Gullna hringinn frá og með næsta ári, nái frumvarp atvinnuvegaráðherra fram að ganga. Sveitarstjóra Bl...
Telur nauðsynlegt að gera breytingar á starfi Landhelgisgæslunnar
📅 26.09.2026 👁️ 2
Telur nauðsynlegt að gera breytingar á starfi Landhelgisgæslunnar
Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar segir hlutverk Landhelgisgæslunnar skýrt en hröð þróun í heimsmálum og aðsteðjandi ógnir kalli á breytin...
Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið - Vísir
📅 26.09.2026 👁️ 2
Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið - Vísir
Netanjahú forsætisráðherra Ísraels hafði tveimur dögum áður kallað þá fulltrúa „siðferðislega hugleysingja“ sem gengu úr sal þegar hann steig í ræðust...
Hundruð þúsunda fögnuðu Leó páfa í París: „Unga fólkið er kirkja nútímans“
📅 26.09.2026 👁️ 2
Hundruð þúsunda fögnuðu Leó páfa í París: „Unga fólkið er kirkja nútímans“
Um 700 þúsund hlýddu á prédikun Leós páfa XIV í miðborg Parísar í dag. Páfi fór fögrum orðum um unga fólkið í kaþólsku kirkjunni og hafði uppi varnaða...
Orðið á götunni: Harmar hlutinn sinn ...
📅 26.09.2026 👁️ 2
Orðið á götunni: Harmar hlutinn sinn ...
Orðið á götunni er að Guðmundur Ingi Kristjánsson, fyrrverandi menntamálaráðherra, hafi engan veginn fellt margar pólitískar keilur með svekkelsiskast...
Aðgerðum þar sem lungnameinvörp eru fjarlægð fjölgað og lífslíkur betri
📅 26.09.2026 👁️ 2
Aðgerðum þar sem lungnameinvörp eru fjarlægð fjölgað og lífslíkur betri
Aðgerðum þar sem meinvörp í lungum voru fjarlægð hefur fjölgað og lífslíkur sjúklinga aukist. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn vísindamanna við Háskó...
Anna Margrét skrifar: Þegar áróðurinn verður að eigin sannfæringu
📅 26.09.2026 👁️ 3
Anna Margrét skrifar: Þegar áróðurinn verður að eigin sannfæringu
Hvernig pútínismi og trumpismi renna saman við andstöðu gegn Evrópusamstarfi í íslenskri umræðu
Óhugnanlegt myndband sýnir 17 ára stúlku ráðast á kennara sinn með hníf eftir einkunnagjöf
📅 26.09.2026 👁️ 3
Óhugnanlegt myndband sýnir 17 ára stúlku ráðast á kennara sinn með hníf eftir einkunnagjöf
Óhugnanlegt myndband náðist af því þegar nemandi réðist á kennara sinn með hníf í Brasilíu. Betur fór en á horfðist því að kennarinn slapp með lítil m...
Elva Hrönn segir Ragnar Þór hafa hrakið sig úr starfi
📅 26.09.2026 👁️ 3
Elva Hrönn segir Ragnar Þór hafa hrakið sig úr starfi
Elva Hrönn Hjartardóttir, fyrrverandi sérfræðingur á þróunarsviði VR, segir að Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra og þáverandi for...
Andy Burnham announces scheme to help first-time buyers
📅 26.09.2026 👁️ 3
Andy Burnham announces scheme to help first-time buyers
The prime minister says he wants people without support from the "bank of mum and dad" to receive help.
Þyrlan lenti við Hörpu - Vísir
📅 26.09.2026 👁️ 3
Þyrlan lenti við Hörpu - Vísir
Þyrla Gæslunnar lenti tvisvar við Hörpu í dag, klukkan eitt og klukkan fjögur síðdegis í tilefni dagsins.  Landhelgisgæslan fagnaði afmælinu í dag.Vís...
Gríðar­legur fjöldi fagnaði páfanum - Vísir
📅 26.09.2026 👁️ 3
Gríðar­legur fjöldi fagnaði páfanum - Vísir
Leó fjórtánda páfa var ekið í páfabílnum niður Champs-Élysées-breiðgötuna í Parísarborg fyrr í dag. Hann veifaði til fólksins og var ekið alla götuna ...
Tómas snúinn aftur til starfa
📅 26.09.2026 👁️ 3
Tómas snúinn aftur til starfa
Tómas Guðbjartsson hjartaskurðlæknir er snúinn til baka til starfa á Landspítalanum eftir rúmlega tveggja ára veikindaleyfi. Þetta herma heimildir fré...
Umræðan sem fékk aldrei að eiga sér stað
📅 26.09.2026 👁️ 2
Umræðan sem fékk aldrei að eiga sér stað
Umræðan sem fékk aldrei að eiga sér stað Fréttin26. september 2026InnlendarLeave a Comment Eldur Smári Kristinsson skrifar: Ég les grein Jóns Þórs Óla...
Andstaða við réttindi hinsegin fólks og kvenna útbreidd í Evrópu
📅 26.09.2026 👁️ 2
Andstaða við réttindi hinsegin fólks og kvenna útbreidd í Evrópu
Hreyfingin gegn réttindum hinsegin fólks og kvenna er ekki lengur jaðarsett eða bundin við ákveðin svæði í Evrópu. Áhrifanna gætir í öllum ríkjum Evró...
Yfirborðsleg nálgun á ljóðum Elísabetar
📅 26.09.2026 👁️ 2
Yfirborðsleg nálgun á ljóðum Elísabetar
Yfirborðsleg nálgun á ljóðum Elísabetar Þor­vald­ur S. Helga­son skrif­ar um kammeróper­una Ást­in ein tauga­hrúga: Eng­inn dans við Ufsaklett eft­ir ...
Ræktar um 50 tonn af gulrótum á Grafarbakka
📅 26.09.2026 👁️ 2
Ræktar um 50 tonn af gulrótum á Grafarbakka
Haustið hefur verið nokkuð gott fyrir þá garðyrkjubændur sem stunda útirækt þótt það hafi reyndar verið töluvert blautt og erfitt að komast um garðana...
Hópuðust að Kai Cenat í miðborginni – Smakkaði sviðasultu og slátur
📅 26.09.2026 👁️ 2
Hópuðust að Kai Cenat í miðborginni – Smakkaði sviðasultu og slátur
Bandaríski áhrifavaldurinn og samfélagsmiðlastjarnan Kai Cenat er nú staddur hér á landi. RÚV greinir frá því að hann hafi bragðað á sviðasultu og slá...
Daði spreytir sig í Gettu betur - Vísir
📅 26.09.2026 👁️ 2
Daði spreytir sig í Gettu betur - Vísir
Menntaskólinn við Hamrahlíð var stofnaður árið 1966 og verður sextíu ára afmæli skólans fagnað rækilega í allan dag. „Við verðum til dæmis með hamrask...
Deilt um færslu Snorra: „Alltaf að bjóða einhverjum sem hefur reynslu af því að tala með rassgatinu“
📅 26.09.2026 👁️ 2
Deilt um færslu Snorra: „Alltaf að bjóða einhverjum sem hefur reynslu af því að tala með rassgatinu“
„Ætli maður að greina orsakir ristilkrabbameins og ræða meðferð sjúklinga ætti maður sem sagt alltaf að bjóða einhverjum sem hefur reynslu af því að t...
Óhugnanlegt myndband sínir 17 ára stúlku ráðast á kennara sinn með hníf eftir einkunnagjöf
📅 26.09.2026 👁️ 2
Óhugnanlegt myndband sínir 17 ára stúlku ráðast á kennara sinn með hníf eftir einkunnagjöf
Óhugnanlegt myndband náðist af því þegar nemandi réðist á kennara sinn með hníf í Brasilíu. Betur fór en á horfðist því að kennarinn slapp með lítil m...
Body of missing Tenerife diver found in underwater cave
📅 26.09.2026 👁️ 2
Body of missing Tenerife diver found in underwater cave
The body of a young spearfisherman from Tenerife who disappeared while diving has been recovered off the coast of El Hierro following an extensive sea...
Hamagangur í miðborginni: Á annað hundrað ungmenna hópuðust að heimsfrægum streymara
📅 26.09.2026 👁️ 2
Hamagangur í miðborginni: Á annað hundrað ungmenna hópuðust að heimsfrægum streymara
Vel á annað hundrað ungmenna fylgdi eftir bandaríska áhrifavaldinum og samfélagsmiðlastjörnunni Kai Cenat sem staddur er hér á landi. Cenat fór í víki...
Minnir frekar á Glæstar vonir en House of Cards
📅 26.09.2026 👁️ 2
Minnir frekar á Glæstar vonir en House of Cards
Áslaugu Huldu Jónsdóttur, framkvæmdastjóra Sjúkratrygginga og fyrrverandi aðstoðarmanni Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, þykir atburðarásin í kringum ...
Ráð­herra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ - Vísir
📅 26.09.2026 👁️ 2
Ráð­herra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ - Vísir
Elva Hrönn deilir frásögninni í langri færslu á Facebook-síðunni sinni. Atburðir síðustu daga hafi vakið upp minningar af þessum tíma en töluvert hefu...
Kína og Bandaríkin koma á samskiptaleið vegna atvika tengdum gervigreind
📅 26.09.2026 👁️ 2
Kína og Bandaríkin koma á samskiptaleið vegna atvika tengdum gervigreind
Kína og Bandaríkin koma á samskiptaleið vegna atvika tengdum gervigreind Don­ald Trump og Xi Jin­ping ræddu með­al ann­ars gervi­greind, við­skipti og...
Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi - Vísir
📅 26.09.2026 👁️ 2
Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi - Vísir
Sex var saknað skömmu eftir sprenginguna og ráðist var í leitaraðgerðir í rústum byggingarinnar. Lík allra sex fundust síðdegis í dag. Fjórir bandarís...
Howie B og Hiraki Saka í Gamla bíó - Vísir
📅 26.09.2026 👁️ 3
Howie B og Hiraki Saka í Gamla bíó - Vísir
Á tónleikunum flytja þeir nýtt efni í bland við eldri verk Howie B, auk þess sem lifandi spuni verður stór hluti af kvöldinu. Raftónlistartvíeykið tec...
Um­dæmin mishrifin af fækkun em­bætta - Vísir
📅 26.09.2026 👁️ 3
Um­dæmin mishrifin af fækkun em­bætta - Vísir
Dómsmálaráðherra kynnti tillöguna fyrir helgi en í henni felst að fækka lögregluembættum landsins úr níu í þrjú. Fjölnir Sæmundsson, formaður Landssam...
Heathrow Airport's third runway may be delayed to 2039
📅 26.09.2026 👁️ 3
Heathrow Airport's third runway may be delayed to 2039
The UK's busiest airport says the original goal of 2035 will be difficult to meet without simplifying the planning process.
Heathrow Airport warns third runway could be delayed by four years
📅 26.09.2026 👁️ 2
Heathrow Airport warns third runway could be delayed by four years
The UK's busiest airport cautions it may miss the government target of 2035 as ministers say the deadline has "always been ambitious".
Sigmundur Ernir skrifar: Við leikum okkur ekki með þjóðarmorðingjum
📅 26.09.2026 👁️ 3
Sigmundur Ernir skrifar: Við leikum okkur ekki með þjóðarmorðingjum
Mynd Mikilvægustu og sterkustu ummæli vikunnar sem er að líða ko
Sænska Poppstjarnan fordæmir Hvíta húsið – Hafi notað lag hennar í annarlegum tilgangi
📅 26.09.2026 👁️ 3
Sænska Poppstjarnan fordæmir Hvíta húsið – Hafi notað lag hennar í annarlegum tilgangi
Sænska poppsöngkonan Zara Larsson hefur fordæmt Hvíta húsið fyrir að nota lag hennar í myndbandi sem sýnir brottvísanir. Hvíta húsið hefur fjarlægt la...
Stofna „samskiptarás“ til að með­höndla gervi­greind - Vísir
📅 26.09.2026 👁️ 3
Stofna „samskiptarás“ til að með­höndla gervi­greind - Vísir
Þetta kemur fram í yfirlýsingum frá ríkjunum tveimur sem sendar voru út í dag í kjölfar þess að þriggja daga heimsókn Xi Jinping, forset Kína, til Was...
Israel v Republic of Ireland: Republic of Ireland confirm Israel game will go ahead
📅 26.09.2026 👁️ 3
Israel v Republic of Ireland: Republic of Ireland confirm Israel game will go ahead
The Republic of Ireland have confirmed Sunday's Uefa Nations League B3 game against Israel in Debrecen, Hungary will go ahead.
Israel v Republic of Ireland: Republic of Ireland to wear black armbands for Israel game
📅 26.09.2026 👁️ 2
Israel v Republic of Ireland: Republic of Ireland to wear black armbands for Israel game
Republic of Ireland players intend to wear black armbands "in recognition of all lives lost in the [Gaza] conflict" for Sunday's Uefa Nations League B...
Hlaut ó­vænt heiðurs­verð­laun RIFF - Vísir
📅 26.09.2026 👁️ 3
Hlaut ó­vænt heiðurs­verð­laun RIFF - Vísir
Sigurjón var viðstaddur sýningu á upphafsþætti þáttanna frægu Twin Peaks og nýrrar 4K-endurgerðar kvikmyndarinnar Wild at Heart en verkin komu bæði út...
Tugir mættir til þess að mót­mæla ríkis­stjórninni - Vísir
📅 26.09.2026 👁️ 3
Tugir mættir til þess að mót­mæla ríkis­stjórninni - Vísir
Viðburðurinn Fellum þessa ríkisstjórn var stofnaður af Alexöndru Mist Halldórsdóttur á Facebook. Í lýsingu viðburðarins er efnt til mótmæla vegna ríki...
Manchester City charges: Could club be stripped of eight trophies?
📅 26.09.2026 👁️ 3
Manchester City charges: Could club be stripped of eight trophies?
After being found guilty of the majority of the 115 charges for breaching Premier League, could Manchester city really be stripped of eight trophies?
Vegir lokaðir vegna skriðufalla á norðanverðum Vestfjörðum og Ströndum
📅 26.09.2026 👁️ 3
Vegir lokaðir vegna skriðufalla á norðanverðum Vestfjörðum og Ströndum
Vegir hafa lokast á norðanverðum Vestfjörðum og á Ströndum vegna skriðufalla og grjóthruns síðustu daga. Spáð er áframhaldandi úrkomu fram yfir helgi....
Buxna­laus Lalli olli glund­roða - Vísir
📅 26.09.2026 👁️ 3
Buxna­laus Lalli olli glund­roða - Vísir
Lalli sló botn í þáttinn eftir yfirferð yfir helstu fréttir síðustu tveggja vikna og fréttaskýru um stöðu gervigreindarinnar. Gervigreindin hefur teki...
Foreldrar Sólons fara fram á skýrslutökur fyrir dómi – Kanna grundvöll að skaðabótamáli gegn Icelandair
📅 26.09.2026 👁️ 3
Foreldrar Sólons fara fram á skýrslutökur fyrir dómi – Kanna grundvöll að skaðabótamáli gegn Icelandair
Foreldrar Sólons heitins Guðmundssonar, flugmanns hjá Icelandair, sem féll fyrir eigin hendi 25. ágúst 2024, hafa lagt fram beiðni fyrir Héraðsdóm Rey...
Þyrlan sótti slasaðan knapa - Vísir
📅 26.09.2026 👁️ 3
Þyrlan sótti slasaðan knapa - Vísir
Þetta staðfestir Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, í samtali við fréttastofu. Rúv greindi fyrst frá. Knapinn féll af baki í Þ...
Bjartsýnn á að kjarasamningar haldi ef stjórnvöld taka þátt
📅 26.09.2026 👁️ 3
Bjartsýnn á að kjarasamningar haldi ef stjórnvöld taka þátt
Formaður Starfsgreinasambandsins segist bjartsýnn á að kjarasamningar haldi eftir að samþykkt var á Landsþingi Sambands íslenskra sveitarfélaga í gær ...