Heimir Már Pétursson, upplýsingafulltrúi Flokks fólksins, rifjar upp í aðsendri grein á Vísir.is að Elva Hrönn Hjartardóttir, fyrrverandi sérfræðingur á skrifstofu VR, hafi sjálf sagt að best væri að hún segði upp starfi sínu ef hún tapaði í formannskosningum samtakanna. Þetta var síðvetra árið 2023.
Heimir segir ásakanir Elvu óskiljanlegar – „Nema þá til að svala frumstæðum hefndarþorsta sínum“