Börn og fullorðnir fjölmenntu á Vísindavöku í Laugardalshöll í dag. Þar gafst möguleiki á að sjá það nýjasta úr heimi vísindanna og ræða við starfandi vísindamenn.
„Vísindavaka er fyrir íslenskan almenning og þá sérstaklega erum við að vonast til að fá hér krakka og ungmenni til þess að kynna sér vísindin og hvað þau hafa upp á að bjóða,“ segir Davíð Fjölnir Ármannsson vísindavökustjóri.
Árlega eru veitt vísindamiðlunarverðlaun Rannís, Rannsóknarmiðstöðvar Íslands, fyrir miðlun á þekkingu og öflugt rannsóknarstarf. Háskólasetur Vestfjarða hlaut viðurkenninguna í ár.
„Við höfum verið að leggja mikla áherslu á að fara inn í grunnskólana á Vestfjörðum með verkefni sem stuðla að auknu haflæsi hjá nemendum,“ segir Jóhanna Gísladóttir, sérfræðingur hjá Háskólasetri Vestfjarða.