24 ára gamall Íslendingur lést í fallhlífaslysi við Beldringe nærri Óðinsvéum í Danmörku fyrr í dag. Frá þessu greinir danska lögreglan í tilkynningu.
Í frétt Extra Bladet kemur fram að tilkynning um slysið hafi borist lögreglunni á Fjóni klukkan 11:30, en í kjölfarið voru sjúkraflutningar og lögregla send á vettvang. Þegar viðbragðsaðilar komu á staðinn reyndist maðurinn alvarlega slasaður og lést hann skömmu síðar.
Samkvæmt fyrstu upplýsingum opnaðist fallhlíf mannsins ekki með eðlilegum hætti. Maðurinn var hluti af hópi sem stundaði fallhlífastökk á svæðinu að því er fram kemur í dönskum fjölmiðlum.
Lögregla rannsakar nú tildrög slyssins og hvað það var sem fór úrskeiðis. Aðstandendum hins látna hefur verið tilkynnt um andlátið.