Til stendur að fjölga lögreglumönnum um alls 200 fyrir árið 2031 og auka þannig fjölda þeirra úr 807 í 1007 á landsvísu. Þetta kemur fram í nýrri löggæsluáætlun dómsmálaráðuneytisins fyrir árin 2027 til 2031.
Hún var kynnt á Hilton Reykjavík hótelinu í dag fyrir lögreglustjórum landsins, ríkislögreglustjóra ásamt héraðssaksóknara og ríkissaksóknara.
Áætlunin var unnin, meðal annars, úr tillögum stýrihóps sem skipaður var í febrúar 2026 af dómsmálaráðherra. Formaður hans var Grímur Grímsson, þingmaður Viðreisnar og fyrrverandi yfirlögregluþjónn. Í honum voru einnig Ásgeir Þór Ásgeirsson, Birgir Jónasson, Grímur Hergeirsson, Margrét Kristín Pálsdóttir, Rannveig Þórisdóttir og Stefán Sveinsson sem öll voru skipuð sem fulltrúar lögreglu í stýrihópnum.
Eftirfylgni með stefnunni verður á hendi dómsmálaráðherra í samstarfi við embætti ríkislögreglustjóra. Framvindu hennar á að mæla með kerfisbundinni upplýsingasöfnun og þróun mælikvarða þannig að unnt sé að meta árangurinn.
Tekið er fram í stefnunni að í alþjóðlegum samanburði séu hlutfallslega fáir lögreglumenn miðað við íbúa hér á landi. Fjölgun lögreglumanna í áætluninni helst í hendur við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar þar sem veruleg fjölgun stöðugilda lögreglumanna var boðuð. Talið er mikilvægt að lögreglan laði að fjölbreyttan hóp starfsfólks sem býr yfir víðtækri reynslu og færni. Ekki kemur þó fram hver kostnaður verður af fjölgun lögreglumanna.
Ein eining á landsvísu gegn skipulagðri brotastarfsemi
Í stefnunni er skipulögð brotastarfsemi sögð hafa tekið stakkaskiptum til verri vegar á fáum árum. Innlendum og erlendum brotahópum hefur fjölgað. Þeir eru sagðir nýta sér tækninýjungar, dulkóðuð samskipti og sérfræðiþjónustu til að dylja slóð sína og þvætta ágóða í skjóli löglegrar starfsemi.
Skipulögð brotastarfsemi er sögð ein mesta ógnin við vestrænt samfélag þar sem slík brotastarfsemi grafi undan grunnstoðum samfélagsins, efnahagskerfinu, öryggi borgara og trausti til yfirvalda.
Merki eru talin um að ríki utan Evrópu nýti brotahópa í Evrópu í því skyni að fremja afbrot í sína þágu til að valda óstöðugleika.
Horft er til þess að komið verði á einni einingu á landsvísu sem rannsakar skipulagða brotastarfsemi. Núverandi fyrirkomulag er álitið takmarkandi þáttur og að margskipt skipulag lögreglu haldi ekki í við hreyfanleika brotahópa.
Formleg viðmið um málsmeðferðartíma nauðsynleg
Rætt er um rannsókn alvarlegra fjármuna- og efnahagsbrota hér á landi sem eru sem stendur í höndum embættis héraðssaksóknara. Með slíkum brotum er átt við ætlaða refsiverða háttsemi í fjárhagslegu hagnaðarskyni sem oftast er kerfisbundin og reglulega stunduð í nafni löglegrar atvinnustarfsemi.
Slíkar rannsóknir eru oft umfangsmiklar og flóknar og hafa haft tilhneigingu til að taka langan tíma. Dæmi eru um að slíkar rannsóknir hafi fyrnst hjá lögreglu vegna langs málsmeðferðartíma.
Talið er brýnt að sett verði formleg viðmið um málsmeðferðartíma en slík viðmið eru ekki til staðar í núverandi fyrirmælum ríkissaksóknara.
Netbrotum fjölgar
Í löggæsluáætluninni er lögð aukin áhersla á netbrot og netöryggi. Fram kemur að netglæpir fari vaxandi og er talið að lögregla þurfi að efla getu sína til að rannsaka slík brot, meðal annars með aukinni sérhæfingu, tæknilegri þekkingu og gagnagreiningu. Einnig er gert ráð fyrir frekari uppbyggingu á sviði netöryggis og auknu samstarfi innlendra og erlendra stofnana til að bregðast við netógnum og skipulagðri brotastarfsemi á netinu.
Netbrot og netöryggi verða meðal helstu forgangsmála lögreglunnar á næstu árum samkvæmt áætluninni og er talið að efla verði rannsóknargetu lögreglunnar verulega á því sviði
Innviðaskuld í húsnæðismálum
Í áætluninni kemur einnig fram að töluverð innviðaskuld hefur myndast hjá lögreglu í húsnæðismálum. Unnið er að heildstæðri greiningu á húsnæðisþörfinni í dómsmálaráðuneytinu. Talið er að gera verði áætlun um hvernig hægt er að mæta brýnustu þörfum hratt en einnig að móta verði langtímaáætlun í húsnæðismálum. Tekið er fram að aðstaða til leitar í bifreiðum í tengslum við sakamál í rannsókn er víða ófullnægjandi svo og aðstaða til þjálfunar, einkum er varðar skotvopnaþjálfun. Einnig er aðstaða frelsissviptra einstaklinga í fangaklefum á lögreglustöðvum víða ófullnægjandi.