506 hafa látist af völdum ebóluveirunnar í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) segir að alls hafi verið staðfest 1.561 tilfelli í landinu síðan neyðarástandi var lýst yfir í landinu um miðjan maí.
Smit hafa komið upp í fjórum héruðum landsins, en flest þeirra eru í Ituri-héraði. Öryggisástand er slæmt í héraðinu vegna átaka milli vopnaðra hópa. Margir íbúar hafast við í flóttamannabúðum þar sem vatns- og hreinlætisaðstæður eru ófullnægjandi. Smit hafa komið upp á að minnsta kosti fjórum stöðum í héraðinu.
Tveir hafa látist í Úganda en alls hafa verið staðfest tuttugu tilfelli þar. Ástandið er þó mun stöðugra þar og veiran hefur ekki náð að breiðast eins hratt út þar og í Kongó.
Enn sem komið er eru ekki komin lyf við þessu afbrigði af ebóluveirunni, svokölluðu Bundibugyo-afbrigði. Á fimmtudag hófust prófanir á tveimur mismunandi lyfjameðferðum í Kongó.