Yfir 40% Reykvíkinga búnir að kjósa

Yfir 40% Reykvíkinga búnir að kjósa

Yfir 40% Reykvíkinga búnir að kjósa

Kjörsókn hefur verið með meira móti um allt land en í síðustu sveitarstjórnarkosningum. Kjósendur sem fréttastofa hitti í dag voru flestir löngu búnir að ákveða hvaða framboð yrði fyrir valinu. Þó voru einhverjir sem tóku ákvörðun í kjörklefanum.

Kjörsókn í tveimur stærstu sveitarfélögum landsins, Reykjavík og Kópavogi, nálgast fimmtíu prósentin. 48,4% höfðu kosið í Reykjavík klukkan sjö og 47,9% í Kópavogi.

Á Akureyri er kjörsókn enn nærri helmingi, nánar til tekið 49,96 klukkan 19.

Á Akranesi var kjörsókn komin yfir 50% klukkan 18.

Góður gangur í Reykjanesbæ og á Skagaströnd

Í Reykjanesbæ höfðu 37,7% kosið klukkan sjö. Heildarkjörsókn í Reykjanesbæ í sveitarstjórnarkosningum 2022 var rúm 47%, sú lægsta á landinu.

Á Skagaströnd höfðu 226 kosið klukkan sjö í kvöld. Þar eru 352 á kjörskrá. 66 atkvæði höfðu borist í utankjörfundaratkvæðagreiðslu.

Ítarleg kosningaumfjöllun var í kvöldfréttum sjónvarps. Þar var meðal annars rætt við kjósendur um allt land, skyggnst bakvið tjöldin á kosningavöku RÚV og rætt við ungan kjósanda sem var að kjósa í sínum fyrstu kosningum.

Hægt er að horfa á hana í heild í spilaranum hér að neðan.

60,4% á kjörskrá, eða 386, höfðu greitt atkvæði á Grundarfirði klukkan fimm í dag.

Samkvæmt upplýsingum frá kjörstjórn eru 639 á kjörskrá í sveitarfélaginu. Þar af höfðu 291 kosið á kjörskrá klukkan 17 en auk þess höfðu 94 atkvæði verið greidd utan kjörfundar.

Frekari upplýsinga er að vænta úr Grundarfirði þegar talningu lýkur í kvöld.

Anna Sigríður Hafliðadóttir, oddviti Vinstri grænna og óháðra í Kópavogi, kaus í Smáranum.

Kjörsókn í Reykjavík klukkan fimm var rúmlega 40% Það er rúmum þremur prósentustigum meira en hún var á sama tíma í sveitarstjórnarkosningunum 2022.

Kjörsókn er almennt meiri að þessu sinni en í síðustu kosningum í þeim sveitarfélögum sem fréttastofa hefur heyrt af.

Í Kópavogi höfðu ríflega 11 þúsund kosið klukkan fimm, eða 38%.

Á Akureyri voru 6149 búin að kjósa klukkan fimm, eða 41,2%.

Í Reykjanesbæ var kjörsókn klukkan fimm tæp 30%.

Í Múlaþingi var kjörsóknin klukkan fimm aðeins dræmari en í síðustu kosningum. Þá höfðu 1.616 kosið en á sama tíma í síðustu kosningum höfðu rúm 45% kosið.

Kosningavaka RÚV fer í loftið í sjónvarpinu klukkan 21.45 í kvöld, skömmu áður en kjörstaðir loka. Fyrstu tölur eru svo væntanlegar uppúr klukkan tíu.

Margir sérfræðingar og aðrir skemmtilegir gestir koma við í sjónvarpssal, en auk þess verður boðið upp á þá nýbreytni að Sýn og RÚV verða með sameiginlega útsendingu úr Ráðhúsi Reykjavíkur þegar fyrstu tölur úr borginni berast, líkleg uppúr miðnætti. Þar munu fréttamann stöðvanna ræða við oddvita framboðanna í beinni útsendingu.

Hólmfríður Dagný Friðjónsdóttir, ritstjóri kosningavökunnar á RÚV, segir að þetta verði hápunktur vökunnar sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara.

Kjörsókn í Reykjavík klukkan 16 var 34,3%. Það er tæpum 2,5% meira en hún var í sveitarstjórnarkosningunum 2022 á sama tíma dags.

Í Kópavogi höfðu ríflega 10 þúsund kosið klukkan fjögur, eða 32,4%.

Á Akureyri höfðu 35,2 prósent kosið klukkan fjögur, alls 5.254.

Í Reykjanesbæ var kjörsókn klukkan fjögur 25,5%.

Á Akranesi höfðu 38,8% greitt atkvæði klukkan fjögur.

Í Garðabæ var kjörsókn klukkan fjögur 35,8%.

Silja Sóley Birgisdóttir, oddvidi Sósíalista í Reykjavík, kaus í Foldaskóla í Grafarvogi.

Ingimar Þór Friðriksson, oddviti framboðsins Góðan daginn í Reykjavík, greiddi atkvæði í Borgarskóla í Grafarvogi.

Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknarflokksins, kaus í Seljaskóla í morgun.

Ágúst Ólafsson fréttamaður er staddur í Múlaþingi þar sem hann tók kjósendur í sveitarfélaginu tali fyrir utan kjörstað. Flestir sem hann ræddi við var sammála um að valið hefði verið auðvelt og sögðust kjósa fólk frekar en flokka.

Það er betri kjörsókn í Múlaþingi það sem af er degi, en fyrir fjórum árum.

Kl. 14 höfðu 22,5% greitt atkvæði - 889 manns. Þetta var 21.5% á sama tíma 2022. 

Starfsfólk á kjörstað á Svalbarðseyri brást skjótt við þegar athugasemd barst vegna veggspjalds sem beindi kjósendum á kjördeild.

Upphaflega spjaldið var appelsínugult, sem er einkennislitur eins framboðsins þriggja þar í bæ.

Nú er spjaldið hvítt og hlutlaust.

Kristinn Jón Ólafsson , oddviti Pírata í borginni, kaus í Breiðagerðisskóla ásamt Halldóru Mogensen, sambýliskonu sinni og fyrrverandi þingmanni Pírata.

Sigfús Aðalsteinsson, oddviti Okkar borgar, kaus í Álftamýrarskóla skömmu fyrir hádegi.

Næstum helmingur Grafarvogsbúa segist ætla að kjósa Sjálfstæðisflokkinn og 18% Miðflokkinn samkvæmt þjóðarpúlsi Gallups. Fylgi Samfylkingarinnar eykst eftir því sem vestar dregur í borginni.

Kjörsókn hefur verið með betra lagi víðast hvar um landið það sem af er degi.

Klukkan eitt höfðu 16,4% kosið í Reykjavík sem er einu og hálfu prósenti meira en á sama tíma í síðustu kosningum.

Á Akureyri höfðu tæplega sjö prósent kosið fyrir hádegi, eða 1.028, og stóðu kjósendur í röð þegar kjörfundur hófst.

Sömu sögu er að segja um Kópavog, þar voru á þriðja tug sem biðu spenntir eftir að ganga að kjörklefanum. Þar höfðu um 1.652 kosið klukkan ellefu, eða 5,3% af þeim sem eru á kjörskrá.

Á Akranesi hefur sömuleiðis gengið vel, þar eru 6.400 á kjörskrá og höfðu 787 atkvæði verið greidd fyrir hádegi, eða 12,5%.

Í Árborg höfðu 7,4% kosið klukkan ellefu, eða 709. Ingimundur Sigurmundsson, formaður yfirkjörstjórnar, segir kjörsókn á pari við síðustu sveitarstjórnarkosningar.

Í Hafnarfirði eru 24.587 á kjörskrá og höfðu 2.055 kosið fyrir hádegi, eða 8,3%.

Í Múlaþingi byrjaði kjörsókn frekar hægt að sögn Stefáns Þórs Haukssonar, formanns yfirkjörstjórnar. 15 prósent íbúa Fljótsdalshéraðs voru búnir að greiða atkvæði fyrir hádegi, en tæplega 400 kusu utan kjörfundar sem er ívið meira en áður segir Stefán.

Í Reykjanesbæ höfðu 581 kosið það sem af er degi, eða tæplega 3,4% af þeim sem eru á kjörskrá.

Jóna Hrefna Bergsteinsdóttir, formaður yfirkjörstjórnar, segir þetta aukningu frá því fyrir fjórum árum, upp á tæplega hálft prósent – en tæplega fimm þúsund fleiri eru á kjörskrá nú en fyrir síðustu sveitarstjórnarkosningar.

Rétt fyrir hádegi höfðu 321 kosið á kjörstað í Skagafirði sem er um 9.7% kjörsókn.

Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, greiddi atkvæði sitt í Frostaskjóli í hádeginu. Hún mætti á kjörstað ásamt fjölskyldu sinni.

Á Svalbarðseyri við Eyjafjörð er 371 á kjörskrá og þrír flokkar í framboði.

Fólk var farið að tínast inn á kjörstað þegar fréttastofa leit þar við í morgun.

Á bílastæðinu hitti Siguróli Sigurðsson fréttamaður fyrir ungan athafnamann. Þar var Vakur Hrafn Plessy, nemandi í Valsárskóla, að selja kleinur til styrktar skólaferðalagi 9. og 10. bekkjar, en þau eru á leiðinni til Danmerkur.

Viðtökurnar létu ekki á sér standa og lagerinn seldist upp. Fréttamenn sögðu þær enda ljúffengar.

Gömul hefð er fyrir því að hringja bjöllum við upphaf kjörfundar í Breiðagerðisskóla í Reykjavík. Engin undantekning var á því í dag.

Björg Magnúsdóttir, oddviti Viðreisnar í Reykjavík, greiddi atkvæði í Breiðagerðisskóla ásamt manni sínum Tryggva Þór Hilmarssyni.

Einar Jóhannes Guðnason, oddviti Miðflokksins í Kópavogi kaus í Kórnum í dag.

Grýtubakkahreppur við Eyjafjörð er eitt af þeim sjö sveitarfélögum þar sem kosið er í óbundnum kosningum.

281 voru á kjörskrá, en 3 sögðu sig frá því að vera í kjöri, þannig eru 278 í kjöri í kosningum.

Þegar fréttastofa kom við á kjörstað í Grenivík klukkan 11 höfðu 26 greitt atkvæði. Að sögn starfsfólks fer kjörsókn rólega af stað í dag miðað við áður.

Jónas Már Torfason, oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi, mætti á kjörstað ásamt eiginkonu sinni Andreu Gestsdóttur og þremur dætrum þeirra. Hann greiddi atkvæði í Smáranum.

Kosningar eru í fullum gangi í Hafnarfirði, í Lækjarskjóla og á Ásvöllum.

Karólína Helga Símonardóttir, oddviti Viðreisnar í Hafnarfirði, fór í þjóðbúning og greiddi atkvæði í Lækjarskóla.

Ari Edwald, oddviti Miðflokksins í Reykjavík, er búinn að greiða atkvæði. Líkt og Guðmundur Ingi kaus Ari í Ráðhúsi Reykjavíkur.

Guðmundur Ingi Þóroddsson, oddviti Flokks fólksins í Reykjavík, er búinn að kjósa. Hann greiddi atkvæði í Ráðhúsi Reykjavíkur.

Gylfi Þór Þorsteinsson, oddiviti Viðreisnar í Mosfellsbæ, greiddi atkvæði í Lágafellskóla í morgun.

Um 40 manns biðu þess að fá að kjósa fyrir utan Verkmenntaskólann á Akureyri þegar kjörstaðir opnuðu í morgun.

Helga Eymundsdóttir, formaður yfirkjörstjórnar á Akureyri, segir að þar hafi allt farið vel af stað.

„Hér var starfsfólk mætt í vinnu klukkan hálf átta, þau fengu sér smá kaffisopa og smá næringu. Síðan var farið með alla atkvæðaseðla inn í kjördeildir korter yfir átta.

Næst var labbaður hringur og allir kassar innsiglaðir í votta viðurvist og þá voru mættir hér umboðsmenn frá flest öllum framboðum. Síðan opnuðum við strax klukkan níu og það var strax komið fólk hingað þegar að við opnuðum.“

Atkvæðagreiðslan heldur áfram í Vesturbæ Reykjavíkur.

Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík, greiddi atkvæði í KR-heimilinu í Frostaskjóli.

Nú þegar kjörstaðir eru opnir fer fólk að týnast inn. Sígilt stef á kjördegi er að smella af myndum af frambjóðendum að greiða atkvæði.

Sanna Magdalena Mörtudóttir, oddviti Vinstrisins í Reykjavík, mætti í Vesturbæjarskóla til að kjósa.

Margvísleg málefni eru kjósendum hugleikin fyrir kjördag og oft úr vöndu að ráða þegar í kjörklefann er komið.

Fréttastofa fór um landið síðustu vikur og ræddi við oddvita framboðslista í fjölmennustu sveitarfélögunum og má sjá þá þætti hér: Oddvitaumræður.

Þá hafa margir mátað sig við framboð í sínum heimabæjum í kosningaprófi RÚV sem má nálgast hér:

Hér að neðan má finna ýmsar hagnýtar upplýsingar um kosningarnar.

Gleðilegan kjördag!

Í dag verður gengið að kjörborðinu margfræga í sveitarfélögum landsins. Víðast hvar voru kjörstaðir opnaðir klukkan níu og verður lokað klukkan tíu í kvöld.

Fréttastofa RÚV stendur vaktina um allt land og færir ykkur nýjustu fréttir af framvindu mála hér í þessari fréttavakt, sem og öllum okkar miðlum.

Kosningavakan fer í loftið í sjónvarpinu klukkan 21.45 í kvöld og má búast við fyrstu tölum fljótlega eftir að kjörstöðum verður lokað.

#búnir #kjósa #reykvíkinga #yfir


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/innlent/2026-05-16-yfir-40-reykvikinga-bunir-ad-kjosa-475277

📰 Aðrar fréttir

Leyniþjónustan rannsakar grínhljómsveit sem „tók Trump af lífi“ – Hafa tekið forseta af lífi í áratugi
📅 30.06.2026 👁️ 0
Leyniþjónustan rannsakar grínhljómsveit sem „tók Trump af lífi“ – Hafa tekið forseta af lífi í áratugi
Bandaríska leyniþjónustan hefur haft þungarokkshljómsveitina GWAR til rannsóknar vegna „aftöku“ á Donald Trump á tónleikum. GWAR, sem er grínsveit og ...
Lögreglan leitar að 15 ára dreng
📅 30.06.2026 👁️ 0
Lögreglan leitar að 15 ára dreng
Lögreglan á Vesturlandi hefur lýst eftir Cezary Kobiela, 15 ára dreng. Cezary fór frá Borgarnesi í gær með strætó suður til Reykjavíkur eða Akraness.C...
Sér Blöndu­ós eflast með byggðalínu og virkjunum - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 0
Sér Blöndu­ós eflast með byggðalínu og virkjunum - Vísir
Við Blönduós er verið að tvöfalda gagnaver Borealis og kalla framkvæmdirnar á allt að tvöhundruð manns í vinnu. Samtímis verða til milli þrjátíu og fj...
Þriggja ára dreng bjargað eftir sex daga í húsrústum í Venesúela
📅 30.06.2026 👁️ 0
Þriggja ára dreng bjargað eftir sex daga í húsrústum í Venesúela
Þriggja ára gömlum dreng var bjargað lifandi úr rústunum í höfuðborginni Caracas í dag, sex dögum eftir að tveir gríðarlega harðir jarðskjálftar riðu ...
Mímósuísinn ljúf­fengur en gerir aldrei aftur Jäger­meister-ís - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 0
Mímósuísinn ljúf­fengur en gerir aldrei aftur Jäger­meister-ís - Vísir
Kúabúið Holtsel er einn vinsælasti áningarstaður Eyjafjarðarsveitar en þar er rekin ísbúðin Holtsels Hnoss. Ísinn er búinn til á staðnum og úr mjólk þ...
Ógn felist í hótunum Paul Watson-samtakanna - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 0
Ógn felist í hótunum Paul Watson-samtakanna - Vísir
Hópur fólks er um borð í skipinu Bandero til að fylgja eftir Aðgerð 86 sem Paul Watson-samtökin skipulögðu. Markmið þeirra er að stöðva hvalveiðar á Í...
Lög­reglan leitar að Cezary - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 0
Lög­reglan leitar að Cezary - Vísir
Cezary er um 178 sentimetrar á hæð, grannur og dökkhærður. Hann var klæddur í svarta úlpu með loðkraga og dökkar buxur. Hann fór í strætó í gær suður ...
Óvænt vinátta hunds og elgs
📅 30.06.2026 👁️ 1
Óvænt vinátta hunds og elgs
Hundurinn Boss í Ockelbo í Svíþjóð hefur tekið félagsskap elgsins Stínu fagnandi en hún flutti nýlega á heimilið. Elgurinn fæddist veikburða og er því...
Togari varð aflvana fyrir utan Siglufjörð
📅 30.06.2026 👁️ 1
Togari varð aflvana fyrir utan Siglufjörð
Björgunarskipið Sigurvin frá Siglufirði var kallað út á mesta forgangi á sjöunda tímanum í kvöld eftir að stjórnstöð Landhelgisgæslunnar bárust neyðar...
Afl­vana togari hættu­lega ná­lægt landi - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Afl­vana togari hættu­lega ná­lægt landi - Vísir
Leg Ottós, sem kemur frá Vestmannaeyjum, hafði ofhitnað og þess vegna kom mikill reykur en enginn eldur. Rek skipsins breyttist örlítið og var það kom...
Ein sviðsmyndin að draga Bandero til hafnar
📅 30.06.2026 👁️ 1
Ein sviðsmyndin að draga Bandero til hafnar
Dómsmálaráðherra segir að gripið verði til aðgerða láti áhöfnin á Bandero, skipi Paul Watson-samtakanna, verða af hótunum sínum. Háttsemi sem ógni ísl...
Venezuela: Three-year-old rescued and taken to hospital six days after quake
📅 30.06.2026 👁️ 1
Venezuela: Three-year-old rescued and taken to hospital six days after quake
Video footage shows rescuers cheering as the child is pulled from rubble in La Guaira state.
Patient tests negative after Ebola alert at Glasgow hospital
📅 30.06.2026 👁️ 1
Patient tests negative after Ebola alert at Glasgow hospital
Precautionary measures were taken after the patient was admitted to the Queen Elizabeth University Hospital early on Tuesday.
Vegum lokað og bílar taldir - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Vegum lokað og bílar taldir - Vísir
„Við höfum verið að meta stöðuna með fjölmörgum aðilum og átt marga fundi. Við erum að reyna að átta okkur á því hvar þolmörkin okkar eru hérna á Vest...
Wimbledon 2026 results: Serena Williams beaten by Maya Joint in three sets on singles return
📅 30.06.2026 👁️ 1
Wimbledon 2026 results: Serena Williams beaten by Maya Joint in three sets on singles return
Serena Williams came close to a sensational comeback win on her Wimbledon return before losing an epic three-setter against Maya Joint.
Nýfætt barn fannst látið á kamri á teknóhátíð
📅 30.06.2026 👁️ 1
Nýfætt barn fannst látið á kamri á teknóhátíð
Nýfætt barn fannst látið á kamri á tónlistarhátíð í Michigan í Bandaríkjunum. Rannsókn á málinu er hafið og beðið er eftir niðurstöðum krufningar.Tíma...
Guðmundur Franklín með samsæriskenningu um rasísku ummælin gegn Pawel Bartoszek – „Plönuð og pöntuð“
📅 30.06.2026 👁️ 1
Guðmundur Franklín með samsæriskenningu um rasísku ummælin gegn Pawel Bartoszek – „Plönuð og pöntuð“
Guðmundur Franklín Jónsson, fyrrverandi forsetaframbjóðandi, segir að ummæli sem tekin hafa verið saman á netinu um Pawel Bartoszek gætu hafa verið „p...
Sjálfvirkar neyðarhringingar til Neyðarlínunnar hafa þurrkast út
📅 30.06.2026 👁️ 1
Sjálfvirkar neyðarhringingar til Neyðarlínunnar hafa þurrkast út
Eftir að Ísland slökkti alveg á 2G- og 3G-kerfinu hefur eCall, kerfi sem hringir sjálfvirk neyðarsímtöl úr bílum, nánast þurkkast út. Í maí voru þau 1...
Starf­semi Hvals mögu­lega í upp­nám: Hefur ekki svarað eftir­litinu frá því í maí - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Starf­semi Hvals mögu­lega í upp­nám: Hefur ekki svarað eftir­litinu frá því í maí - Vísir
Þorsteinn Narfason, framkvæmdastjóri eftirlitsins, segir í samtali við fréttastofu að svo virðist sem mengunin verði til við mjölvinnslu þar sem hluti...
Kostnaður við að geta ekki átt barn í heimabyggð hlaupi á hundruðum þúsunda
📅 30.06.2026 👁️ 1
Kostnaður við að geta ekki átt barn í heimabyggð hlaupi á hundruðum þúsunda
Par á Stöðvarfirði sér fyrir sér að kostnaður þeirra vegna lokunar einu fæðingardeildarinnar á Austurlandi í sumar geti hlaupið á hundruðum þúsunda. Þ...
Segir verk Þór­bergs enn ó­trú­lega lifandi - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Segir verk Þór­bergs enn ó­trú­lega lifandi - Vísir
Í kvöldfréttum Sýnar var farið að Hala í Suðursveit. Það vakti nokkra umræðu síðastliðið haust þegar fréttir birtust af því að Halldór Laxness væri mi...
„Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
„Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ - Vísir
„Það er svo sjúklega gaman að rifja upp og skoða myndir og æðisgengið að hundruð vina hafi verið í trylltu dansandi stuði til eitt um nóttina á þriðju...
Why Starmer's defence plan leaves next PM with £4.7bn headache
📅 30.06.2026 👁️ 0
Why Starmer's defence plan leaves next PM with £4.7bn headache
Keir Starmer announces extra defence spending - but the subject will still be one of the trickiest issues in his successor's in-tray.
Major telur Breta eiga afturkvæmt í Evrópusambandið: „Þetta hefur skaðað þjóðina“
📅 30.06.2026 👁️ 1
Major telur Breta eiga afturkvæmt í Evrópusambandið: „Þetta hefur skaðað þjóðina“
John Major, forsætisráðherra Bretlands og leiðtogi Íhaldsflokksins á árunum 1990 til 1997, segir að Bretar þurfi að fá aðgang að innri markaði Evrópu ...
Logi fór á skeljarnar við Como-vatn - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Logi fór á skeljarnar við Como-vatn - Vísir
Parið greinir frá trúlofuninni með mynd í hringrás (e. story) á Instagram þar sem Logi sést á öðru hnénu með hring í hendi. Þau virðast hafa fagnað tr...
Labour women tell Burnham half of next government should be female
📅 30.06.2026 👁️ 1
Labour women tell Burnham half of next government should be female
Female MPs urge Burnham to ensure Labour lead by example on equality should he become prime minister.
Óttast slys og lokar fyrir aðgengi að Fosslaug og Reykjafossi: „Ágangurinn stjórnlaus“
📅 30.06.2026 👁️ 1
Óttast slys og lokar fyrir aðgengi að Fosslaug og Reykjafossi: „Ágangurinn stjórnlaus“
Landeigandi í Skagafirði hefur áhyggjur af öryggi ferðafólks og náttúruspjöllum á landareign sinni. Hann segist tilneyddur til að loka fyrir aðgang.„Þ...
Row over plan to demolish Nazi bunker under Berlin
📅 30.06.2026 👁️ 1
Row over plan to demolish Nazi bunker under Berlin
City officials want to build flats on the city centre site but others say it should be preserved as part of Germany's history.
Langreyður háði „óvanalega langt“ dauðastríð
📅 30.06.2026 👁️ 1
Langreyður háði „óvanalega langt“ dauðastríð
Langreyður sem Hvalur 8 veiddi 22. júní síðastliðinn var skotin með fjórum sprengiskutlum, samkvæmt eftirlitsskýrslu Matvælastofnunar. Þrjátíu og ein ...
„Hagið ykkur eins og full­orðið fólk“ - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
„Hagið ykkur eins og full­orðið fólk“ - Vísir
Tíundi hvalur vertíðarinnar var dreginn að landi fyrr í morgun á hvalveiðistöðinni í Hvalfirði. Á meðan hvalurinn var dreginn var þjóðsöngur Íslands s...
Rússar gleðjast yfir óvissu en Keflavík enn mikilvæg
📅 30.06.2026 👁️ 1
Rússar gleðjast yfir óvissu en Keflavík enn mikilvæg
Eru Bandaríkin að kalla herlið sitt frá Evrópu og blasa endalok NATO við? Þeirrar spurningar hefur ítrekað verið spurt síðustu misseri í ljósi yfirlýs...
Patient tested for suspected Ebola virus at Glasgow hospital
📅 30.06.2026 👁️ 1
Patient tested for suspected Ebola virus at Glasgow hospital
It is understood a patient was admitted to the Queen Elizabeth University Hospital during the early hours of Tuesday.
„Hverjir hafa efni á því að kaupa gramm af kókaíni?“ - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
„Hverjir hafa efni á því að kaupa gramm af kókaíni?“ - Vísir
Í dag var greint frá tveimur stórum málum þar sem lögregla lagði hald á fíkniefni í tuga kílóa tali; annars vegar var 106 kílóum af kókaíni smyglað me...
Leikkonan opinberar hvernig bera á fram raunverulegt eftirnafn hennar sem mörgum þykir neyðarlegt
📅 30.06.2026 👁️ 1
Leikkonan opinberar hvernig bera á fram raunverulegt eftirnafn hennar sem mörgum þykir neyðarlegt
Leikkonan Olivia Wilde var lögð í einelti í æsku fyrir sitt raunverulega eftirnafn – Cockburn – og ákvað því að taka upp eftirnafnið Wilde þegar hún g...
Milljón sóttu um dvalarleyfi á Spáni
📅 30.06.2026 👁️ 1
Milljón sóttu um dvalarleyfi á Spáni
Um ein milljón hefur sótt um dvalarleyfi á Spáni eftir að stjórnvöld þar kynntu áform um að veita óskráðum innflytjendum dvalarleyfi í landinu.Umsókna...
Milljón sótti um dvalarleyfi á Spáni
📅 30.06.2026 👁️ 1
Milljón sótti um dvalarleyfi á Spáni
Um ein milljón hefur sótt um dvalarleyfi á Spáni eftir að stjórnvöld þar kynntu áform um að veita óskráðum innflytjendum dvalarleyfi í landinu.Umsókna...
Stærsta kókaínmál Ís­lands­sögunnar og ráð­herra sakar starfs­menn Hvals um fífla­skap - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Stærsta kókaínmál Ís­lands­sögunnar og ráð­herra sakar starfs­menn Hvals um fífla­skap - Vísir
Þetta er annað stóra fíkniefnamálið á skömmum tíma en fyrr í mánuðinum var greint frá umfangsmiklu máli tengdu Norrænu. Lögreglan segir eftirspurnina ...
Lokaeinkunnirnar vís­bending um ósamræmda ein­kunna­gjöf - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Lokaeinkunnirnar vís­bending um ósamræmda ein­kunna­gjöf - Vísir
Í svari barna- og menntamálaráðuneytisins við fyrirspurn Sigríðar Á. Andersen, þingmanns Miðflokksins, um dreifingu einkunna kemur fram að hlutfall ne...
Komust á snoðir um kókaínsmyglið fyrir nokkrum vikum
📅 30.06.2026 👁️ 1
Komust á snoðir um kókaínsmyglið fyrir nokkrum vikum
Lögregla vinnur með Europol og lögreglu erlendis að rannsókn á stærðarinnar kókaínsmygli hingað til lands. Ævar Pálmi Pálmason, aðstoðaryfirlögregluþj...
Halldór Haraldsson píanóleikari er látinn
📅 30.06.2026 👁️ 1
Halldór Haraldsson píanóleikari er látinn
Halldór Haraldsson píanóleikari og fyrrverandi skólastjóri Tónlistarskólans í Reykjavík lést í gær, 89 ára gamall. Halldór á farsælan feril að baki og...
Enn stöðugt landris undir Svartsengi
📅 30.06.2026 👁️ 1
Enn stöðugt landris undir Svartsengi
Landris heldur áfram undir Svartsengi með stöðugum hraða og líklegasta sviðsmyndin er enn áframhaldandi kvikusöfnun sem endar með nýju kvikuhlaupi og ...
Sóttu slasaðan mann í Drangey
📅 30.06.2026 👁️ 1
Sóttu slasaðan mann í Drangey
Björgunarsveit á Sauðárkróki var kölluð út síðdegis í dag og sótti slasaða manneskju í Drangey í Skagafirði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Slysav...
Komu slösuðum til bjargar í Drang­ey - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Komu slösuðum til bjargar í Drang­ey - Vísir
Í fréttatilkynningu frá Landsbjörgu segir að uppgangan í Drangey sé brött og erfið og því ekki hlaupið að því að flytja liggjandi sjúkling þá leið. Bj...
US Supreme Court upholds birthright citizenship in blow to Trump
📅 30.06.2026 👁️ 1
US Supreme Court upholds birthright citizenship in blow to Trump
The ruling is a major setback for Donald Trump's immigration agenda, and has been welcomed by civil rights groups.
Hundi bjargað á lífi úr húsarústum í Venesúela
📅 30.06.2026 👁️ 1
Hundi bjargað á lífi úr húsarústum í Venesúela
„Eftir fimm klukkustundir tókst okkur að bjarga þessum litla hundi sem svarar nafninu Giselle,“ skrifar Nayib Bukele, forseti El Salvador, við myndske...
Hall­dór Haralds­son er látinn - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Hall­dór Haralds­son er látinn - Vísir
Er þetta meðal þess sem fram kemur í andlátstilkynningu frá aðstandendum Halldórs en hann fæddist í Reykjavík þann 18. febrúar árið 1937. Þar er einni...
Flóknari aðdragandi en fyrir þingkosningar
📅 30.06.2026 👁️ 1
Flóknari aðdragandi en fyrir þingkosningar
Í nýjasta þjóðarpúlsi Gallups þar sem spurt var um atkvæðagreiðsluna í lok sumars kom fram að mjótt er á munum milli þeirra sem hallast að því að segj...
Fjarheilbrigðisþjónusta verði óháð búsetu
📅 30.06.2026 👁️ 1
Fjarheilbrigðisþjónusta verði óháð búsetu
Starfshópur sem heilbrigðisráðherra fól að móta stefnu í fjarheilbrigðisþjónustu hefur skilað ráðherra skýrslu með tillögum sínum. Hópurinn leggur áhe...
Cruise passengers 'stranded' after air con failure to be flown home
📅 30.06.2026 👁️ 1
Cruise passengers 'stranded' after air con failure to be flown home
Tui has apologised and told passengers it has arranged flights home for tomorrow and a full refund.
Hátt í þriggja milljarða króna virði af kókaíni - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Hátt í þriggja milljarða króna virði af kókaíni - Vísir
Þrír Íslendingar og sex erlendir ríkisborgarar eru í haldi lögreglunnar vegna innflutnings á rúmlega hundrað kílóum af fíkniefnum sem voru flutt sjóle...