Vilhelm Már Þorsteinsson forstjóri Eimskips segir að fyrirtækið hafi ekki óskað eftir undanþágum heldur viðurkenningu á sérstöðu flutninganna vegna legu landsins langt norður í Atlantshafi:
„Ég verð nú að viðurkenna að þetta voru töluverð vonbrigði að heyra af framlengingu á undanþágum í fluginu en ekki tekið tillit til sjóflutningana. Tæp 100% af vöruflutningum til og frá landinu fer sjóleiðina og við erum ekki bara langt frá mörkuðum heldur erfiðara sjólag og annað og ekki aðrir flutningsmátar möguleikir þannig að við höfum frekar kallað eftir viðurkenningu á þessari sérstöðu og að jafna leikinn.“
Hann segir að ný skýrsla alþjóðafyrirtækis sýni að sjóflutningar til og frá landinu séu kostnaðarsamari en sjóflutningar í Miðjarðarhafi, Norðursjónum og í Eystrasalti með tilliti til vegalengda, hafstrauma, ölduhæða og vinda.
„Ég held að það sé ótvírætt búið að sýna fram á það að þetta er að leggjast þyngra á íslenska neytendur heldur en evrópska. Og það er þessi leikur eða þetta ójafnvægi sem að við höfum bent á og viljum bara fá viðurkenningu á og láta jafna.“
Og kostnaðurinn við losunarheimildir er geysihár.
„Auðvitað vitum við hver kostnaðurinn okkar er, hvernig við þurfum að haga okkar verðlagningu til að taka tillit til flutningskostnaðar og það hleypur á nokkrum milljörðum á hverju ári.“