Vonast til að geta lækkað vexti á næsta ári

Vonast til að geta lækkað vexti á næsta ári

Vonast til að geta lækkað vexti á næsta ári

„Þetta voru aðallega bara skilaboð inn á markaðinn um að núna séum við í þessu tímabili óbreyttra vaxta. Þetta var talsvert mildur tónn fannst okkur. Seðlabankinn virðist vera nokkuð sáttur við stöðuna eins og hún er núna og telja að óbreyttir vextir dugi til,“ segir Una Jónsdóttir, aðalhagfræðingur Landsbankans, um stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans.

Hún segir að svo virðist sem allir séu að leggjast á eitt til að halda aftur af vöxtum og verðbólgu og það kunni Seðlabankinn að meta. Hún segir að það kunni þó að líða allnokkur tími áður en stýrivextir verða lækkaðir.

Una segir margt benda til þess að hagkerfið sé í ágætis stöðu.

„Við erum ekki að fara að horfa fram á neina kreppu þó að það hægi á efnahagsumsvifum og hagvöxtur verði minni.“

Hún segir að hátt vaxtastig hafi slæm áhrif á suma atvinnuvegi og að atvinnuleysi sé að aukast. Hún segir að Seðlabankinn hafi þurft að bregðast við olíukrísu með því að hækka vexti. Hún vonast þó eftir mjúkri lendingu.

Seðlabankinn og stjórnvöld ganga í takt ef þau síðarnefndu halda aftur af gjaldahækkunum en skila um leið hallalausum fjárlögum.

Hagkerfið er byrjað að kólna; hagvöxtur minnkar og atvinnuleysi eykst, og von er til þess að verðbólga fari minnkandi á næsta ári þar sem áhrif olíuverðshækkana eru að mestu gengin í gegn. Þetta segir Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri um ástæður þess að stýrivextir haldast óbreyttir.

„Ef verðbólgan lækkar þá getum við vonandi farið að lækka vextina. Það getur vonandi farið að gerast á næsta ári.“

Ásgeir rifjar upp að bankinn hafi verið byrjaður að lækka vexti áður en verðbólga fór að aukast á ný. Þá brá hann á það ráð að hækka vexti aftur. Nú kólni hagkerfið og því sé von til að verðbólga minnki.

Nærri sex prósenta verðbólga er allt of mikið og það er forgangsverkefni að ná henni niður, segir Ásgeir.

Það er alveg ljóst að heimilin bera töluverðan kostnað af verðbólgunni og háum vöxtum, sérstaklega þau heimili sem skulda. Svo eru auðvitað önnur heimili sem eiga sparifé. Þess vegna er þetta svo mikilvægt að það ætti að vera forgangsatriði fyrir aðila vinnumarkaðarins að ná verðbólgu niður og ná vöxtum niður. Þetta er það sem skiptir mestu máli fyrir lífskjör heimilanna, ekki endilega að fá fleiri krónur núna heldur að ná vöxtunum og verðbólgunni niður.“

Ásgeir fagnar samkomulagi Breiðfylkingarinnar og Samtaka atvinnulífsins um að samningar þeirra haldi gildi sínu. Hann lýsir áhyggjum af því að félög sem ekki stóðu að samkomulaginu í gærkvöld reyni að fara fram hjá því eða heimta meira.

„Ef þetta er bara það að þú frestar hækkun á verðinu þangað til eftir tvo mánuði, þá skiptir þetta kannski ekki mjög miklu máli, en ef þetta verður til þess að lenda þessu þannig að það verði ekki þessi víxlverkun, hún verði minni en ella, þá verður þetta jákvætt.“

Þetta sagði Þórarinn G. Pétursson, varaseðlabankastjóri peningastefnu, þegar hann var spurður um hvaða áhrif það hefði á verðbólguna að fyrirtæki hefðu ákveðið að fresta verðhækkunum.

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri sagði að styrking krónunnar gagnvart evru ætti að hjálpa fyrirtækjum til við að halda aftur af verðhækkunum.

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri sagði að útbreidd verðtrygging væri áhyggjuefni á Íslandi. Hann sagði að sú verðtrygging næði meðal annars til ríkisútgjalda og launa.

„Auðvitað er mjög nauðsynlegt að rjúfa þennan vítahring, að fara ekki núna aftur og heimta meiri launahækkanir sem fyrirsjáanlega munu bara leiða til meiri verðbólgu og enn hærri vaxta.“

Ásgeir sagði jákvætt að nokkur verkalýðsfélög hefðu samið um að samningar haldi og sagðist ekki hafa trú á öðru en að það sama myndi gerast á markaðinum öllum.

Þórarinn G. Pétursson varaseðlabankastjóri sagði tíðindi gærkvöldsins góð en að þau breyttu því ekki að laun væru að hækka mikið. Hann sagði ekki hægt að horfa fram hjá því að um áramót sé að vænta töluverðra launahækkana samkvæmt kjarasamningunum frá 2024.

Ásgeir var spurður út í áform stjórnvalda um að takmarka möguleika leigusala til að hækka húsaleigu. Hann sagði að allir hagfræðingar ættu að vita að það væri engin lausn að grípa til slíkra aðgerða.

„Þetta eru algjörlega röng viðbrögð sem koma leigjendum verst.“

Hann kvaðst ekki viss um að leigubremsa hefði mikil áhrif á verðbólgu til skemmri tíma.

VR, Landssamband íslenskra verslunarmanna og Fagfélögin sendu rétt í þessu frá sér tilkynningu þar sem þau segja að meirihluti félagsmanna hafi ekki fengið launahækkanir umfram kjarasamninga.

Þetta byggja samtökin á könnun sem Gallup gerði fyrir þau í september, í aðdraganda þess að ákveða þurfti hvort segja ætti upp kjarasamningum eða ekki.

Samkvæmt tilkynningu félaganna fengu 76 prósent svarenda ekki launahækkun umfram kjarasamningsbundnar hækkanir. Þetta segja félögin að sé þvert á yfirlýsingar atvinnurekenda um launaskrið á vinnumarkaði. Því nái launaskriðið aðeins til afmarkaðra hópa.

Forsvarsmenn VR, LÍV og Fagfélaganna hafa sagt að hluti félagsmanna hafi lækkað í launum að raunvirði þar sem kjarasamningsbundnar hækkanir hafi ekki haldið í við verðbólgu.

Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, segir það ábyrgðarhluta að kjarasamningsbundnar launahækkanir, sem koma eiga eftir áramót, haldi sér.

Hann segir það hafa verið mat þeirra félaga sem eru í Breiðfylkingunni að það væri ábyrgðarlaust að stefna íslenskum vinnumarkaði í átök um kjarasamninga á sama tíma og atvinnuleysi væri hátt, ásamt vöxtum og verðbólgu.

Aðkoma sveitarfélaga og stjórnvalda skiptir miklu máli, segir Vilhjálmur, auk loforða Samtaka atvinnulífsins um að beina þeim skilaboðum til atvinnulífsins að halda aftur af verðlagi.

Hann segist vona að allir taki höndum saman og er vongóður um að samningsstaðan verði orðin betri í lok næsta árs.

„Það skiptir máli að við náum hér tökum á þessum fjanda sem verðbólgan er.“

Aðgerðir stjórnvalda til að liðka fyrir því að kjarasamningar haldi voru meðal lykilforsenda fyrir því að Breiðfylkingin og Samtök atvinnulífsins komust að samkomulagi í gærkvöld um að samningum yrði ekki sagt upp.

Þær upplýsingar fengust í forsætisráðuneytinu að endanlegur aðgerðalisti ríkisstjórnarinnar og sameiginleg yfirlýsing ríkisstjórnar, Alþýðusambands Íslands, Samtaka atvinnulífsins og Sambands íslenskra sveitarfélaga væru ekki að fullu frágengin.

Samkvæmt upplýsingum úr ráðuneytinu stendur enn yfir samtal um endanlega útgáfu og verður greint frá efni aðgerðalistans og sameiginlegri yfirlýsingu þegar öllu því starfi er lokið.

Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, er ánægður með þá niðurstöðu sem náðist í gær við Breiðfylkinguna á íslenskum vinnumarkaði.

Hann segir að viðbótaraðgerðir frá ríkisstjórninni hafi opnað fyrir möguleikann á þeirri niðurstöðu.

Bjarni segir ljóst að atvinnulífið þoli ekki frekari launahækkanir.

„Við höfum of oft gerst sek um að reyna að kreista meira út en innistæða er fyrir og við borgum alltaf fyrir það með verðbólgu og of háu vaxtastigi.“

Bjarni segir þá stöðu leiða til þess að Samtök atvinnulífsins tali fyrir því að núgildandi kjarasamningar haldi.

VR og fagfélögin eiga enn í viðræðum við Samtök atvinnulífsins um framhald kjarasamninga.

Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, sagði á Morgunvaktinni á Rás 1 að stýrivaxtaákvörðunin hefði verið í samræmi við spár. Þótt verðbólga hefði aukist þá hefði verið ljóst að hún hefði líklega haldist óbreytt ef ekki hefði komið til hækkunar á virðisaukaskatti eftir tímabundna lækkun í sumar og hækkunar á olíuverði vegna átaka í Miðausturlöndum. Verðbólgan sé ekki drifin áfram af eftirspurn.

„En svo er auðvitað svolítið snúin staða. Það hefur hægst á á vinnumarkaði, það er aukið atvinnuleysi, sérstaklega meðal innfluttra og ungs fólks en það er líka að aukast hjá innlendu fólki. Staðan er þessi: við erum komin með mikla verðbólgu og hátt vaxtastig en hagkerfið er í kólnunarfasa.“

Stýrivextir standa í stað eftir að hafa hækkað síðustu þrjú skipti í röð sem peningastefnunefnd Seðlabankans hefur tilkynnt um stýrivaxtaákvörðun sína.

Peningastefnunefnd Seðlabankans ákvað að stýrivextirnir verði áfram 8,00 prósent. Nefndin var einróma um þessa ákvörðun sína. Nefndin vísaði til þess að þó verðbólga hafi ekki verið meiri í tvö ár séu sterkar vísbendingar um að hún minnki hratt á næstu árum.

Breiðfylkingin á íslenskum vinnumarkaði, sem samanstendur af Starfsgreinasambandi Íslands, Eflingu, Samiðn og Byggiðn, náði í gærkvöld samkomulagi við Samtök atvinnulífsins um að kjarasamningar gildi áfram.

Meðal forsenda fyrir því er að ríki og sveitarfélög takmarki gjaldskrárhækkanir við 2,5 prósent og að Samtök atvinnulífsins hvetji aðildarfyrirtæki sín til að halda aftur af verðhækkunum. Einnig ætlar ríkisstjórnin að leggja fram tvö frumvörp um réttindi launafólks, hækka barnabætur og takmarka hækkanir á húsaleigu.

VR og fagfélögin eiga enn í viðræðum við Samtök atvinnulífsins. Þar er samkomulag ekki í höfn. Verkalýðsfélögin hafa krafist kjarabóta eða úrbóta fyrir það félagsfólk sitt sem hefur hækkað minna í launum en sem nemur verðbólgu. Samtök atvinnulífsins hafa lýst því yfir að þau samþykki ekki meiri útgjöld en þegar hafi verið samið um 2024.

Góðan dag og velkomin á fréttavakt þar sem við fylgjumst með framvindu kjarasamninga og leitum viðbragða við ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankans um að halda stýrivöxtum óbreyttum.

Á morgun rennur út frestur til að segja upp kjarasamningum. Breiðfylking Starfsgreinasambandsins, Eflingar, Samiðnar og Byggiðnar gekk í gærkvöld frá samkomulagi við Samtök atvinnulífsins um að samningum yrði ekki sagt upp þó að verðbólga hafi verið það mikil í september að forsendur samningsins brustu.

VR og fagfélögin eiga enn í viðræðum við Samtök atvinnulífsins og ekki er orðið ljóst hvort samkomulag næst áður en fresturinn til að segja upp samningum rennur út á morgun.

#geta #lækkað #til #vexti #vonast


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/innlent/2026-10-07-vonast-til-ad-geta-laekkad-vexti-a-naesta-ari-489081

📰 Aðrar fréttir

Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 0
Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin - Vísir
Ásgeir var í viðtali við fréttastofu spurður hvernig fyrirtæki og sveitarfélög gætu staðið við loforð um að hækka verð og gjaldskrár ekki umfram 2,5 p...
„Eina vandamálið er að hún er kannski systir mín“
📅 07.10.2026 👁️ 0
„Eina vandamálið er að hún er kannski systir mín“
„Það gengur ótrúlega vel hjá mér og nýju kærustunni minni, sambandið er frábært og við pössum svo vel saman. Eina vandamálið er að hún er kannski syst...
Flugfreyja hjá Icelandair vill að aldraður læknir greiði henni eina og hálfa milljón vegna líkamsárásar og hótunar
📅 07.10.2026 👁️ 0
Flugfreyja hjá Icelandair vill að aldraður læknir greiði henni eina og hálfa milljón vegna líkamsárásar og hótunar
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur ákært mann fyrir líkamsárás, hótun og brot gegn loftferðum. Samkvæmt frétt Vísis er ákærði íslenskur læknir á nír...
Krefst skýringa á því hvers vegna annað eigi að gilda um Aþenu en önnur íþróttafélög í Reykjavík - „Hvar eru þau gögn?“
📅 07.10.2026 👁️ 0
Krefst skýringa á því hvers vegna annað eigi að gilda um Aþenu en önnur íþróttafélög í Reykjavík - „Hvar eru þau gögn?“
Töluvert hefur verið deilt um aðstæður körfuboltafélagsins Aþenu í Efra-Breiðholti. Brynjar Karl Sigurðsson þjálfari og einn helsti forvígismaður féla...
Sjúkt dýraklám fannst hjá Andrew Tate – Sýndi manneskjur í samförum við tvær dýrategundir
📅 07.10.2026 👁️ 0
Sjúkt dýraklám fannst hjá Andrew Tate – Sýndi manneskjur í samförum við tvær dýrategundir
Áhrifavaldurinn Andrew Tate, sem er grunaður um kynferðisbrot og var framseldur til Bretlands, var með dýraklám í símanum sínum. Hann tók einnig upp k...
Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tón­list í pólitískum á­róðri - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 0
Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tón­list í pólitískum á­róðri - Vísir
Sverrir er einn þekktasti tónlistarmaður landsins og situr á þingi fyrir Samfylkinguna í Suðurkjördæmi. Hann tók sæti sem varaþingmaður fyrir Víði Rey...
Ru­bio hafi stað­fest varnar­skuld­bindingar gagn­vart Ís­landi - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 0
Ru­bio hafi stað­fest varnar­skuld­bindingar gagn­vart Ís­landi - Vísir
Heimsókn Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hingað til lands lauk í gær eftir fundi með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra og...
Breyti mynd­böndum af börnum að borða og dansa í barnaníðs­efni - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 0
Breyti mynd­böndum af börnum að borða og dansa í barnaníðs­efni - Vísir
Guðný var til viðtals í Bítinu en fyrr í vikunni var greint frá því að tilkynnt um kynferðisbrot til lögreglu á fyrri árshelmingi hafi ekki verið flei...
Bein út­sending: Kennarar boða til tíðinda - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 0
Bein út­sending: Kennarar boða til tíðinda - Vísir
Í tilkynningu frá KÍ segir að þetta sé í fyrsta sinn sem sambandið leggi fram sína sýn á þennan hátt.  Þar er einnig skrifað að íslenskt menntakerfi s...
Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 0
Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu - Vísir
Áður hefur verið greint frá því að tugir manna hafi verið settir í sóttkví í Síberíu í Rússlandi eftir að starfsmaður rannsóknarstofu sem hefur það að...
Kona stungin til bana við mat­vöru­verslun í Malmö - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 0
Kona stungin til bana við mat­vöru­verslun í Malmö - Vísir
Árásin átti sér stað í Bellevuegården-hverfi í Malmö um klukkan tíu í morgun að sænskum tíma, að því er kemur fram í frétt sænska ríkisútvarpsins. Kon...
Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin - Vísir
Ásgeir var spurður um stöðu kjarasamninga og afstöðu Höllu Gunnarsdóttur, formanns VR, til sambands launa og verðbólgu að loknum kynningarfundi Seðlab...
Sagði upp fimm konum þegar hún gaf honum úrslitakosti
📅 07.10.2026 👁️ 0
Sagði upp fimm konum þegar hún gaf honum úrslitakosti
Leikarinn Michael Douglas lætur allt flakka í nýrri sjálfsævisögu, One Helluva Ride.Hann segir meðal annars frá upphafi sambands hans og eiginkonu sin...
Katrín Lóa opnar sig um óhugnanlega upplifun í Liverpool
📅 07.10.2026 👁️ 0
Katrín Lóa opnar sig um óhugnanlega upplifun í Liverpool
Katrín Lóa Kristrúnardóttir varð fyrir alvarlegri áreitni á bar í Liverpool á Englandi um helgina, þegar hún sagði dyraverðinum hvað gerðist vildi han...
Sambandið með nýju kærustunni frábært – „Eina vandamálið er að hún er kannski systir mín“
📅 07.10.2026 👁️ 0
Sambandið með nýju kærustunni frábært – „Eina vandamálið er að hún er kannski systir mín“
„Það gengur ótrúlega vel hjá mér og nýju kærustunni minni, sambandið er frábært og við pössum svo vel saman. Eina vandamálið er að hún er kannski syst...
Getur tekið heilu kynslóðirnar að ná jafnvægi eftir sameiningu
📅 07.10.2026 👁️ 1
Getur tekið heilu kynslóðirnar að ná jafnvægi eftir sameiningu
Það getur tekið heilu kynslóðirnar að sníða vankantana af sameiningu sveitarfélaga og ágreiningsefnin geta verið afar fjölbreytt, segir Eva Marín Hlyn...
Sex at­vinnu­lausir um hvert laust starf - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Sex at­vinnu­lausir um hvert laust starf - Vísir
Þróunin á vinnumarkaði var meðal þess sem Seðlabankinn fjallaði um á kynningarfundi í morgun eftir að peningastefnunefnd ákvað að halda meginvöxtum ób...
500 krónur mun kosta að aka yfir nýja Ölfusárbrú
📅 07.10.2026 👁️ 0
500 krónur mun kosta að aka yfir nýja Ölfusárbrú
Um 80 manns vinna við smíði Ölfusárbrúarinnar og er verkið töluvert á undan áætlun. Brúin verður um tvö þúsund tonn að þyngd.Það er allt á fullu við b...
Tékkland tekur ekki þátt í Eurovision
📅 07.10.2026 👁️ 1
Tékkland tekur ekki þátt í Eurovision
Tékkneska ríkisútvarpið tilkynnti í dag að Tékkland verði ekki meðal þátttakenda í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, eða Eurovision, á næsta ári...
Hefur áhyggjur af því að félög sem sömdu ekki í gær reyni að heimta meira
📅 07.10.2026 👁️ 0
Hefur áhyggjur af því að félög sem sömdu ekki í gær reyni að heimta meira
Hagkerfið er byrjað að kólna; hagvöxtur minnkar og atvinnuleysi eykst, og von er til þess að verðbólga fari minnkandi á næsta ári þar sem áhrif olíuve...
Police rescue young woman from sea in Playa de las Américas
📅 07.10.2026 👁️ 0
Police rescue young woman from sea in Playa de las Américas
National Police officers have rescued a 24-year-old woman who was struggling to stay afloat in the sea off Playa de las Américas in South TenerifeThe ...
Raflína í Moldóvu nefnd eftir Trump
📅 07.10.2026 👁️ 1
Raflína í Moldóvu nefnd eftir Trump
Ný raflína sem tengja á Moldóvu við Rúmeníu verður nefnd eftir Donald Trump Bandaríkjaforseta og mun bera nafnið „Trump Liberty Line“.Bandaríkin leggj...
Bein út­sending: Á­skoranir á norður­slóðum - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Bein út­sending: Á­skoranir á norður­slóðum - Vísir
„Norðurslóðir standa nú frammi fyrir töluverðum áskorunum. Loftslagsbreytingar eru að endurmóta vistkerfi með áður óþekktum hraða, á sama tíma og auki...
Samfylking og Framsókn ræða meirihlutamyndun í Suðurnesjabæ
📅 07.10.2026 👁️ 0
Samfylking og Framsókn ræða meirihlutamyndun í Suðurnesjabæ
Samfylkingin og Framsóknarflokkurinn í Suðurnesjabær eiga í óformlegum samtölum um myndun nýs meirihluta. Meirihluti Samfylkingar og D-listans sprakk ...
Banda­rískir her­menn í út­göngu­banni eftir morð - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 0
Banda­rískir her­menn í út­göngu­banni eftir morð - Vísir
Devin Jacob Ballard, tuttugu ára liðþjálfi í bandaríska hernum, er grunaður um að hafa orðið Önna Yagi, 39 ára japanskri konu, að bana á hóteli í borg...
Plans to limit peak-season flight prices in the Canary Islands
📅 07.10.2026 👁️ 0
Plans to limit peak-season flight prices in the Canary Islands
Temporary price caps on flights between the Canary Islands and mainland Spain are being considered to help residents facing soaring fares during Chris...
Glap­ræði að hafna væntan­legri launa­hækkun - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 0
Glap­ræði að hafna væntan­legri launa­hækkun - Vísir
Í gær undirritaði Breiðfylkingin, sem samanstendur af Starfsgreinasambandinu, Eflingu, Samiðn og Byggiðn, undir framlengingu kjarasamninga. Aðspurð hv...
Brynhildur fagnaði 26 árum í Sykursalnum
📅 07.10.2026 👁️ 1
Brynhildur fagnaði 26 árum í Sykursalnum
Áhrifavaldurinn Brynhildur Gunnlaugsdóttir fagnaði 26 ára afmæli sínu í Sykursalnum í Grósku.Hún hélt heljarinnar búningapartí og var klædd sem poppdí...
Vin­sældirnar skipti miklu máli fyrir arf­leifð Johns Snorra - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 0
Vin­sældirnar skipti miklu máli fyrir arf­leifð Johns Snorra - Vísir
Heimildarmynd um hinstu för íslenska fjallgöngugarpsins Johns Snorra upp á tind fjallsins K2 að vetri til árið 2021 kom út á dögunum á streymisveitu A...
Segja bók um Guðmund Elíasson vera furðuverk uppfullt af rangfærslum – Systkinum hans fækkað úr fimm í þrjú
📅 07.10.2026 👁️ 1
Segja bók um Guðmund Elíasson vera furðuverk uppfullt af rangfærslum – Systkinum hans fækkað úr fimm í þrjú
Þau Örn Ólafsson, Ingibjörg Ólafsdóttir og Pjetur Hafstein Lárusson gera alvarlegar athugasemdir við nýja bók um Guðmund Elíasson myndhöggvara. Bókin ...
Christa Pike framdi annan hrottalegan glæp í fangelsinu
📅 07.10.2026 👁️ 1
Christa Pike framdi annan hrottalegan glæp í fangelsinu
Christa Pike, hinn dauðadæmdi fangi í Tennessee sem lifði af aftökutilraun í lok síðasta mánaðar, er vöknuð úr dái. Ekki eru allir á einu máli um hvað...
Kjara­bar­átta kennara bitni á námi barnanna - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 2
Kjara­bar­átta kennara bitni á námi barnanna - Vísir
„Það vakti verðskuldaða athygli í upphafi árs þegar Inga Sæland, nýr mennta- og barnamálaráðherra, gekk vasklega fram með aðgerðir til að bæta íslensk...
Ex-bankers jailed for rigging rates have convictions quashed
📅 07.10.2026 👁️ 2
Ex-bankers jailed for rigging rates have convictions quashed
Jay Merchant, Jonathan Mathew, Philippe Moryoussef, Alex Pabon, Colin Bermingham had their convictions overturned by the Court of Appeal.
Sól­veig Anna segir glap­ræði að segja upp samningum - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Sól­veig Anna segir glap­ræði að segja upp samningum - Vísir
Fjallað verður um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu 12. Seðlabankastjóri sér ekki fram á vaxtalækkun fyrir áramót og segir skammsýni að legg...
Átta særð í hnífaárás í pólskum skóla
📅 07.10.2026 👁️ 1
Átta særð í hnífaárás í pólskum skóla
Átta hið minnsta eru særð eftir hnífaárás í borginni Ostrołęka í Póllandi í morgun. Samkvæmt frétt pólska ríkisútvarpsins eru fimm hinna særðu á barns...
Lækna-Tómas og Ár­mann skemmtu sér á safninu - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 0
Lækna-Tómas og Ár­mann skemmtu sér á safninu - Vísir
Það var líf og fjör á þessari tvöföldu sýningaropnun. Sigurður Guðjónsson sýnir Hulu, seiðmagnað myndbandsverk sem er tekið í einni samfelldri, sextíu...
Fjögur börn meðal ní­tján látinna í á­rásum á af­mælis­degi Pútíns - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Fjögur börn meðal ní­tján látinna í á­rásum á af­mælis­degi Pútíns - Vísir
Auk þeirra látnu eru að minnsta kosti sextíu aðrir sárir eftir árásir næturinnar, að sögn úkraínskra yfirvalda. Börnin fjögur voru á meðal þrettán man...
Leigubremsan „aug­ljós­lega mjög heimsku­leg“ - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Leigubremsan „aug­ljós­lega mjög heimsku­leg“ - Vísir
Ásgeir lét ummælin falla á blaðamannafundi vegna vaxtaákvörðunar peningastefnunefndar í morgun. Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræðingur Íslandsbanka, sp...
Hús­gagna­dagar hafnir í JYSK með allt að 40% af­slætti - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 0
Hús­gagna­dagar hafnir í JYSK með allt að 40% af­slætti - Vísir
Björgvin Þór Smárason, verslunarstjóri JYSK á Selfossi, segir úrvalið og samspil verðs og gæða vera meðal helstu styrkleika fyrirtækisins. „Við erum m...
Miður að opinberir starfsmenn hafi ekki fengið að koma að borðinu
📅 07.10.2026 👁️ 3
Miður að opinberir starfsmenn hafi ekki fengið að koma að borðinu
Sonja Ýr Þorbergsdóttir formaður BSRB segir að stýrivaxtaákvörðun morgunsins komi ekki á óvart og sé í takt við spár. Peningastefnunefnd Seðlabanka Ís...
Reform internal inquiry says party did not break law over donations sting
📅 07.10.2026 👁️ 1
Reform internal inquiry says party did not break law over donations sting
Officials were recorded by undercover journalists discussing a potential way to secure foreign donations to the party.
Davíð íþróttakennari segir þetta vekja spurningar um hreyfingu barna
📅 07.10.2026 👁️ 2
Davíð íþróttakennari segir þetta vekja spurningar um hreyfingu barna
Davíð Már Sigurðsson, sund- og íþróttakennari, furðar sig á því að nemendur allt niður í fjórða bekk þurfi að fá leyfi frá hreyfitímum innan grunnskól...
Ásgeir ekki hrifinn: „Náttúrulega bara augljóslega mjög heimskuleg“
📅 07.10.2026 👁️ 3
Ásgeir ekki hrifinn: „Náttúrulega bara augljóslega mjög heimskuleg“
„Leigubremsan er náttúrulega bara augljóslega mjög heimskuleg,“ sagði Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri á fundi bankans í morgun þegar hann var spurður ...
Fjórir Afganar dæmdir fyrir að nauðga 17 ára stúlku – Þrír fögnuðu á myndbandi þegar þeir flúðu Bretland
📅 07.10.2026 👁️ 2
Fjórir Afganar dæmdir fyrir að nauðga 17 ára stúlku – Þrír fögnuðu á myndbandi þegar þeir flúðu Bretland
Fjórir afganskir ríkisborgarar hafa verið dæmdir fyrir að nauðga 17 ára stúlku í Bristol á Englandi. Þrír þeirra flúðu land í flutningabíl eftir árási...
Minnst 19 drepnir í árásum á Úkraínu – ESB bætir í fjármagn til Úkraínu
📅 07.10.2026 👁️ 2
Minnst 19 drepnir í árásum á Úkraínu – ESB bætir í fjármagn til Úkraínu
Minnst 19 voru drepnir þegar Rússar gerðu árásir víða í Úkraínu í nótt. Af þeim voru 13 drepnir þegar fjölbýlishús var sprengt í bænum Pryluky, sem er...
Draga til baka hand­töku­skipun á hendur leið­toga katalónskra aðskilnaðar­sinna - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 2
Draga til baka hand­töku­skipun á hendur leið­toga katalónskra aðskilnaðar­sinna - Vísir
Dómari dró handtökuskipunina til baka tímabundið á meðan hann tekur afstöðu til þess hvort að Puigdemont eigi að hljóta sakaruppgjöf á grundvelli ford...
Fangaverðir í þjálfun grunaðir um að berja fanga
📅 07.10.2026 👁️ 3
Fangaverðir í þjálfun grunaðir um að berja fanga
Tveir fangaverðir eru grunaðir um að hafa gengið í skrokk á fanga í Vestre-fangelsinu í Kaupmannahöfn. Fangaverðirnir eru báðir frá Kosovo. Þeir eru í...
Aðgerðalisti ríkisstjórnarinnar ekki fullfrágenginn
📅 07.10.2026 👁️ 2
Aðgerðalisti ríkisstjórnarinnar ekki fullfrágenginn
Aðgerðalisti ríkisstjórnarinnar ekki fullfrágenginn Að­gerðalisti rík­is­stjórn­ar­inn­ar sem ætl­að er að styðja við kjara­samn­inga á al­menn­um vin...
Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 0
Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum - Vísir
Keppnin var sannarlega æsispennandi og ekki í fyrsta sinn sem Simmi og Auddi keppa sín á milli í sjónvarpi en margir muna eftir þeim frá 70 mínútum ár...
Joshua Kerry in court charged with preparing acts of terror against Nigel Farage
📅 07.10.2026 👁️ 2
Joshua Kerry in court charged with preparing acts of terror against Nigel Farage
Joshua Kerry, 28, appeared at Westminster Magistrates Court and was remanded in custody.