Gera má ráð fyrir miklum töfum á umferð á Suðurlandsvegi í dag vegna vegframkvæmda. Framkvæmdirnar hófust klukkan níu í morgun á Suðurlandsvegi við Hólmsá og standa til klukkan átta í kvöld.
Á samfélagsmiðlum hafa vegfarendur varað við töluverðum töfum.
Verið er að fræsa og malbika veginn við Hólmsá og verður umferð stýrt framhjá framkvæmdum og vegfarendur beðnir um að sýna aðgát og virða merkingar.