Vefmiðillinn Vísir hefur sent frá sér leiðréttingu vegna fréttar sem birtist fyrir nærri tveimur vikum þar sem ranglega var haft eftir Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra að hún hefði rætt við Rob Jetten forsætisráðherra Hollands.
Fyrr um daginn hafði Morgunblaðið greint frá ummælum forsætisráðherrans í hollenska þinginu, þar sem hann svaraði því til að það væri stefna hollensku stjórnarinnar að fiskveiðistefna ESB væri ófrávíkjanleg fyrir ný aðildarríki.
Í viðtalinu við Vísi var Þorgerður spurð út í þessi ummæli forsætisráðherrans og haft eftir henni óbeint að ummælin væru ekki í samræmi við samtöl hennar við Jetten og fleiri.
Í kjölfarið sendi Morgunblaðið fyrirspurn á hollensk stjórnvöld þar sem spurt var út í það hvort Jetten eða aðrir fulltrúar hollenskra stjórnvalda hefðu sagt fulltrúum íslenskra stjórnvalda að slíkar undanþágur kæmu til greina.
Svar hollenskra stjórnvalda var á þá leið að engum slíkum undanþágum hefði verið lofað.
Þingmenn stjórnarandstöðunnar og fyrrverandi utanríkisráðherrar eru meðal þeirra sem höfðu gagnrýnt Þorgerði og velt því upp hvort hún hefði vitnað í óformlegt spjall við forsætisráðherra Hollands, sem ekki hefði átt að greina frá opinberlega.
Sagðist í raun aldrei hafa rætt við Jetten
Í leiðréttingu sem Vísir sendi frá sér nú síðdegis kemur hins vegar fram að Þorgerður hafi í raun aldrei sagst hafa talað við forsætisráðherra Hollands.
Vísir birtir orðrétt það sem fór blaðamanni og henni á milli. Þar segir Þorgerður meðal annars: „Þetta [ummæli Jettens í hollenska þinginu] er ekki í samræmi við mín samtöl, meðal annars við Hollendinga og mína kollega.“
Þá sagði hún síðar í viðtalinu: „Þetta [að undanþágur séu til umræðu] hefur komið fram hjá stækkunarstjóra Evrópusambandsins, hjá fiskveiðistjóra Evrópusambandsins og í rauninni líka við mína kollega, hvort sem það er frá Þýskalandi, Spáni, Írlandi, Slóvakíu og ég get nefnt þá miklu, miklu fleiri.“