Áform Orkusölunnar um að reisa tvær vindmyllur við Lagarfossvirkjun á Héraði hafa vakið úlfúð í nærsamfélaginu. Heimastjórn leggst gegn framkvæmdinni og bændur skora á sveitarfélagið að hafna henni um leyfi.
Orkusalan vill reisa tvær vindmyllur við Lagarfossvirkjun á Héraði, allt að 160 m á hæð. Umsagnarfrestur við mat á umhverfisáhrifum rann út fyrir helgi. Landeigendur í grennd við fyrirhugaðar vindmyllur safna nú undirskriftum til að hvetja Múlaþing til að hafna áformum Orkusölunnar.
Safna undirskriftum til hvatningar Múlaþings
Helga Rún Steinarsdóttir, sauðfjárbóndi á Kirkjubæ sem er í rúmra tveggja km fjarlægð frá Lagarfossvirkjun, stofnaði undirskriftalistann: „Ég vil vera tilbúin með skýra afstöðu þeirra sem búa hérna og nærsamfélagsins þegar Múlaþing fer að taka þetta til sín.“
Í fyrstu hafði Orkusalan hug á því að reisa vindmyllur á Héraðssandi en Fljótsdalshérað féllst ekki á þau áform. Sveitarfélagið sameinaðist síðar þremur öðrum í Múlaþing. Þá lagði Orkusalan til að reisa myllurnar á iðnaðarlóð fyrirtækisins þar sem Lagarfossvirkjun var fyrir.
Iðnaðarlóðin umkringd landbúnaðarlandi
Kristjana Júníusdóttir, ferðaþjónustubóndi á Ekru sem er tæpum tveimur km frá virkjuninni, bendir á að það sé sérstakt að á iðnaðarlóð séu ekki jafn ríkar skyldur, þrátt fyrir að lóðin sé umkringd landbúnaðarlandi. Aðalskipulag Múlaþings má sjá hér.
„Það liggur alveg ljóst fyrir, okkur finnst það alveg galið að setja þetta ofan í landbúnaðarland sem á að njóta þess að vera það sem það er,“ segir Kristjana. Hún bendir á að hún hafi sitt lifibrauð af ferðaþjónustu og selji meðal annars gistingu í sumarhúsum sem eru aðeins um hálfan kílómetra frá virkjunarstað.
„Það næði og sá friður og sú náttúruumgjörð sem á að vera í kringum mín hús sé bara einskis virði þegar peningar eru annars vegar.“
Vindmyllurnar fara líklega í rammaáætlun
Í sumar var lögum um rammaáætlun breytt svo vindorkumannvirki yfir 30 metrum þurfa öll að fara í gegnum rammaáætlun. Orkusalan telur líklegt að vindmylluáformin á Héraði séu þar með talin.
Í skriflegu svari við spurningum fréttastofu bendir Heiða Halldórsdóttir, forstjóri Orkusölunnar, á að í tengslum við verkefnið hafi verið framkvæmdar umfangsmiklar rannsóknir, meðal annars á áhrifum á fuglalíf, gróður, landslag og ásýnd, hljóðvist, útivist og ferðamennsku.
Í umsögn heimastjórnar Fljótsdalshéraðs er bent á að vindmyllurnar geti haft neikvæð sjónræn áhrif og áhrif á hljóðvist. Þá skorti ítarlegri upplýsingar um fyrirhugaða flutningsleið og beint samráð við íbúa og hagsmunaaðila. Heiða segir sveitarstjórn Múlaþings hafa verið vel upplýsta um verkefnið og samskipti hafi verið góð.