Alls hafa um 120 jarðskjálftar mælst á Hellisheiði vestan Hellisheiðarvirkjunar frá því í morgun. Íbúar í Hveragerði hafa orðið hressilega varir við skjálftahrinuna, sem einn viðmælandi mbl.is lýsti sem „viðstöðulausri“.
Sá stærsti þeirra skjálfta sem mælst hafa var um 3,3 að stærð samkvæmt fyrstu mælingum og varð fyrir um 20 mínútum síðan, og þá hafa nokkrir aðrir mælst yfir þremur að stærð.
Kraftur færðist í hrinuna rétt um klukkan 16.30, og hafa síðan þá nokkrir skjálftanna fundist á höfuðborgarsvæðinu austanverðu.
Stendur ekki á sama
Í hverfishópum á Facebook hafa íbúar Hveragerðis lýst áhyggjum af stærð skjálftanna og eiga einhverjir þeirra í erfiðleikum með að svæfa börn sín vegna hrinunnar.
„Þessi var stór... mér stendur ekki á sama,“ segir í einni færslunni, og í athugasemdum velta Hvergerðingar því fyrir sér hversu margir skjálftar hafa fundist í bænum í dag.
Skjálftar og skjálftahrinur eru þó nokkuð algengar á þessu svæði samkvæmt tilkynningu Veðurstofunnar, en síðast varð álíka hrina í júní 2024.
