„Við förum ekki héðan. Suður-Líbanon er landið okkar, andi og sál, heimilið og heiður okkar,“ segir Fatima Sleiman sem er á flótta frá suðurhluta landsins. Hún segir Líbani ekki ætla að láta það sem kom fyrir Palestínumenn henda þá.
„Þetta er okkar land. Látum þá fara, látum þá taka saman föggur sínar og fara heim.“
Að minnsta kosti sextán voru drepnir og hátt í sextíu særðust í umfangsmiklum loftárásum Ísraelshers á Beirút og suðurhluta Líbanon í dag. Talsmaður Ísraelshers segir herinn gera árásir um allt land. Forsætisráðherra Ísraels tilkynnti fyrr í vikunni að herinn ætlaði að auka hernaðaraðgerðir í Líbanon. Fulltrúar ríkjanna tveggja hittast á fundi í Bandaríkjunum á morgun.