Um 2500 manns komu saman á Arnarhóli í dag og gengið var í Hljómskálagarðinn þar sem fluttar voru ræður, ljóð og tónlistaratriði. Græna gangan var fyrst farin fyrir tuttugu árum – og síðast árið 2013.
Gangan var skipulögð af breiðum hópi náttúruverndarsinna og -samtaka. Þau skora á stjórnvöld að leggja meiri áherslu á náttúruvernd og umhverfismál.
Krefjast þess að náttúrunni sé sýnd meiri virðing og varúð
„Við viljum sjá að náttúrunni verði sýnd miklu meiri virðing og varúð heldur en núna þegar eingöngu er litið á náttúruna sem nýtingartækifæri fyrir allt mögulegt,“ segir Björg Eva Erlendsdóttir framkvæmdastjóri Landverndar.
„Við viljum forgangsröðun í orkuöflun. Við viljum umhverfisráðuneyti og við viljum aukið lýðræði en ekki að það sé bara unnið alltaf að því að koma framkvæmdum sem hraðast af stað, sama hvaða usla þær valda,“ segir Björg.
Fyrrum landsliðsþjálfarinn fór um víðan völl; „Mér finnst Ísland allt vera til sölu“
Guðmundur Guðmundsson, fyrrum þjálfari handboltalandsliðsins, fór um víðan völl í erindi sínu. Hann lýsti meðal annars áhyggjum af íslenska laxastofninum, stórtækum virkjanaáætlunum stjórnvalda og fyrirhuguðum vindorkugörðum erlendra aðila svo eitthvað sé nefnt.
„Mér finnst Ísland allt vera til sölu. Það eru jarðirnar í landinu, það eru firðirnir, það eru fjöllin, vindurinn, sandurinn og það eru erlendir aðilar sem eru að seilast í þetta,“ segir Guðmundur.
Heillaðist af náttúru Íslands á ferðalagi sem barn
Náttúruvernd hefur lengi verið honum ofarlega í huga. „Ég hugsa að það hafi bara gerst þegar ég var ungur drengur og ferðaðist um landið. Þegar ég var unglingur ferðaðist ég síðan um hálendi Íslands og tók myndir og einhvern veginn hef ég náð að skynja þessa náttúru vel,“ segir hann.
„Ég held að við verðum að gera okkur grein fyrir því áður en það er of seint hvers virði víðernin eru, hálendið okkar og svo framvegis,“ segir Guðmundur.
Enginn stjórnmálaflokkur leggi áherslu á náttúruvernd og ráðherra mikill áhugamaður um virkjanir
Hann segir það sorglega staðreynd að enginn stjórnmálaflokkur á Alþingi sé með náttúruvernd á dagskrá. „Við erum með umhverfisráðherra sem virðist engan áhuga hafa á umhverfisvernd. Hann er mikill áhugamaður um virkjanir og hefur lagt mikla áherslu á það,“ segir hann.
„En það hefur ekkert farið fyrir þessu umhverfisráðuneyti. Það virðist bara vera alveg horfið og þessi staða umhverfisráðherra, það er ekki verið að sinna þessu,“ segir Guðmundur.