Enn ber talsvert í milli í kjaradeilu Flugvirkjafélags Íslands og Icelandair og engir fundir hafa verið boðaðir. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um inngrip stjórnvalda. Að óbreyttu stefnir í að ótímabundið verkfall flugvirkja hefjist á miðnætti.
Þreifingar í dag en engin niðurstaða
Ástráður Haraldsson, ríkissáttasemjari, segist í samtali við fréttastofu hafa hvorki séð ástæðu til að boða til fundar í dag né veita viðtal. Hann hafi ekkert að segja um stöðuna nema það að enginn samningsgrundvöllur sé í augnsýn.
Fulltrúar samningsaðila vildu ekki veita fréttastofu viðtal í dag. Óskar Einarsson, formaður Flugvirkjafélags Íslands, staðfesti þó að þreifingar hafi átt sér stað í dag, en engin niðurstaða.
Öllum flugferðum Icelandair sem eiga að fara í fyrramálið, bæði innanlands og millilanda, verður aflýst í kvöld ef af verkfalli flugvirkja verður. Eftir það á að meta aðstæður eftir því sem á líður, samkvæmt svari frá Icelandair.
Áherslan á samningaviðræður, ekki afskipti ríkisstjórnarinnar
Um 150 þúsund farþegar fara með flugi Icelandair að jafnaði á sólarhring, í um 110 ferðum, þar af tuttugu innanlands. Yfirvofandi verkfall og afleiðingar þess voru rædd á ríkisstjórnarfundi í morgun.
Alþingi getur sett sérstök lög sem banna, stöðva eða fresta verkfalli ef meirihluti Alþingis samþykkir slíkt frumvarp.
Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra vildi ekki staðfesta að slík umræða hefði átt sér stað á fundinum né svara því á hvaða tímapunkti væri rétt að ráðast í slíka lagasetningu. Áherslan væri á samningaviðræður, ekki afskipti ríkisstjórnarinnar.
FÍA og FFÍ styðja flugvirkja
Félag íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) og Flugfreyjufélag Íslands (FFÍ) lýsa yfir fullum stuðningi við flugvirkja í kjarabaráttunni og við boðaðar verkfallsaðgerðir.
„Verkföll eru ávallt neyðaraðgerð þegar samningsumleitanir hafa ekki skilað árangri. FÍA skorar á samningsaðila að leita allra leiða til að finna samningsgrundvöll, svo afstýra megi verkfalli,“ segir í yfirlýsingu á heimasíðu FÍA.
Flugfreyjufélagið segir flugvirkja gegna lykilhlutverki í íslenskum flugsamgöngum og tryggja öryggi farþega og áhafna. Störf þeirra séu ábyrgðarmikil og oft við krefjandi aðstæður þar sem fagmennska, þekking og reynsla skipta höfuðmáli.
„FFÍ stendur með FVFÍ og styður rétt þeirra til að fylgja eftir kröfum sínum með þeim aðferðum sem félagsfólk þeirra hefur samþykkt og gilda á íslenskum vinnumarkaði.“
FFÍ hvetur samningsaðila til að nýta þann skamma tíma sem er til stefnu til að ná samkomulagi, svo ekki komi til verkfalls né að beitt verði lagasetningu Alþingis á verkfall þeirra.
Enn ekki búið að semja við flugmenn og flugfreyjur
Kjarasamningar bæði FÍA og FFÍ hafa verið lausir frá því haustið 2025. FÍA hefur átt í viðræðum við Icelandair undanfarna mánuði. Til stóð að klára kjarasamninga í síðustu viku en það gekk ekki eftir.
Samningsaðilar sammæltust um það í júní að vinna eftir verkáætlun ríkissáttasemjara undir friðarskyldu. Markmiðið var að ljúka viðræðum um endurnýjun kjarasamnings fyrir 15. september. Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari segir ekki liggja fyrir hversu langt sé í land í viðræðunum. Tillaga um nýja tímaáætlun hafi ekki verið lögð fram.
Lítið hefur þokast í samningaviðræðum FFÍ og Icelandair á undanförnum vikum. Samkvæmt heimildum fréttastofu var samningafundi sem átti að eiga sér stað í september frestað og ekki er komin tímasetning á nýjan fund.