„Tíminn til aðgerða er núna. Líkurnar á að við sjáum okkur nauðugan þann kost einan að segja upp kjarasamningum aukast með hverjum deginum á meðan ekkert er að gert,“ segir í aðsendri grein í Morgunblaðinu frá sex verkalýðsforingjum.Þetta eru þau Halla Gunnarsdóttir, Jakob Tryggvason, Andri Reyr Haraldsson, Eiður Stefánsson, Gunnar Sigurðsson og Óskar Hrafnfjörð Gunnarsson; formenn VR, RSÍ, FÍR, LÍV, VM og MATVÍS.
Verkalýðsforingjar segja líkur á uppsögn kjarasamninga fara vaxandi