Fyrstu niðurstöður nýs áhættumats fyrir Grindavík hafa verið birtar. Miðað við þær eru forsendur fyrir varanlegri búsetu og skólahaldi í Grindavík ásættanlegar að því gefnu að gerðar séu nauðsynlegar öryggisráðstafanir.
Forsætisráðuneytið og Grindavíkurbær boða til opins fundar í Gjánni í Grindavík klukkan átta í kvöld þar sem niðurstöðurnar verða kynntar íbúum.
Í tilkynningu frá stjórnarráðinu segir að niðurstöðurnar skapi grundvöll fyrir næstu skref við endurreisn Grindavíkur, meðal annars með því að hefja undirbúning að því að bjóða Grindvíkingum að kaupa aftur íbúðarhúsnæði í bænum.
Sambærilegt öðrum byggðarlögum sem búa við náttúruvá
Í apríl var það mat Grindavíkurnefndar að ekki væru forsendur til að hefja skólahald að nýju í Grindavík. Það mat féll aftur á móti ekki í góðan jarðveg á meðal Grindvíkinga og ákvað bæjarstjórnin að hefja samt skólastarf í bænum eftir rúmlega þriggja ára hlé.
Síðan þá hefur nýtt áhættumat verið unnið af hópi sérfræðinga, stjórnvöldum og fulltrúum Grindvíkinga.
Samkvæmt því eru aðstæður í Grindavík sambærilegar við aðra bæi sem búa við langvarandi náttúruvá að því gefnu að hugað sé að öryggi.
Aðstæður áfram sérstakar
Þá er talið að daglegt öryggi fólks í Grindavík í dag sé ásættanlegt, sem og öryggi við rýmingar.
Aðstæður í Grindavík eru þó áfram sérstakar þar sem ógnin er viðvarandi allan sólarhringinn og allt árið þar til goslokum hefur verið lýst yfir.
Vinnu við heildstætt áhættumat fyrir bæjarfélagið verður því haldið áfram og matið endurskoðað reglulega eftir því sem aðstæður, þekking og reynsla þróast.