Um eitt þúsund farþegar Icelandair sem eiga að fljúga frá Bandaríkjunum til Evrópu í kvöld, með millilendingu á Íslandi, verða endurbókaðir í flug með öðrum flugfélögum síðar í dag, eftir því sem pláss leyfir.
Þetta verða fyrstu aðgerðir Icelandair til að bregðast við yfirvofandi verkfalli flugvirkja – ef undan er skilið að flugfélagið bauð farþegum sem áttu að fljúga á morgun og hinn að breyta flugi sínu. Verkfallið hefst á miðnætti ef ekki semst fyrir þann tíma.
Icelandair flýgur að jafnaði um 110 ferðir á sólarhring, þar af 20 innalands, með um 15 þúsund farþega.
Icelandair hefur sett upp áætlun um viðbrögð við verkfalli, samkvæmt svari við fyrirspurn fréttastofu.
Til stendur að ákveða í kvöld að aflýsa öllum flugferðum í fyrramálið svo farþegar viti hvers er að vænta. Þetta verður gert í síðasta lagi um það leyti sem verkfallið hefst.
Eftir það á að meta aðstæður eftir því sem á líður. Flugferðir verða felldar niður með minnst fjögurra til sex klukkustunda fyrirvara svo farþegar þurfi ekki að fara út á flugvöll vegna ferða sem ekki verða flognar. Einnig gefst fólki færi á að endurbóka flug þegar nær dregur brottför samkvæmt áætlun.
Farþegar eiga rétt á endurbókun eða endurgreiðslu um leið og flug er fellt niður og segir Icelandair að fólk verði upplýst um þennan rétt sinn.