Kærunefnd útlendingamála hefur staðfest ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja konu frá Afríkuríki og barni hennar um alþjóðlega vernd. Hafði konan sótt um vernd á grundvelli þess að hún hefði orðið og ætti hættu á að verða fyrir ofsóknum í heimalandinu vegna kynhneigðar sinnar. Nefndin leggur hins vegar fyrir Útlendingastofnun að veita konunni og barninu dvalarleyfi.
Hinsegin konu synjað um alþjóðlega vernd en fær samt að vera áfram á landinu