Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, segir ummæli Guðmundar Inga Kristjánssonar, fyrrverandi mennta- og barnamálaráðherra, í síðustu viku ekki svara verð.
Guðmundur Ingi sagði af sér sem ráðherra í vetur og sagði sig úr Flokki fólksins. Hann greindi frá ástæðum afsagnar sinnar í viðtali við fréttastofu í síðustu viku og sagði Ingu Sæland, formann Flokks fólksins, hafa krafist afsagnar hans á sjúkrabeði.
Honum hefði blöskrað þegar aðstoðarkona hans sendi honum texta í kjölfarið um hvernig hann ætti að segja af sér eftir samtal við aðstoðarmann Ingu.
Aðstoðarkona hans var Guðbjörg Ingunn Magnúsdóttir, eiginkona Ragnars Þórs. Hann kom inn í ríkisstjórnina eftir að Guðmundur Ingi lét af embætti og tók við þáverandi ráðuneyti Ingu Sæland, sem tók við ráðuneyti Guðmundar Inga.