Donald Trump forseti Bandaríkjanna fór um víðan völl í ræðu sinni á fundi í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York í dag. Meðal umræðuefna hans var ákall til þeirra þjóða sem eiga aðild að Alþjóðlega sakamáladómstólnum um að segja skilið við dómstólinn.
Trump segir Bandaríkin andsnúin „þeirri stjórnlausu stofnun sem kallast Alþjóðlegi sakamáladómstóllinn“. Þá hét Marco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna því að leggja dómstólinn kerfisbundið niður. Hann sé óþolandi ógn við fullveldi Bandaríkjanna.
Yfirlýsing Trumps og Rubios kemur fáum á óvart en hún er aðeins ein varða á lengri vegferð þeirra sem miðar að því að grafa undan störfum Alþjóðlega sakamáladómstólsins.
Bandarísk stjórnvöld hafa áður beitt tiltekna dómara refsiaðgerðum og þá tilkynntu þau í gær að frekari refsiaðgerðir gegn dómstólnum væru fyrirhugaðar.
Segja stjórnvöld þar ytra að meginástæður refsiaðgerðanna séu handtökuskipun sem gefin var út á hendur Benjamins Netanyahu forsætisráðherra Ísraels.