Kristján Loftsson, forstjóri Hvals hf., segist stefna íslenska ríkinu fyrir dómstóla verði hvalveiðibanni komið á. Frumvarp þess efnis verður lagt fram í febrúar á næsta ári.
„Þetta mun kosta þau mikla peninga og þessum ráðherrum er sama því þeir þurfa ekki sjálfir að borga. Þeir senda þetta allt til skattgreiðenda,“ hefur AFP eftir Kristjáni. Hann hefur ekki svarað viðtalsbeiðnum fréttastofu í vikunni.
Telur ólíklegt að hvalveiðibann verði samþykkt
Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra stefnir að því að leggja fram frumvarp um breytingar á hvalveiðilögum í byrjun næsta árs. Hún hefur verið opinská um að hún telji lög um hvalveiðar barn síns tíma og að tími sé kominn til að taka þau til gagngerrar endurskoðunar. Hún stefnir að því að banna hvalveiðar alfarið.
Kristán segist þó ekki hafa miklar áhyggjur af því að hvalveiðibann verði samþykkt. Hann bendir á að tilraunir í þá átt hafi áður verið reyndar en engar hafi gengið í gegn.
Veður og mótmæli sett svip sinn á vertíðina
Hvalveiðivertíðinni lauk í vikunni og veiddust 93 langreyðar á 34 dögum. Vertíðinni lauk fyrr en áætlað var og setti veðrið meðal annars strik í reikninginn.
Þá settu mótmælaaðgerðir svip sinn á tímabilið og um langa hríð reyndi skip samtaka aðgerðasinnans Pauls Watson, Bandero, að hafa uppi á hvalveiðibátunum í þeim tilgangi að stöðva veiðarnar.
Áhöfninni varð lítið ágengt framan af en þegar hún loks komst í návígi við hvalveiðibátana ógnaði hún öryggi skipverja þeirra. Svo fór að yfirvöld tóku yfir stjórn skipsins og öllum áhafnarmeðlimum var birt ákvörðun um brottvísun frá Íslandi og endurkomubann.
Skipin Hvalur 8 og Hvalur 9 eru komin aftur til Reykjavíkur þar sem þau verða fram á næsta sumar.