Lars Løkke Rasmussen, utanríkisráðherra Danmerkur, er að vonum ánægður með áfangann í dag.
„Þetta var krefjandi vegferð. En hér erum við – með samning í höndunum sem við getum öll verið mjög sátt við,“ skrifar hann á X með mynd af sér með kollegum sínum, þeim Marco Rubio og Múte B. Egede.
Lars Løkke leggur áherslu á að samningurinn virði fullveldi Danmerkur og sjálfsákvörðunarrétt grænlensku þjóðarinnar.
Eins og Trump hafði boðað í ræðu sinni fyrr í dag felur Grænlandssamningurinn í sér að Bandaríkin komi sér upp tveimur nýjum herstöðvum, annars vegar í Narsarsuaq á Suður-Grænlandi og hins vegar í Mestersvig í þjóðgarðinum á Austur-Grænlandi.
Á vef DR er rifjað upp að við Narsarsuaq var áður bandarísk herstöð á árunum 1941 til 1958, sem bar heitið Bluie West One.
Þá fá Bandaríkin að stækka núverandi herstöð í Pituffik í norðurvesturhluta landsins.
Dönsk stjórnvöld hafa birt samninginn á heimasíðu sinni.
Donald Trump var spurður, eftir undirritunina, hvort hann væri búinn að leggja til hliðar hugmyndir um bandarískt eignarhald yfir Grænlandi. Hann svaraði því í engu, heldur stillti sér upp í myndatöku og yfirgaf fundarherbergið.
„Ég elska fólkið í Grænlandi,“ sagði hann þó þegar hann var inntur eftir skilaboðum til grænlensku þjóðarinnar.
Þá er það komið. Leiðtogarnir hafa skrifað undir samninginn langþráða. Þau halda uppi sínum eintökum og viðstaddir klappa.
Jens-Frederik Nielsen formaður landstjórnar fagnar samningnum, ekki síst af því að hann sé gerður við Grænlendinga en ekki bara um Grænlendinga.
Grænland sé trúfastur bandamaður Bandaríkjanna nú sem fyrr.
„Okkar öryggi er ykkar öryggi.“
Þetta sé „win-win-win samningur“.
Þau ætla öll að taka til máls.
Trump hrósar Grænlendingum og Dönum og segist hlakka til samstarfsins á komandi árum.
Frederiksen segist stolt af vináttu Bandaríkjanna og Danmerkur. Dagurinn í dag sé tímamót. „Í dag skrifum við undir nýjan og betri samning sem mun standa til frambúðar.“
Hún segist sammála Trump um að óvinir ríkjanna eigi ekki að fá stjórn eða áhrif á Grænlandi.
Samningurinn styrki NATO-samstarfið.
Nú eru þremenningarnir mættir. Trump og Nielsen sitja sitt hvorum megin við Mette Frederiksen. Trump flytur ræðu sem hann lofar að verði stutt.
Nú fer þetta að bresta á. Margir af helstu ráðamönnum ríkjanna eru mættir, þar á meðal utanríkisráðherrarnir Lars Løkke Rassmussen og Marco Rubio.
Donald Trump er á leið til undirritunar á samkomulaginu. Allt er til reiðu í fundarherbergi í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna.
Danska ríkisútvarpið er með beina útsendingu frá undirrituninni.
Umsjónarfólk útsendingarinnar er að teygja lopann (eins og undirritaður) og fjallar meðal annars um tónlistina sem er leikin í herberginu. Þar hefur meðal annars hljómað I Will Survive og slagari með Phil Collins.
Donald Trump hefur nú lokið máli sínu á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna. Nú ætti hann að fara að gera sig kláran til að hitta Dani og Grænlendinga og skrifa undir samninginn.
Í ræðu sinni á Allsherjarþinginu boðaði Trump undirritun samningsins um varnir Grænlands. Þar fái Bandaríkin varanlega stjórn yfir öryggismálum. Engir óvinir Bandaríkjanna fái að koma sér upp herbúnaði á Grænlandi eða fjárfesta í tengdum geirum án samþykkis Bandaríkjanna.
Hann sagði að Bandaríkin hygðust reisa tvær stórar herstöðvar á Grænlandi, sem rímar við þær fréttir sem höfðu þegar borist af innihaldi samningsins.
Hann hafi myndað sterk tengsl við Grænlendinga og Dani meðan á samningaviðræðum stóð.
Trump sagði að þessi ráðstöfun styrki NATO verulega og hrósaði Mark Rutte framkvæmdastjóra bandalagsins.
Þó ásælni Trumps í Grænland hafi komið flatt upp á flesta, var þetta ekki í fyrsta sinn sem bandarískur forseti sýnir eyjunni áhuga. Í Heimskviðum var fjallað um þegar Harry Truman vildi kaupa Grænland í sinni forsetatíð.
Núgildandi varnarsamningur var fyrst undirritaður árið 1951 og uppfærður árið 2004 með Grænland sem sjálfstæðan aðila að samningnum. Danska ríkisútvarpið (DR) hefur tekið saman þrjú mikilvægustu ákvæði þess samnings og má finna umfjöllun um þau hér að neðan.
Einhverjar tafir verða á undirskrift samningsins þar sem Donald Trump á enn eftir að flytja ræðu sína á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna. Venju samkvæmt hóf forseti Brasilíu ræðuhöldin og Bandaríkjaforseti fylgir þar á eftir.
Nú er Lula da Silva hins vegar enn í ræðustól, og miðað við aldur og fyrri störf gæti Trump orðið þaulsetinn þegar röðin kemur loks að honum.
Þeir stjórnmála- og embættismenn sem hafa séð samninginn sem verður undirritaður í dag hafa haldið spilunum þétt að sér. Það eina sem smitast hefur út er að bandarísk stjórnvöld eru sögð vilja opna tvær nýjar herstöðvar á Grænlandi.
Lars Løkke hefur borið hitann og þungann af þessu máli fyrir hönd Dana. Hann sagði í samfélagsmiðlafærslu í morgun að hann hlakki til málaloka. Nú ljúki vonandi „skaðlegum kafla“ í annars farsælu samstarfi landanna.
Vart þarf að fjölyrða um þá óvissu sem hefur umlukið Grænland síðustu misseri, eftir að Donald Trump lýsti því yfir í upphafi síðari forsetatíðar sinnar að hann teldi að þjóðaröryggissjónarmið Bandaríkjanna kölluðu á yfirráð yfir Grænlandi.
Því var vitanlega illa tekið bæði í Kaupmannahöfn og Nuuk, en þær deilur höfðu líka víðtækari áhrif á vestræna samvinnu, ekki síst innan Atlantshafsbandalagsins, enda óheyrt að eitt aðildarríki geri tilkall til landsvæðis annars.
Eftir átakafund í janúar komst á viðræðugrundvöllur sem nú sér fyrir endann á. Til stendur að samningurinn verði undirritaður eftir um hálftíma, klukkan 14.30 að íslenskum tíma.
Bandaríkin, Danmörk og Grænland undirrita í dag samning um fyrirkomulag varna Grænlands.
Þorgils Jónsson heiti ég og mun fylgja ykkur í þessari fréttavakt þar sem verður fylgst með vendingum dagsins.