Mikil ólga er nú innan Sameinuðu þjóðanna, eins og víða um heiminn allan. Þá eru einnig uppi spurningar um framtíð Sameinuðu þjóðanna, þar sem Trump hefur dregið verulega úr fjárhagsstuðningi Bandaríkjanna við stofnunina alþjóðlegu.
Trump ætlar samkvæmt fjölmiðlum vestanhafs að ítreka hvernig hann gerði Bandaríkin öflugri og beitti þeim mætti til að takast á við langvarandi vandamál heimsins og endurskapa heiminn, Bandaríkjunum í hag.
„Á meðan aðrir hafa talað, hef ég gripið til aðgerða. Á meðan aðrir hafa talað um frið, hef ég komið á friði. Á meðan aðrir hafa hunsað ógnir, hef ég staðið í hárinu á þeim. Á meðan aðrir tala um hugrekki, hafa Bandaríkin sýnt það. Á meðan aðrir hafa lofað styrk, hef ég notað hann til að gera Bandaríkin að voldugasta ríki heims,“ sagði Trump snemma í ræðu sinni.
Hægt er að horfa á ræðu Trumps í spilaranum hér að neðan. Trump tekur til máls á eftir Luiz Inácio Lula da Silva, forseta Brasilíu.
Þegar hann mætti til höfuðstöðva Sameinuðu þjóðanna fyrr í dag byrjaði hann á því að ræða stutt við blaðamenn og sagðist stoltur af því að ætla að ávarpa allsherjarþingið.
Trump fór því næst að gagnrýna fjölmiðla og þá sérstaklega Kaitlan Collins, frá CNN. Það er einn fjölmiðlanna sem Trump hefur bannað frá Hvíta húsinu.
„Það kemur mér á óvart að þú sért hér,“ sagði Trump við Collins. „Þú ættir ekki að vera hér. Þú ættir ekki að vera hér að fjalla um mig.“
Trump hefur áður beint spjótum sínum að Collins og skammaði hana til að mynda í febrúar fyrir að brosa ekki meira.
Trump snaps at Kaitlan Collins on his way into the UN: "I'm surprised that CNN is here covering me. You shouldn't be here! You should not be here covering me. You said you weren't going to cover me. You shouldn't be covering me." pic.twitter.com/GVLeZqfGpB
— Aaron Rupar (@atrupar) September 22, 2026