Tveir karlmenn, annar frá Georgíu en hinn frá Albaníu hafa verið ákærðir fyrir brot gegn lögum um útlendinga með því að snúa aftur til landsins þrátt fyrir endurkomubann. Annar þeirra er einnig ákærður fyrir sams konar brot gegn endurkomubanni grískra stjórnvalda. Annar mannanna dvaldi hér á landi án dvalarleyfis í um 2 vikur, áður en hann var handtekinn, en óvíst er hversu lengi hinn gerði það en það gæti verið meira en eitt ár.Ákærur gegn báðum mönnunum eru birtar í Lögbirtingablaðinu.
Ákærðir fyrir að koma til Íslands