Nýtt varnarsamkomulag á milli Danmerkur, Grænlands og Bandaríkjanna verður undirritað í dag þegar Mette Fredriksen forsætisráðherra Danmerkur og Jens-Frederik Nielsen, formaður Naalakkersuisut, heimastjórnar Grænlands, hitta Donald Trump forseta Bandaríkjanna í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York.
Ýmsar getgátur hafa verið uppi um það hvaða breytingar verði gerðar á fyrirliggjandi samningi landanna en nákvæmt innihald nýja samningsins er enn þá á huldu. Núgildandi samningur var fyrst undirritaður árið 1951 og uppfærður árið 2004 með Grænland sem sjálfstæðan aðila að samningnum. Danska ríkisútvarpið (DR) hefur tekið saman þrjú mikilvægustu ákvæði þess samnings.
1. Bandaríkin og Danmörk deila ábyrgð á öryggi Grænlands
Bandaríkin og Danmörk skuldbinda sig til að sameinast um varnir Grænlands og standa gegn vopnuðum árásum. Einnig vinna löndin saman að því að leysa þau verkefni sem krafist er af þeim í samræmi við áætlanir NATO um varnir á Grænlandi.
Þá er tekið fram að fánar bæði Danmerkur og Bandaríkjanna skuli blakta yfir hernaðarlegum varnarsvæðum.
2. Herlið Bandaríkjanna getur ferðast frjálst um Grænland og stofnað til herstöðva
Bandaríkin geta komið upp herstöðvum, húsum, starfsliði, stýrt aðgerðum og hreyfingum farartækja á lofti og legi og hafa almennt leyfi til að byggja upp innviði fyrir hernaðaraðgerðir.
Þessu ákvæði fylgir hins vegar sá fyrirvari að leyfi Bandaríkjanna megi ekki stangast á við sjálfstæð yfirráð konungsríkisins Danmerkur yfir varnarsvæðum eða rétt danskra yfirvalda til frjálsrar farar um allt Grænland.
Þar að auki er tekið fram í annarri grein samningsins að dönsk stjórnvöld áskilji sér rétt til að nýta varnarsvæði í samráði við ríkisstjórn Bandaríkjanna.
DR bendir á að Bandaríkin hafi í gegnum tíðina haft meira en 30 herstöðvar og yfir tíu þúsund menn á Grænlandi. Herstöðvum hefur smám saman verið lokað eða þær afhentar Danmörku eða Grænlandi.
Í dag eru Bandaríkin aðeins með eina virka herstöð, en það er geimstöðin í Pituffik (e. Pituffik Space Base), sem áður gekk undir nafninu Thule-stöðin. Samkvæmt danska hernum eru nú um það bil 150 bandarískir hermenn staðsettir á geimstöðinni.
3. Samningurinn gildir, svo lengi sem NATO lifir
Í síðasta punkti samningsins stendur að hann gildi samhliða Atlantshafsbandalaginu. Samningurinn er með öðrum orðinn fastbundinn tilveru NATO.
Síðan upprunalegi samningurinn var undirritaður hefur fleiri viðbótarákvæðum verið bætt við hann. Til að mynda var stofnað til árlegra funda á milli landanna þriggja til að yfirfara hernaðaraðgerðir á Grænlandi.
Með svonefndum Igaliku-samningi, sem undirritaður var árið 2004 í bænum Igaliku á Suður-Grænlandi, varð Grænland sjálfstæður aðili að samningnum. Þá staðfestu Bandaríkin jafnframt að bæði grænlenskum og dönskum stjórnvöldum yrði haldið upplýstum um varnaraðgerðir bandaríska hersins.