Frumvarp um bókun 35 hefur enn og aftur verið lagt fram á Alþingi. Ríkisstjórnin er staðráðin í að klára málið í þetta sinn en frumvarpið var fyrst lagt fram árið 2023 í tíð síðustu ríkisstjórnar.
Meirihlutinn ákvað á síðasta þingi að ljúka ekki málinu vegna þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið. Eftir að þjóðin hafnaði að ganga til aðildarviðræðna sagði forsætisráðherra að lögð yrði áhersla á að klára málið þar sem róa þyrfti öllum árum að því að styrkja EES-samninginn í ljósi niðurstöðunnar.
Fréttastofa greindi frá því nýverið að Eftirlitsstofnun EFTA væri að undirbúa svokallað samningsbrotamál gegn íslenskum stjórnvöld sem rekið yrði fyrir EFTA dómstólnum.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra mun líklega mæla fyrir frumvarpinu í byrjun október en hún er stödd á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í New York í Bandaríkjunum og er væntanleg aftur til landsins um helgina. Í næstu viku er kjördæmavika á þingi og því engir þingfundir á dagskrá.