Fjölskylduráð Múlaþings ákvað á dögunum að hækka heimgreiðslur til foreldra úr 52.153 krónur á mánuði í 104.500 krónur. Þetta er gert til þess að mæta manneklu í leikskólum og þeirri stöðu að ekki sé hægt að bjóða öllum 12 mánaða börnum leikskólapláss, þrátt fyrir að rýmið sé til staðar. Það vantar starfsfólk.
„Það hefur bara haft þau áhrif að við höfum ekki getað tekið inn börn í aðlögun eins og við höfum viljað og það hefur svolítið strandað á því að við höfum úthlutað plássum sem við getum síðan ekki farið af stað með því við höfum ekki starfsmenn í það,“ segir Jónína Brynjólfsdóttir, formaður fjölskyludráðs í Múlaþingi.
Vantar líka dagforeldra
Ráðið ákvað í vikunni að auglýsa eftir dagforeldrum og hækka heimgreiðslur til foreldra sem eru heima með börn eftir 12 mánaða aldur.
Lítið hefur gengið að ráða starfsfólk í leikskólann á Egilsstöðum. Atvinnuleysi á Austurlandi er aðeins 2,4%. Engir biðlistar eru eftir plássum og vandinn er aðeins mönnunarlegs eðlis.
„Vitaskuld er það okkar metnaður að taka inn börn frá 12 mánaða aldri. Við höfum auðvitað lent í því áður að vera með það mörg börn að við höfðum ekki pláss fyrir börnin. Það er ekki vandamálið sem við stöndum frammi fyrir núna heldur er það mönnunarvandi en það er í fyrsta skipti sem við lendum í því.“
Jónína segir mikilvægt að gera leikskólaumhverfið aðlaðandi starfsumhverfi og það sé stefna þeirra í Múlaþingi. Eftir að Múlaþing fór að taka inn leikskólabörn við 12 mánaða aldur þurrkaðist dagforeldrastéttin á Egilsstöðum út en nú á að reyna að fjölga í henni á nýjan leik.
„Auðvitað vonum við að þetta leysist sem allra fyrst og erum tilbúinn að leita allra leiða til að fá til okkar gott fólk. Leikskólaumhverfið er erfitt og erfitt að manna það víðsvegar. Við erum að auglýsa eftir dagforeldrum núna og það myndu bjarga okkur algjörlega ef að einhverjir hefðu áhuga á að fara í slíkan buisness,“ segir Jónína.