Mælistikan á lofti
Sigríður Jónsdóttir skrifar um Nýtt eldhús eftir máli eftir Friðgeir Einarsson, sem sýnt er í Kassanum í Þjóðleikhúsinu.
Daníel á sér draum um eyju, eldhúseyju með borðplötu úr marmara. Nýtt eldhús eftir máli eftir Friðgeir Einarsson birtist leikhúsáhorfendum fyrst á Gula dreglinum, leikritahátíð Þjóðleikhússins, árið 2025. Þá var leikritið í vinnslu en framkvæmdum lauk með frumsýningu í Kassanum síðastliðinn fimmtudag, fyrsta frumsýning Þjóðleikhússins á leikárinu. Leikritið er sömuleiðis komið út á bók sem er fagnaðarefni.
Síðastliðin fimmtán ár hefur Friðgeir komið víða við bæði á leiksviði og í bókaútgáfu. Höfundaverk hans læðast oftar en ekki á mörkum grátbroslegs raunveruleika, þar sem hið ofurvenjulega er skyggt með súrrealískum skvettum. Daglegt amstur mætir óvæntum atburðum eða ástandi. Hér fetar Friðgeir svipaðar slóðir og sækir sér innblástur frá einum af þekktustu höfundum þjóðarinnar.
Óhjákvæmilegt er að hugsa um þetta nýja leikverk Friðgeirs án þess að hugsa til Svövu Jakobsdóttur og smásögu hennar, Eldhús eftir máli sem birtist fyrst í Lesbók Morgunblaðsins á aðfangadag árið 1966 og í smásögusafninu Veisla undir grjótvegg …