Sænsk yfirvöld rannsaka nú kæru vegna þingkosninganna sem fóru fram á sunnudag fyrir rúmri viku. Kjósendur í Dölunum í Norður-Svíþjóð eru sagðir hafa fengið greitt fyrir að greiða Mohamed Abdukardir Ali, frambjóðanda Vinstriflokksins, atkvæði.
Maria Forsberg, framkvæmdastjóri Vinstriflokksins, greindi frá því í dag að Ali færi í leyfi og tæki ekki sæti á þingi þegar það kemur saman. Flokkurinn tæki málinu grafalvarlega og ætlaði sér að aðstoða lögreglu við rannsóknina.
Ásakanirnar komu fyrst fram í umfjöllun blaðanna Aftonbladet og Dagens nyheter. Lögregla í Bergslagen sem sögð hafa fengið ábendingu um einstakling sem æki um með kjörseðla þar sem búið var að merkja við nafn Ali. Einnig hefði sést til einstaklinga sem var ekið í bílnum og reiðufé tekið út úr hraðbönkum.
Síðarnefnda blaðið segir að Ali hafi verið lítt þekktur þegar hann náði kjöri á sænska þingið í síðustu viku. Hann hafi aðeins fengið sænskan ríkisborgararétt í febrúar og hafi átt í fjárhagskröggum. Þingsætið vann hann í krafti persónukjörs.
Vill að vinstrimenn standi með Ali
Ali harðneitar sök og fullyrðir að hvorki lögregla né yfirvöld hafi sett sig í samband við sig.
Lars Ohly, fyrrverandi leiðtogi Vinstriflokksins, hvatti flokksmenn til þess að standa með Ali og að hrapa ekki að ályktunum um hvað gekk á í kjördæminu.
„Maður ætti ekki að ganga út frá því að glæpur hafi verið framinn. Það gæti verið eitthvað sem fólk sem hefur horn í síðu Vinstriflokksins dregur fram.“
Vinstriflokkurinn hreinsaði framboðslista sína af nokkrum fjölda frambjóðenda vikurnar fyrir kjördag. Sumir þeirra höfðu lofað Vladímír Pútín, forseta Rússlands, og Hamas-samtökin í Palestínu.