Tveir pólskir menn eru enn í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar lögreglu á manndrápi í Vallargerði þann 9. ágúst. Mennirnir voru áður í gæsluvarðhaldi erlendis, annars á Spáni og hinn í Póllandi, en þeir voru fluttir hingað til lands. Alls voru 13 handtekin í upphafi rannsóknarinnar, þar á meðal ein kona sem grunuð var um að hjálpa sakborningi við að flýja land.
Tveir enn í gæsluvarðhaldi vegna manndráps í Vallargerði