Donald Trump Bandaríkjaforseti, Mette Frederiksen forsætisráðherra Danmerkur og Jens Frederik Nielsen formaður grænlensku landstjórnarinnar hafa nú undirritað samning um hernaðaruppbyggingu Bandaríkjanna á Grænlandi. Þau gerðu það fyrir stundu í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York. Samingurinn kemur í kjölfar yfirlýstrar ásælni Trump í það að Bandaríkin eignist Grænland. Samingurinn hefur nú verið opinberaður í heild sinni. Í honum er lögð sérstök áhersla á sjálfsákvörðunarrétt Grænlendinga og fullveldi og einingu danska konungsríkisins.
Sögulegur samningur undirritaður - Sérstök áhersla á sjálfsákvörðunarrétt Grænlendinga en Bandaríkin fá víðtækar heimildir