Verður yngsta skvettan í þing­flokki Sjálf­stæðis­manna - Vísir

Verður yngsta skvettan í þing­flokki Sjálf­stæðis­manna - Vísir

Verður yngsta skvettan í þing­flokki Sjálf­stæðis­manna - Vísir

„Ég er bara mjög spennt. Mér finnst mikill heiður að fá að taka þarna fast sæti og náttúrulega stórt skarð að fylla í en nú er tíminn til að standa sig.“

Ingveldur var þriðja á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi í síðustu kosningum og mun taka við sæti Vilhjálms Árnasonar þegar hann hefur sagt af sér þingmennsku. Vilhjálmur var oddviti á lista flokksins í Reykjanesbæ í sveitarstjórnarkosningum og hefur tekið við sem bæjarstjóri Reykjanesbæjar.

Ingveldur er búsett á æskuheimili sínu undir Eyjafjöllum, í Varmahlíð. Hún segir það forréttindi að alast upp í nálægð við íslenska náttúru og segir sveitunga sína einstakt fólk. Tenging hennar við jörðina í gegnum föðurfjölskyldu sína sé hægt að rekja aftur um 250 ár. Fyrir liggur þó að þingmennskan muni nú draga Ingveldi nær höfuðborgarsvæðinu.

„Ég mun flytja í bæinn tímabundið en stefni til lengri tíma á að búa hérna á Suðurlandsundirlendinu. Ég býst við því að flytja aðeins nær, þetta er dálítil vegalengd til að keyra á hverjum einasta degi tvisvar á dag,“ segir Ingveldur glettin.

„Kílómetragjaldið kemur náttúrulega þarna inn í sko,“ segir Ingveldur, enn glettin í tón og greinilega farin að setja sig í stellingar fyrir þingmannsstarfið.

Ingveldur fær brátt tækifæri til að láta til sín taka. Innsent

Hóf ung þátttöku í stjórnmálum

Ingveldur hefur lengi verið viðloðandi Sjálfstæðisflokkinn þrátt fyrir ungan aldur. Hún bauð sig fyrst fram í prófkjöri tuttugu og eins árs gömul í sveitarstjórnarkosningum 2018. Fyrir alþingiskosningar árið 2021 bauð hún sig fram í fimmta sæti fyrir lista flokksins í Suðurkjördæmi og náði settu marki. Ingveldur segist hafa rennt blint í sjóinn.

„Það var kóvid á þessum tíma og einhverjar takmarkanir í gildi en ég reyndi að mæta á alla fundi sem ég gat, var heiðarleg, talaði við fólk og, já, bara sinnti þessu,“ segir Ingveldur, spurð hverju megi þakka þennan góða árangur.

Ingveldur fékk fyrst tækifæri til að setjast á Alþingi sem varaþingmaður árið 2023. Innsent

Ingveldur fékk tækifæri til að koma inn sem varaþingmaður í febrúar árið 2023. Mikið líf var þá á þinginu meðan rætt var um frumvarp til laga um útlendingamál.

„Þetta er yfirleitt mjög skrautlegt þegar ég kem inn sem varaþingmaður, þannig að ég veit ekki alveg hvernig þetta verður þegar ég tek fast sæti,“ segir Ingveldur. Það hafi verið öðruvísi að koma inn á þing það kjörtímabilið því Sjálfstæðisflokkurinn átti aðild að ríkisstjórn og var því í meirihluta.

„En það var mjög skemmtileg upplifun, mikið líf í þinghúsinu, miklar umræður um sem mætti kalla málþóf. Þá var sem sagt verið að ræða útlendingalögin,“ segir Ingveldur og bætir við að Píratar hafi farið mikinn þá vikuna.

„Þá fékk ég að tala frekar lítið sko af því að þau töluðu dálítið mikið.“

Sóttist næst eftir þriðja sæti á lista

Í prófkjöri fyrir alþingiskosningar árið 2024 sóttist Ingveldur eftir þriðja sæti á lista, sæti sem Ásmundur Friðriksson þingmaður sat í. Birgir Þórarinsson þingmaður sóttist einnig eftir því sæti en Ingveldur skákaði þeim báðum og náði, líkt og fyrr, settu marki. Ingveldur er því erfinginn að þingsæti Vilhjálms Árnasonar nú þegar hann heldur til nýrra starfa í Reykjanesbæ.

„Þetta var frábært og ég var að sjálfsögðu mjög ánægð… Ég lagði þetta í dóm trúnaðarmanna flokksins í kjördæminu og hlaut þennan árangur. Núna verður maður bara að standa undir því.“

Aftur beið Ingveldar áhugaverð vika á þingi þegar hún kom inn á þing sem varamaður í maí árið 2026 og umræður um veiðigjöld stóðu sem hæst. Líkt og þekkt er hefur ekkert mál verið rætt jafn lengi á Alþingi.

„Það var líflegt. Maður svaf lítið þá viku.“

Ingveldur hefur síðan komið inn tvisvar í ár, fyrst þegar Vilhjálmur var í prófkjörsbaráttu í Reykjanesbæ og síðar þegar hann var í kosningabaráttu fyrir sveitarstjórnarkosningarnar. Ingveldur segir alltaf gaman að koma inn á þing og að í þessi skiptin hafi þingstörf verið hefðbundnari. Ingveldur er því reynslunni ríkari og tilbúin til starfa sem þingmaður Suðurkjördæmis.

„Ég er ekki jafn blaut á bak við eyrun og ég væri ef ég hefði ekki komið inn áður.“

Þinghúsið verður brátt eins og annað heimili Ingveldar. Innsent

Þá segir Ingveldur að það komi á óvart hve góður andi sé á þinginu.

„Ég hélt að þingmenn stæðu hér í hárinu hver á öðrum en það er enginn að erfa neitt við neinn utan þingsalsins. Áður en maður veit af er maður farinn að taka kaffibolla með alls konar fólki.“

„En svona maður sér nú, þegar það eru miklar umræður, málþóf og svo framvegis, að þá er meira um upphlaup þar sem fólk hverfur á einhverja skrýtna fundi hingað og þangað í húsinu.“

Samkvæmt lauslegri athugun fréttastofu verður Ingveldur sú þriðja yngsta meðal þingmanna, fædd í janúar árið 1997. Yngri er varaformaður Miðflokksins, Snorri Másson, fæddur á baráttudegi verkalýðsins árið 1997, en yngstur er oddviti Viðreisnar í Norðausturkjördæmi, Ingvar Þóroddsson, fæddur árið 1998. Í fjórtán manna þingflokki Sjálfstæðisflokksins verður Ingveldur þó yngst.

„Maður þarf að kenna þeim lingóið og hvernig unga fólkið hugsar. Þau hafa bara gott af því,“ segir Ingveldur, kankvís að vanda.

Ingveldur er forfallin hestakona. Innsent

Aðhald gagnvart meirihlutanum stærsta verkefnið

Þó ekki sé komin föst dagsetning á hvenær Suðurlandsmærin tekur við er hún þegar farin að setja sig í stellingar. Hún segir að sitt stærsta verkefni verði að veita meirihlutanum gott aðhald.

„Vekja athygli á því sem þau geta gert betur og koma með lausnir á ýmsum málum, til dæmis að lækka skatta, einfalda regluverk og svo framvegis. Svo fann ég fyrir miklu ákalli í sveitarstjórnarkosningunum um umbætur á vegum hérna í umdæminu,“ segir Ingveldur, sem telur að efla megi hlutverk sveitarfélaga í að velja hvernig forgangsraða eigi fjármunum í vegaumbætur.

Ingveldur hefur áður blandað sér í umræðu um umferðaröryggismál, þá sérstaklega eftir að banaslys varð nærri heimili hennar undir Eyjafjöllum þegar gríðarstór steinn féll úr fjallshlíð og lenti á ógnarhraða á ökumanni ökutækis sem átti leið eftir þjóðveginum. Ingveldur hefur þó þær góðu fréttir að færa að kall íbúa hafi heyrst og komið verði upp grjóthrunsvörnum við veginn.

Ingveldur kann hvergi betur við sig en úti í íslenskri náttúru.Innsent

Eins og líklega flestu fólki á hennar aldri eru húsnæðismál Ingveldi hugleikin og hún er tilbúin að koma með hugmyndir að borðinu.

„Þar eru mikil tækifæri til einföldunar og þannig má minnka kostnað við uppbyggingu.“

Ingveldi þykir að fleiri geti farið að fordæmi sveitarfélaga á Suðurlandi til að bæta stöðu á húsnæðismarkaði.

„Við erum mjög heppin með það hér á Suðurlandi að lóðaframboð er gott. Sveitarfélögin eru mjög dugleg að útdeila lóðum á, að ég tel, ágætum kjörum. Þannig er búið að leysa einn hnút.“

Þá laði það einnig nýja íbúa á Suðurlandið að nóg sé um leikskólapláss.

Ingveldur segist alltaf hafa verið félagslynd og haft áhuga á að láta til sín taka.

„Ég held ég hafi alltaf haft miklar skoðanir á hlutunum. Ég hef alltaf sótt í félagsstörf, allt frá því að ég var að reyna að komast inn í nemendaráð Víkurskóla,“ segir Ingveldur og hlær við.

Lítil Ingveldur á skólaskemmtun.Innsent

„Já, greyið foreldrar mínir að hafa þurft að vera með þennan stjórnsama krakka inni á heimilinu,“ segir Ingveldur, sem greinilega hefur húmor fyrir sjálfri sér.

„En já, áhugi minn hefur alltaf legið þarna, að hafa áhrif. Maður getur ekki setið heima tuðandi við eldhúsborðið en síðan gert ekki neitt.“

Ingveldur starfar í dag sem fulltrúi hjá embætti sýslumannsins á Suðurlandi.

„Heyrðu, ég sé um hérna þinglýsingar og landamerkjamál í umdæminu og er lögfræðingur að mennt.“

Ingveldur segir að hún muni þurfa að klára sín verkefni áður en hún getur snúið sér að fullu að þingstörfum. Ingveldur segist stolt bæði af sínum störfum og þeirri vinnu sem sýslumannsembættin hafa farið í til að auka stafræna þjónustu. Ingveldur fjallaði í jómfrúarræðu sinni um þau tækifæri sem fyrir hendi væru til að auka við stafræna þjónustu.

Fulltrúi sýslumanns í embættisgjörðum.Innsent

„Frá því þegar ég hóf störf og til dagsins í dag er þjónusta sýslumanna gjörsamlega búin að umbreytast. Til dæmis í dag geturðu gert upp dánarbú algjörlega stafrænt, þetta náttúrulega sparar fólki bæði tíma og pening.“

Já, það þarf ekki minna en að minnast á opinbera þjónustu sýslumannsembættanna til að koma lögfræðingum á flug. Það er þó önnur starfsskylda fulltrúans sem er ögn áhugaverðari en Ingveldur fær reglulega að gefa saman pör.

„Heyrðu já, ég var bara að gifta síðast bara í dag. Þetta er hluti af starfi fulltrúa, við getum gift og skilið fólk.“

Ingveldur fæst til að viðurkenna að þetta þyki henni skemmtilegra en landamerki.

„Þetta er skemmtilegri hluti starfsins. Landamerki geta verið góð, sko, en þetta finnst mér virkilega skemmtilegt. Að fá að taka þátt í þessum degi hjá fólki er alltaf gaman, mikil gleði í loftinu.“

Þá fær náttúrubarnið líka að klæða sig upp og oft að bregða sér út af skrifstofunni en vinsælt er fyrir ferðamenn að láta gefa sig saman við náttúruperlur Suðurlands, við fjallrætur og sanda, jökla og fjörur.

Stór hluti þeirra sem vilja láta gefa sig saman eru erlendir ferðamenn sem vilja að athöfnin fari fram úti í stórbrotinni náttúrunni. Innsent

Ingveldur hefur nú náð merkum áfanga, að vera orðin þingmaður tuttugu og níu ára gömul. Ingveldur segir þetta ekki hluta af einhverju stærðarinnar plani og veit ekki hvað bíður hennar næst.

„Lífið er svo fjölbreytt, maður veit ekkert hvað tekur við næst. Ég verð allavega ekki eilíf í þessu. Aðallega er bara heiður að fá að starfa fyrir Suðurkjördæmi.“

#sjálfstæðismanna #skvettan #verður #yngsta #þingflokki


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262892748d/verdur-yngsta-skvettan-i-thing-flokki-sjalf-staedis-manna

📰 Aðrar fréttir

Lýsir því yfir í viðtali að hann vilji sættir - Hvernig mun Vilhjálmur bregðast við ?
📅 21.10.2026 👁️ 0
Lýsir því yfir í viðtali að hann vilji sættir - Hvernig mun Vilhjálmur bregðast við ?
Vilhjálmur prins mun ekki hafa samband við Harry prins í bráð, þrátt fyrir að sá síðarnefndi hafi nýlega opinberlega óskað eftir sáttum.„Mun Vilhjálmu...
Romeo Beckham á hraðri leið fram úr Brooklyn - „Erfitt fyrir hann“
📅 21.10.2026 👁️ 0
Romeo Beckham á hraðri leið fram úr Brooklyn - „Erfitt fyrir hann“
Það gæti verið að Romeo Beckham verði farsælasti Beckham-bróðirinn, eldri bróður sínum til ama. The Sun greinir frá.Samkvæmt breska miðlinum er Romeo ...
Ragnhildur nýbúin að eiga afmæli og ætti að vera óhamingjusöm - En þetta er raunin
📅 21.10.2026 👁️ 0
Ragnhildur nýbúin að eiga afmæli og ætti að vera óhamingjusöm - En þetta er raunin
Ragnhildur Þórðardóttir, betur þekkt sem Ragga Nagli, segir marga gera sömu mistök beint eftir æfingu, að borða ekki nóg kolvetni. Hún útskýrir málið ...
Íslensk kona í Malmö sendir Elliða tóninn – Varar við hættulegum afleiðingum
📅 21.10.2026 👁️ 0
Íslensk kona í Malmö sendir Elliða tóninn – Varar við hættulegum afleiðingum
Svala Magnea Ásdísardóttir, fjölmiðlafræðingur sem búsett er í sænsku borginni Malmö, gagnrýnir Elliða Vignisson, bæjarstjóra Ölfuss, harðlega vegna u...
Birtingar­myndir kyn­ferðis­of­beldis gegn ungum konum að breytast - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 0
Birtingar­myndir kyn­ferðis­of­beldis gegn ungum konum að breytast - Vísir
Í fréttatímanum er einnig greint frá því að hálka hafi verið á vegum á höfuðborgarsvæðinu, Suðurlandi og víða á Vesturlandi í morgun eftir kólnandi ve...
Fimm ráðnir aftur eftir upp­sagnirnar - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 0
Fimm ráðnir aftur eftir upp­sagnirnar - Vísir
„Það er bara eitthvað sem við þurfum alltaf að viðurkenna að þegar við fórum í stórar breytingar þá áttuðum við okkur á því að kannski gengum við aðei...
Vilja rann­saka vinnu­brögð sér­staks sak­sóknara - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 0
Vilja rann­saka vinnu­brögð sér­staks sak­sóknara - Vísir
Þetta kemur fram í þingsályktunartillögu Guðrúnar Hafsteinsdóttur, formanns Sjálfstæðisflokksins, og þrettán annarra þingmanna. Lagt er til að þriggja...
Hafi nauðgað með­vitundar­lausri sambýliskonunni - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 1
Hafi nauðgað með­vitundar­lausri sambýliskonunni - Vísir
Þetta segir í ákæru á hendur manninum, sem gefin var út í júlí. Fyrirtaka verður í máli Héraðssaksóknara á hendur honum fyrir Héraðsdómi Suðurlands á ...
Unnur Lilja lýsir skelfilegu atviki í útskriftarferð FG – „Maður hugsar alltaf - Þetta gerist ekki við mig“
📅 21.10.2026 👁️ 2
Unnur Lilja lýsir skelfilegu atviki í útskriftarferð FG – „Maður hugsar alltaf - Þetta gerist ekki við mig“
Unnur Lilja Andrésdóttir lýsir skelfilegri reynslu sem hún varð fyrir í útskriftarferð í Portúgal. Fimm menn króuðu hana af á skemmtistað.Unnur Lilja ...
Skattur á milljarðamæringa á kjörseðlinum
📅 21.10.2026 👁️ 1
Skattur á milljarðamæringa á kjörseðlinum
Skattur á milljarðamæringa á kjörseðlinum Kjós­endur í Kali­forníu greiða atkvæði um fimm pró­senta skatt á hreina eign um 200 millj­arða­mær­inga. Be...
Smyrill í Norðurmýrinni
📅 21.10.2026 👁️ 1
Smyrill í Norðurmýrinni
Íbúar í Norðurmýri urðu varir við smyril í hverfinu í morgun. Ýr Jóhannsdóttir gekk fram á fuglinn á horni Gunnarsbrautar og Flókagötu á leið sinni ti...
At­vinnu­leysi dróst saman - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 1
At­vinnu­leysi dróst saman - Vísir
Þeim sem voru án atvinnu fækkaði milli mánaða en í ágúst mældist atvinnuleysi 6,8 prósent. Árstíðarleiðrétt atvinnuleysi dróst saman um 1,1 prósentust...
Masked boy guilty of trying to murder schoolgirl in Norfolk
📅 21.10.2026 👁️ 1
Masked boy guilty of trying to murder schoolgirl in Norfolk
The school went into lockdown and parents gathered at the gates as they waited for news about their children.
Töpuðu bar­daganum, lið­þjálfanum og prestinum - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 2
Töpuðu bar­daganum, lið­þjálfanum og prestinum - Vísir
Pistillinn birtist í Morgunblaðinu í dag undir fyrirsögninni „Opið bréf til óþekktra aðila“, tæpri viku eftir að Jón yfirgaf þingflokk Viðreisnar. Han...
Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 2
Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það - Vísir
Garpur var skipað þeim hjónum Daða Frey og Árnýju Fjólu en í liði Þróttar mættu þau Hákon Jóhannesson og tónlistarkonan Bríet. Umræða skapaðist um íþr...
Hlaðvarpið True Crime Ísland eins árs – lögfræðingar segja frá íslenskum sakamálum
📅 21.10.2026 👁️ 1
Hlaðvarpið True Crime Ísland eins árs – lögfræðingar segja frá íslenskum sakamálum
Hlaðvarpið True Crime Ísland eins árs – lögfræðingar segja frá íslenskum sakamálum Fréttin21. október 2026Fréttatilkynning, InnlentLeave a Comment Ann...
Sænskur glæpa­foringi á­kærður fyrir þrjú morð - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 2
Sænskur glæpa­foringi á­kærður fyrir þrjú morð - Vísir
Ildar „Örvar“ (e. Scar) Galiyev er meðal annars sagður bera ábyrgð á sprengjutilræði í Uppsölum sem varð 24 ára gamalli konu að bana, morði á átján ár...
Vill losna við blaða­menn og fá sund­laug í staðinn - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 2
Vill losna við blaða­menn og fá sund­laug í staðinn - Vísir
Ekkert varð af því en samkvæmt heimildum blaðamanna New York Times hafði forsetinn lagt þetta nokkrum sinnum til á mánuðunum áður en hún lét af störfu...
Tíma­mót hjá Árna Má - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 2
Tíma­mót hjá Árna Má - Vísir
Árni rak lengi vel Gallery Port sem lokaði í vor eftir áratug í rekstri. Hann ætlar að fagna þessum nýja kafla með pomp og prakt en vinnustofan er í H...
Witkoff kominn til Rússlands með friðartillögur – Pútín tekur á móti erindreka Trumps
📅 21.10.2026 👁️ 2
Witkoff kominn til Rússlands með friðartillögur – Pútín tekur á móti erindreka Trumps
Witkoff kominn til Rússlands með friðartillögur – Pútín tekur á móti erindreka Trumps Fréttin21. október 2026Erlent, Trump, ÚkraínustríðiðLeave a Comm...
Gagnrýnir frumraun Kylie Jenner hjá Victoria’s Secret og fyrirtækið harðlega: „Hún er ekki með líkama fyrirsætu“
📅 21.10.2026 👁️ 0
Gagnrýnir frumraun Kylie Jenner hjá Victoria’s Secret og fyrirtækið harðlega: „Hún er ekki með líkama fyrirsætu“
Adrianne Curry gagnrýndi Victoria’s Secret-tískusýninguna harðlega fyrir að fá Kylie Jenner til að koma fram á sýningunni á sunnudagskvöldið, og sagði...
Þórður Snær: stál, byrlun og leki
📅 21.10.2026 👁️ 2
Þórður Snær: stál, byrlun og leki
Þórður Snær: stál, byrlun og leki Fréttin21. október 2026Innlent, Páll Vilhjálmsson, StjórnmálLeave a Comment Þórður Snær Júlíusson. Páll Vilhjálmsson...
Mögnuð breyting á systrunum - Hafa misst samtals um 300 kíló
📅 21.10.2026 👁️ 1
Mögnuð breyting á systrunum - Hafa misst samtals um 300 kíló
Það er ótrúlegur munur á systrunum Amy og Tammy Slaton, en þeim hefur báðum tekist að léttast gífurlega og lifa heilsusamlegra lífi.Systurnar eru stjö...
Sí­fellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 2
Sí­fellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman - Vísir
Norðurhjálp hefur það sem af er þessu ári afhent einstaklingum og fjölskyldum í fjárhagsvanda bónuskort til matarinnkaupa að verðmæti yfir tuttugu mil...
Lexíur og leikhúsið
📅 21.10.2026 👁️ 2
Lexíur og leikhúsið
Lexíur og leikhúsið Sigríður Jóns­dóttir skrifar um Högg eftir James Graham, sem sýnt er í Þjóð­leik­hús­inu. Högg er enskt verð­launa­leik­rit eftir ...
Mokað allan liðlangan daginn
📅 21.10.2026 👁️ 1
Mokað allan liðlangan daginn
Framkvæmdir við dýpkun í Hafnarfjarðarhöfn hafa staðið yfir frá í fyrravetur. Næsta sumar mun ný smábátahöfn líta dagsins ljós og breytir ásýnd hafnar...
Íbúðareigendur í Gufunesi verulega ósáttir - Áttu ekki von á nýju húsi svo nálægt sínu
📅 21.10.2026 👁️ 1
Íbúðareigendur í Gufunesi verulega ósáttir - Áttu ekki von á nýju húsi svo nálægt sínu
Eigendur íbúða í fjölbýlishúsinu að Jöfursbási 5b, í Gufunesi í Reykjavík, eru verulega ósáttir við byggingu nýs fjölbýlishúss á næstu lóð við þeirra ...
Starfsfólk Orkunnar dælir eldsneyti til styrktar Bleiku slaufunni
📅 21.10.2026 👁️ 1
Starfsfólk Orkunnar dælir eldsneyti til styrktar Bleiku slaufunni
Starfsfólk Orkunnar tekur þátt í Bleika deginum í dag, miðvikudaginn 21. október, þegar þau taka yfir eldsneytisdælurnar á Orkustöðinni við Dalveg mil...
Elliði svarar Jasminu: „Ég veit ekki til þess að þú hafir valdið neinum skaða“
📅 21.10.2026 👁️ 1
Elliði svarar Jasminu: „Ég veit ekki til þess að þú hafir valdið neinum skaða“
Segja má að samfélagsmiðlar hafi logað eftir ummæli Elliða Vignissonar, bæjarstjóra Ölfuss, í garð múslima. Í gærkvöldi steig Jasmina Vajzovic, fyrrve...
Framlengja gæsluvarðhald yfir fjórum sakborningum í stórum fíkniefnamálum
📅 21.10.2026 👁️ 0
Framlengja gæsluvarðhald yfir fjórum sakborningum í stórum fíkniefnamálum
Landsréttur staðfesti á föstudag og mánudag þrjá úrskurði Héraðsdóms Reykjaness og einn úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um gæsluvarðhald yfir mönnum se...
Frakkar í vanda: Vextir hækka
📅 21.10.2026 👁️ 1
Frakkar í vanda: Vextir hækka
Frakkar í vanda: Vextir hækka Nið­ur­skurður í opin­berum útgjöldum er helsta kveikja mót­mæla Frakka, en ófriður eykur á vand­ann. Vaxta­á­lag á Frak...
Stephen Hubbard: Russia frees US citizen Stephen Hubbard, state media reports
📅 21.10.2026 👁️ 1
Stephen Hubbard: Russia frees US citizen Stephen Hubbard, state media reports
Stephen Hubbard has been taken to Pulkovo Airport, Putin said during talks with US envoy Steve Witkoff.
US citizen Stephen Hubbard freed by Russia and 'on his way home', Trumps says
📅 21.10.2026 👁️ 1
US citizen Stephen Hubbard freed by Russia and 'on his way home', Trumps says
The former teacher has been released without any "swap" required, according to the president.
Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 1
Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal - Vísir
Unnur Lilja var til viðtals í Bítinu á Bylgjunni um þessa árás. Hún segir algengt að það komi upp einhver atvik í fjölmennum útskriftarferðum og að fó...
Skoða áætlunar­siglingar milli Skot­lands og Ís­lands - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 1
Skoða áætlunar­siglingar milli Skot­lands og Ís­lands - Vísir
Skoskir fjölmiðlar greina frá þessu og segja viðræður vera hafnar milli Múlaþings og hafnaryfirvalda í Aberdeen. Þá sé ónefnt fyrirtæki búið að sýna s...
UK weather: Amber warning issued by Met Office ahead of Storm Austen
📅 21.10.2026 👁️ 1
UK weather: Amber warning issued by Met Office ahead of Storm Austen
The deep area of low pressure is expected to move close to the south of the UK early on Friday with south-west England set to bear the brunt.
Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar: Lífsrækt – Hvað vill unga fólkið okkar verða?
📅 21.10.2026 👁️ 2
Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar: Lífsrækt – Hvað vill unga fólkið okkar verða?
Það þarf heilt þorp til að ala upp barn. En hvaða fyrirmyndir býður þorpið upp á?Hverju myndi tíu ára barn svara ef við spyrðum það í dag: „Hvað langa...
Jón Gnarr lýsir töpuðum bardaga: „Það hefur því miður verið fátt um svör“
📅 21.10.2026 👁️ 0
Jón Gnarr lýsir töpuðum bardaga: „Það hefur því miður verið fátt um svör“
Jón Gnarr segir að sig hafi skort stuðning í pólitískri baráttu sinni og að hann hafi jafnvel farið að efast um hvort nokkur raunveruleg áætlun væri t...
Telur allt ógirt land tekið eignar­námi með dómi - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 2
Telur allt ógirt land tekið eignar­námi með dómi - Vísir
Landeigendurnir stefndu Fjarðabyggð og kröfðust þess að skaðabótaskylda sveitarfélagsins yrði viðurkennd. Töldu þeir að lög um afréttarmálefni og fjal...
Þingkonan missti báða fætur eftir á­rásina - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 2
Þingkonan missti báða fætur eftir á­rásina - Vísir
Toyota Land Cruiser-jeppa var ekið á Helen Haines, óháðan þingmann á ástralska þinginu, í heimabæ hennar Wangaratta á mánudag. Vitni sögðu að ökumaður...
Spá „hættulegri“ hlýnun um 2,8 gráður í heiminum
📅 21.10.2026 👁️ 1
Spá „hættulegri“ hlýnun um 2,8 gráður í heiminum
Spá „hættulegri“ hlýnun um 2,8 gráður í heiminum Vonin um að halda hlýnun undir 1,5 gráðum frá því fyrir iðn­bylt­ingu er „horfin“, segja Sam­ein­uðu ...
Hvalfjarðargöng lokuðust stutta stund vegna bilaðs bíls
📅 21.10.2026 👁️ 0
Hvalfjarðargöng lokuðust stutta stund vegna bilaðs bíls
Hvalfjarðargöngum var lokað á níunda tímanum vegna bilaðs bíls í göngunum. Búið er að opna þau aftur Tilkynnt var um lokunina á vef Vegagerðarinnar kl...
Haribo-kastalar og hrekkjavökugleði í Bónus - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 1
Haribo-kastalar og hrekkjavökugleði í Bónus - Vísir
Danól og Bónus hefja hrekkjavökugleðina snemma í ár. Búið er að reisa sérstaka Haribo-kastala í tveimur verslunum Bónus, á Smáratorgi og í Miðhrauni. ...
Hval­fjarðar­göng opin á nýjan leik - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 0
Hval­fjarðar­göng opin á nýjan leik - Vísir
Lokað var fyrir umferð um Hvalfjarðargöng vegna bifreiðar sem bilaði í göngunum um klukkan átta í morgun. Klukkan 8.48 voru göngin opnuð að nýju.
Viðræður hafnar um ferju milli Seyðisfjarðar og Aberdeen
📅 21.10.2026 👁️ 2
Viðræður hafnar um ferju milli Seyðisfjarðar og Aberdeen
Til skoðunar er að koma á siglingum á milli borgarinnar Aberdeen í Skotlandi og Seyðisfjarðar. Sveitarfélagið á í viðræðum við hafnaryfirvöld þar í la...
Bukangi: Huge crowds watch shark stranded in Busan, South Korea
📅 21.10.2026 👁️ 0
Bukangi: Huge crowds watch shark stranded in Busan, South Korea
A third attempt has been made to guide the 9ft 10in (3m) shark back to the open sea.
Hefur misst 90 kíló en það er einn hængur á
📅 21.10.2026 👁️ 1
Hefur misst 90 kíló en það er einn hængur á
Bandaríski leikarinn John Goodman, sem er meðal annars þekktur fyrir leik sinn í Roseanne, The Big Lebowski og The Righteous Gemstones, hefur misst rú...
Opnar sig loksins um hvað réði úrslitum um flutninginn aftur til Bretlands
📅 21.10.2026 👁️ 2
Opnar sig loksins um hvað réði úrslitum um flutninginn aftur til Bretlands
Harry prins flutti aftur til Bretlands ásamt eiginkonu sinni, Meghan Markle, og börnum þeirra tveimur til að skapa „tækifæri fyrir fjölskylduna.“„Að g...
Helen Haines: Australian MP loses both legs after alleged car attack
📅 21.10.2026 👁️ 0
Helen Haines: Australian MP loses both legs after alleged car attack
Her alleged attacker, 43-year-old Brendan Nugent, faces multiple charges and appeared in court for the first time on Wednesday.
Helen Haines: Australian MP loses both legs after alleged car attack, husband says
📅 21.10.2026 👁️ 1
Helen Haines: Australian MP loses both legs after alleged car attack, husband says
Her alleged attacker, 43-year-old Brendan Nugent, faces multiple charges and appeared in court for the first time on Wednesday.