Stjórnarandstaðan leggst alfarið gegn verðlagseftirliti með eldsneytisverði sem tryggja á að lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti skili sér til neytenda. Hún leggur enn fremur til að tímabil lækkunarinnar verði framlengt.
Ríkisstjórnin kynnti á dögunum að virðisaukaskattur á eldsneyti verði lækkaður tímabundið, frá 1. maí til 31. ágúst, til að bregðast við hækkun heimsmarkaðsverðs á olíu eftir árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran.
Önnur umræða um frumvarpið er nú til umræðu í þingsal og miðað við mælendaskrána verður málið rætt langt fram á kvöld.
Stjórnarandstaðan gerir ekki athugasemdir við lækkunina sem slíka, úr 24 prósentum í 11. Það eru hins vegar heimildir Samkeppniseftirlitsins og heimildir ráðherra til að grípa inn í verðlagningu sem stjórnarandstaðan gerir alvarlegar athugasemdir við.
Frumvarpið færir Samkeppniseftirlitinu heimildir til að leggja stjórnvaldssektir á þau fyrirtæki sem það telur að skili lækkuninni ekki til neytenda. Enn fremur fær fjármálaráðherra heimildir til að grípa inn í verðlagningu, annaðhvort með ákvörðun hámarksverðs eða hámarksálagningar. Gilda heimildirnar í þann tíma sem lækkunin varir.
Í minnihlutaáliti fulltrúa Sjálfstæðisflokks og Miðflokks er lýst stuðningi við fyrirhugaða lækkun virðisaukaskatts en gerðar eru alvarlegar athugasemdir við aðra þætti frumvarpsins.
Í álitinu er rakið að verðlagseftirlit hafi sögulega verið tekið upp við neyðaraðstæður, en reynslan sýni að slík inngrip séu oft óskilvirk, dragi úr samkeppni og geti jafnvel hækkað verð. Bent er á að opinber verðstýring hafi verið afnumin að mestu með samkeppnislögum 1993 og því sé um stórkostlegt afturhvarf til fortíðar að ræða.
Fulltrúar allra flokka í stjórnarandstöðu leggja sömuleiðis til að gildistími aðgerðanna verði framlengdur til 31. október, fyrst og fremst vegna þess að alls óvíst sé hvort ástandið við Persaflóa verði nokkuð skárra í lok sumars. Verði það raunin geti þingið ekki brugðist við þar sem það kemur ekki saman fyrr en um miðjan september.
Þar sem frumvarpið á að taka gildi um mánaðamót þarf þingið að afgreiða málið í þessari viku.