Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur sent frá sér dagbók yfir verkefni dagsins en þar kemur meðal annars fram að lögreglustöð 4, sem sinnir verkefnum í Árbæ, Norðingaholti, Grafarvogi, Grafarholti, Mosfellsbæ, Kjalarnesi og Kjósarhreppi, var send í útkall eftir að golfbíl var ekið á grindverk. Ökumaður golfbílsins hefur glímt við veikindi og datt út við aksturinn. Var hann fluttur með sjúkraliði á bráðamóttöku til frekari aðhlynningar.Á sömu stöð barst tilkynning um eld í húsnæði en tilkynnandi sá fjögur ungmenni koma úr húsinu og fara af vettvangi á rafmagnstorfæruhjólum.
Veikur ökumaður ók golfbíl á grindverk